Stéttabaráttan - 23.05.1975, Page 3
STÉTTABARATTAN 23.5. 5. tbl. 1975
ftti(»E
FRAMHALD AF FORSlÐU
SIGALDA
Sjálfstœtt skipulag
- Sp: Hver hefur verið afstaða
verkalýðsforystunnar f þessu máli?
AþA: Afstaða forystu verkalýðsfé-
lags rangæinga hefur verið svona
upp og ofan í gegnum þetta ár, sem
vinna hefur verið hér. Það er
skemmst frá að segja að við teljum
þá hafa staðið sig mjög illa. En aft-
ur á mðti hvað þessar aðgerðir
snertir, sem eiga sér stað núna, þá
hafa þeir frekar stutt við okkur en
hitt.
- Sp: Semsagt, ekki starfað gegn
ykkur ?
AþA: Ekki starfað gegn okkur, nei.
Sem er náttúrulega dálítið óvenjulegt.
Enda samanber fundinn sem var
haldinn í gær. Atkvæðagreiðslan
sýndi, að mannskapurinn var einhuga,
ég héld það hafi verið 4 atkvæði með
samþykktinni, sem við felldum og
það væri náttúrlega dálítið erfitt fyr-
ir verkalýðsforystuna að taka ein-
hliða afstöðu gegn þessu.
- Sp: Geturðu sagt okkur aðeins frá
þessari atkvæðagreiðslu og líka nið-
urstöðutölu, þannig að sjáist sam-
staðan.?
AþA: A fundinum hafa líklega verið
milli 250 og 300 manns, og þó svo
að atkvæðagreiðslan hafi farið fram
með handauppréttingu, er hún alveg
lögleg, því eins og ég sagði áðan
voru aðeins 4 sem samþykktu þetta
"kostaboð" júgóslavanna.
- Sp: I hverjuvar það fólgið?
AþA; Það var fólgið í því, að við
færum að vinna aftur og þeir mundu
ganga til samninga við okkur um
samninga sem var búið að undirrita.
- Sp: Hvað með afstöðu júgóslavn-
esku verkamannanna, tóku þeir þátt
í aðgerðunum ?
AþA: Varðandi vandamál, sem hafa
komið hér upp áður, til dæmis frí-
helgarvinnubann, þá hefur mannskap-
urinn farið af svæðinu. Þar af leið-
andi hefur ekki verið hasgt að hindra
þeirra vinnu. Júgóslavarnir hafa
sem sagt verið látnir ganga í störf,
sem íslendingarnir áttu að vinna.
En núna þegar mannskapurinn er á
svæðinu, þrátt fyrir að búið sé að
reka okkur, eða við höfum sagt upp
að mati júgóslavanna, þá hefur okkur
tekist að hindra alla vinnu þeirra.
Og það er ekki hægt að segja að þeir
hafi gert neinar freklegar tilraunir
til verkfallsbrota.
- Sp: Taka þeir ekki þátt í verkfall-
inu sjálfu?
AþA; Það virðist nú vera að þeir
greiði gjöld í þetta verkalýðsfélag
(þ. e. Rangæing -/Sb). Þeir eru und-
ir sfna heimamenn settir, og eiga
eftir að fara heim. Ég veit ekki
hvort það yrði tekið hart á þeim þar,
en það er möguleiki, ef þeir mundu
grípa til einhverra róttaíkra aðgerða
með okkur. I raun og veru stoppum
við þá. Þeir hafa brotið gegn frí-
helgarbanni og öðru þvílíku, þannig
að það hefur ekki verið um samstöðu
x aðgerðum að ræða.
- Sp: Það voru einhverjar fréttir
um tillögu júgóslavaxma um að samn-
ingarnir færu fram í gegnum ASÍ og
verkalýðsfélagið. Geturðu sagt okk-
ur af þvf ?
AþA: Já það hefúr verið töluvert
hitamál herna, að trésmiðirnir hafa
ðskað eftir því að landssamband
þeirra taki yfir samningsrétt þeirra,
þ. e. a. s. úr höndum Rangæings.
Það mál er komið í höfn. Það
hefur verið imprað á því, að fleiri
sérsambönd kæmu inní þett a mál
og sambandsmenn hafa verið okkur
til aðstoðar undanfarna daga. Af-
staða þeirra til okkar hefur verið
frekar hliðholl, þó svo að um ágrein-
ing hafi verið að ræða í einstökum
atriðum. En þar sem þessar að,-
gerðir eru skipulagðar neðan frá,
þ.e.a.s. af fólkinu sjálfu, er nátt-
úrulega aldrei möguleiki á þvf að
þeir gætu beint baráttunni okkur í ó-
hag.
- Sp: Telurðu að þið getið náð samn-
ingsréttinum f ykkar hendur ?
AþA: Samningsrétturinn í þessu
máli er tvímælalaust í okkar höndum.
En almennt séð hefur hann alls ekki
verið íhöndum okkar, samanber
síðustu samninga, þar sem engar
kjarabætur eiga sér stað, utan
rammasamninga fyrir verkamenn.
En möguleikinn opnast núna í sam-
bandi við næstu samninga, hvort sem
það verður f gegnum Rangæing eða
sérsambönd verkalýðsins. Ég held
ég megi segja það alveg fyrir víst,
að það verður krafa um það, að héð-
an fari fulltrúi, frá verkamönnum,
sem muni hafa bein áhrif á þá samn-
inga.
-'Sp: Hvernig verður áframhaldandi
barátta skipulögð ?
AþA: Hún hefur ekki verið skipu-
lögð af trúnaðarmönnum. En mínar
persónulegu hugmyndir eru, að þar
sem þessi eindregna afstaða fjöldans
hefur komið í ljós f sambandi við
þetta mál, að þá eigum við nú mun
auðveldara með að veita ENERGO að-
hald með samningana, þannig að þeir
sjái sér ekki fært að brjóta á okkur.
Þvf að til aðgerða verður náttúrlega
gripið aftur, ef um annað eins og
þetta verður að ræða.
- Sp: Hafið þið skipulagt fjölda-
fundi með verkamönnunum ?
Lýðrœðid i verkalýðs-
félaginu Rangæingi
Varðandi verkfallið á Sigöldu, kom
mikið til umræðu þáttur verkalýðs-
forystunnar f Rangæingi (verkalýðs-
félagið í Rangárvallasýslu) og af-
skipti hennar af baráttunni á staðnum.
Tfðindamenn Sb. rseddu stuttlega við
Hilmar Jónasson (sem nánar má
kynnast í grein frá Sigöldu f 1. tbl.
Sb. "75).
Hann lagði áherslu á það, að verka-
lýðsforystan væri "bundin lögum" og
gæti ekki staðið f ólöglegum aðgerð-
um. Og í tilfelli eins og á Sigöldu
"þá komum við inní þetta dæmi sem
sættandi aðilar"; sættandi aðilar
milli verkamanna og Energoprojekt,
og eins og allir sættandi aðilar,
verður verkalýðsforystan að taka til-
lit til beggja hagsmuna og þá er vitað
hvernig sú "sátt" verður. Þá var
Hilmari tíðrætt um lýðrseðið í Rang-
æingi, talaði um lýðræðislegar
AþA: Ekki almennt, nei. En það
hafa verið haldnir fundir,' reyndar
mjög sjaldan, en þegar hitamál hafa
komið upp, þá hefur það verið gert
Reyndar hef ég heyrt að fyrr í vetur
hafi framkvæmdastjðri fulltrúaráðs
stéttarfélaganna, lofað starfsmönn-
úm við Sigöldu hálfsmánaðarlegum
fundum, en við þetta hefur ekki ver-
ið staðið. Þannig að það yrði ein-
göngu verkalýðurinn hér sem stæði
að þeim, ef til þess kæmi.
- Sp: Hvernig hefixr afstaða verka-
lýðsforystuimar verið?
AþA: Mín skoðun á stöðu verkalýðs-
forystunnar í þessu máli byggist á
því, að ég tel að verkalýðsforystan
sé gjörsamlega úr tengslum við al-
þýðu manna; það hefur einmitt sýnt
sig mjög vel hér, þótt ég fari ekki
að nefna nein nöfii. En þ"ar sem kom-
ið hefur I ljós að með ,þessu sam-
stillta átaki, sem hefur átt sér stað
.hér, þá höfum við getað knúið hana
til þess að standa á bak við okkur.
Þó veit ég ekki hvernig hefði verið
staðið að málum, ef ekki hefði ver-
ið einhuga samstaða á þessum fundi
sem ég nefndi áður. Þetta er eitt
af fáum skiptum sem við höfum ekki
þurft að berjast líka við verkalýðs-
forystuna. T. d. hefur það sýnt sig
I nýlegu máli, að hún hefur framið
gerræðislegar aðgerðir, sem hafa
komið mjög illa niður á mannskapnum.
- Sp: Hvaða mál var það ?
AþA: Það var varðandi breytingu á
úthaldi. Trúnaðarmaxmafundur ákvað
að breyta því ekki. Sfðan fór fram
atkvæðagreiðsla fyrir tílstilli verka-
lýðsfélagsins um það, og þar var
haldið við þá afstöðu að breyta ekki
úthaldi. Sfðan, nokkrum dögum
seinna, skrifar framkvæmdastjóri
fulltrúaráðsins undir breytingu. Það
var einhliða ákvörðun hans, að ég
tel.
- Sp: Væru aðgerðirnar mögulegar
undir stjórn Rangæings ?
AþA: Alls ekki. Það vita allir.
Þetta skoðast sem ólögleg aðgerð og
verkalýðsforystan fer ekki út fyrir
þann borgaralega ramma, sem við
vitum hver er, og gæti þess vegna
aldrei verið leiðandi eða skipuleggj-
andi afl í þessum aðgerðum. Það
er engin forsenda fyrir þvf.
Aðgerðirnar eru frá rótum skipulagð-
ar neðan frá og það hefði verið and-
stætt eðli verkalýðsforystunnar að
taka beinan þátt í þeim. En aftur á
móti er hún knúin til þesB að taka
afstöðu með verkalýðnum. Því ein-
hliða aðgerðir hefðu kallað fram rót-
tækar aðgerðir um allt land og þá
hefði forystan spilað rassinum úr
buxunum, sem hún er þó búin að
gera.
- Sp: Það er, afhjúpast ?
AþA: Hún er búin að því, en vegna
mjög takmarkaðra blaðaskrifa um
þetta mál frá sjónarhóli verkalýðsins
þá hefur þetta ekki komið fram fyrr.
- Sp: Semsagt, þessi aðgerð hefði
aldrei verið möguleg, nema sem
sjálfstæð skipulagning verkalýðsins
sjálfs ?
AþA: Jú, og baráttan hérna hefur
ekki einungis beinst gegn ENERGO,
heldur í rxkum mæli gegn verkalýðs-
forystuimi í Rangárvallasýslu.
- Sp: Hvaða hlutverk heldurðu að
forystan spili f þessu máli nú ?
AþA; Það má segja að hún sé sendi-
boði. Framkvæmdastjóri heimar
hefur gengið með tillögur og sam-
þykktir okkar til ENERGO og borið
annað til baka. En hún hefur ekki
nein bein áhrif á aðgerðirnar, þar
sem hún telur þær ðlöglegar, sem
er eðlilegt miðað við eðli hennar.
Hún á ekki möguleika á að hafa áhrif.
Þetta er eingöngu bundið við starfs-
menn og allar ákvarðanir eru teknar
af þeim.
- Sp: Heldur þú að forystan muni
leitast við að koma á einhverri mála-
miðlxm milli verkamanna og ENERGO?
AþA: Það er möguleiki á þessu, en
raunar er ekki um málamiðlun að
ræða. Við gerum kröfu um að samn-
ingar séu haldnir. Við lítum svo á
að við bíðum eftir leiðréttingu kaups
og annars og að því leyti teljum við
þetta löglegar aðgerðir innan ramma
borgaralegra laga.
Verkalýðsforystan átti engra kosta
völ. Þetta er það stór vinnustaður,
og ef það hefði komist í hámæli, að
verkalýðsforystan hefði knúið fram
andstæða skoðun við 99% vinnandi
manna á staðnum, hefði það leitt til
víðtækra gagnaðgerða um allt land.
Það hefði endað með því að hún
hefði verið knúin til breytinga á
þeirri afstöðu.
- Sp; Eitthvað að lokum ?
AþA: Þessar aðgerðir eru lærdóms-
rxkar fyrir verkamenn almennt. Af
þessu má læra um baráttuna almennt
og einnig þar sem allt útlit er fyrir
stórframkvæmdir útlendra aðila á
íslandi í framtíðinni, nema komi til
stefaubreytinga, þá er möguleiki að
verkamenn sem þar starfa geti tekið
mið af þeirri baráttu, sem við höf-
um háð hér. -/eb
stjórnir á lýðræðislegum fxmdum o.
s.frv. Aðspurður um það, hvort
verkalýðsforystan gæti hafa stýrt
aðgerðunum, svaraði hann neitandi,
vegna hinna txttnefndu laga, sem
hann fer eftir. Raunar gæti forystan
ekkert gert I skyndiaðgerðumí
"Þetta er eðli íslenskra laga", sagði
formaður verkalýðsfélagsins, "og
með lögum skal land byggja." Hver
setti lögin, fyrirhverja? Þetta er
nokkuð sem Hilmar Jónasson veltir
ekki fyrir sér. Hann fer eftir lögun-
um og það ér akkúrat það, sem auð-
valdið vill að hann geri.
Hins vegar er það rétt, að verka-
lýðsfélögin eru ábyrg gagnvart lög-
um. Ef þau stýra ólöglegum aðferð-
um, er hægt að dæma þau til skaða-
bóta úr verkfallssjóðum. - Þetta er
rétt hjá Hilmari og sýnir okkur, að
ekki er nóg að losna við uppkeyptu
verkalýðsforystuna, heldur verður
að losna við þessi lög, sem hefta
baráttu verkalýðsins. Vert er að
hafa þetta I huga nú, þegar ASÍ-for-
ystan er að makka við VSÍ um nýja
vinnulöggjöf, þar sem baráttufrelsi
verkalýðsins er meira skert, m. a.
með því að vald sáttasemjara verði
aukið.
Aðspurður um makk verkalýðsfor-
ystunnar við atvinnurekendur, sagð-
ist hann ekki vita hvað það væri;
hefði að vxsu heyrt orðið nefnt en
ekkert meira. Hann sagði að verka-
menn ættu fulltrúa I samninganefed.
Verkamaður hafði annað um það að
segja, eins og kemur fram sfðar I
þessari grein. Makk ASÍ-forystunn-
ar við VSl er ekki til, að áliti Hilm-
ars. Þetta hljómar ankannalega í
eyrum verkamanna, sem beðið hafa
eftir samningum mánuðum saman og
heyra nú ekki orð frá forystunni,
sem er "upptekin í viðræðum" við
fulltrúa VSÍ/
Þannig hefur formaður Rangæings
játað, að forystan (eða verkalýðsfé-
lagið og lögin, eins og hann orðaði
það), getur ekki staðið fyrir hags-
munum verkalýðsins, af þvf að hún
þarf að taka tillit til hagsmuna at-
vinnurekenda.
Agúst Þór Arnason hafði allt aðra
sögu að segja um lýðræðið í Rangæ-
ingi. Fer hér á eftir viðtal við hann
um þetta. Fyrst var hann spurður
um lýðræðið, sem Hilmar gumaði
af.
"Lýðræðið innan verkalýðshreyfing-
arinnar, sem Hilmar var að tala um,
má skoðast í þvf ljósi, sem sést hef-
ur hér f Sigöldu. Þá er fyrst að
nefea fund, sem var haldinn eftlr
undirskrift samninga, með fyrirvara
um samþykki fundar. LýðrEeðið
byggðist á þvf, aðframkvstj. full-
trúaráðsins settist niður, skipaði
sjálfan sig fundarstjóra og einskorð-
aði umræðurnar við þau málefnl, sem
hann vildi ræða. Þetta tókst nú ekki
betur en svo, að nokkrir óþekkir
menn stóðu upp og mðtmæltu þessum
vfenubrögðum og vildu ræða ýmis
mál, sem virtust vera viðkvæm
fyrir verkalýðsforystuna en fundar-
stjóri tók þau út af dagskrá og neit- *
aði að ræða þau og sagði að einung-
is ætti að ræða samningana. En
þessir samningar sem þarna um
ræddi voru þess eðlis, að einungis
tveir starfshópar, sem starfa f Sig-
öldu, fengu nokkrar kjarabætur fram
yfir það sem segir í rammasamningi
ASl. Til að mynda fengu verkamenn
engar bætur og var að því spurt,
hvort þetta væri eðlilegt. Því var til
svarað, að 1. júní væri möguleiki að
bæta þetta aðeins. Þessi fundur
stóð í á að giska klukkutfma, sem er
fullstuttur tími til að kynna samniriga,
Frh. á bls. 5
„Sósíalisminn“ í Júgósiavíu
Þegar tfðindamenn Stéttabaráttunnar
fóru upp á Sigöldu vegna verkfallsins
nýlega, kyniitu þeir sér afstöðu
júgóslavnesku verkamannanna á
staðnum.
Hla gekk að fá júgóslavneskan verka-
mann til viðtals. Olli því a.m.k.
tvennt. Annars vegar tungumfilaörð-
ugleikar og hins vegar hræðsla júgó-
slavanna við að ræða við fréttamenn.
lslenskir verkamenn á staðnum höfðu
sömu sögu að segja. Bentu þeir okk-
ur á, að atvinnuleysi væri mjög mik-
ið í Júgóslavfu og því ekki ráðlegt
fyrir júgóslavnesku verkamennina að
gera neitt, sem gæti skaðað þá.
Loks hittum við einn, sem talaði .
sæmilega ensku. Sá galli var þó á
gjöf Njarðar, að þegar tíðindamaður-
inn minntist á kommúnistaflokkinn
eða eitthvað í þá veruna, skildi '
verkamaðurinn ekki neitt og vildi
ekkert segja; bar því líka við að
hann væri ópólitískur. Þessa skýr-
ingu fengum við líka hjá aðstoðar-
manni forstjóra Energóprójekt.
Ljóst er þó, að kúgunin á júgóslavn-
esku verkamönmmum er mjög mikil.
Til dæmis hafa þeir ekki fengið laun
greidd síðastliðria sex mánuði og
þegar þeir ráða sig hjá Energóproj-
ekt, skuldbinda þeir sig til að sætta
sig við allt að þriggja mánaða
drætti á launagreiðslum. Að auki
þurfa þeir að greiða fæði og húsnæði
á staðnum, sem fæstir íslensku
verkamannanna þurfa að gera.
Afstaða þeirra til aðgerða fslensku
verkamannanna var óljós. Verkfoll
eru al|erlega bönnuð í Júgóslavíu og
alveg ovíst hver viðurlög eru við ó-
löglegum aðgerðum eða stuðningi við
þær. Þó kom í ljós í viðtali við
einn úr verkfallsnefedinni, að júgó-
slavnesku verkamennirnir hafa ekki
gert freklegar tilraunir til verkfalls-
brota.
Við spurðum júgóslavneska verka-
manninn hver ætti fyrirtækið, en
fengum ekkert svar, sem hægt væri
að byggja á. En aðstoðarmaður for-
stjórans var ekki f vanda með svar-
ið; verkamennirnir eiga það. R&ð
verkamanna ræður, sagði hann, en
síðar kom í Ijós, að ráðið hefur að-
eins rétt til að tala og er einungis
sjaldan kallað saman. Þannig að
þetta lítur frekar út sem borgaralegt
atvinnulýðræði, þar sem verkamenn-
irnir "fá að segja jfi", til staðfest-
ingar ákvörðunum eigendanna. Einn
íslensku verkamannanna sagðist
halda, að eignarhald á Energóprojekt
væri eipkaeign og samvinnueign til
helminga.
Þetta gefur okkur tilefai til að rifja
upp þátt úr utanríkisstefnu júgóslava
undir stjórn endurskoðunarsinnans
Títós.
Alþýðulýðveldið Albanía á Balkan-
skaganum hefur orðið fyrir áreitni
frá júgóslavnesku endurskoðunar-
stefnunni. Eins og Enver Hoxha
orðaði það í ræðu fi fundi kommún-
istaflokka í Moskvu 1960, þá væri
draumur Títós að gera Albaníu að 7.
lýðveldi Júgðslavfu. Tító hefur
bæði leynt og ljðst afhjúpað þessi á-
form sín.
Innanlandsmálin eru eftir þessu. Af-
staða Tító-klíkuimar til alræðis ör-
eiganna, birtist í stefauskrá flokks-
ins, þar sem segir, að alræði ör-
eiganna, pðlitískt og efnahagslegt,
sé blátt áfram ónauðsynlegt, fræði-
lega rangt og skaðlegt fyrir sósfal-
ísmann. Þetta þýðir ekkert annað
en að sósíalisminn skuli afeuminn
og kapitalfskir framleiðsluhættir
teknir upp. Þannig er Júgðslavfa
undir stjórn endurskoðunarklxku Títós
ekkert annað en kapitalískt lögreglu-
rfei, og þjóðabrot og verkamenn
búa við sömu kúgun og verkamenn
Sovétríkjanna undir stjórn Brésneffs-
klfkunnar.
Enda kemur á dagfen að þessi er
stefean í báðum löndunum: völd for-
stjóra og borgaralegra afla, kúgun á
verkalýðnum.
Þessi kúgxrn kemur ljóslega fram á
Sigöldu. _/eb