Fréttablaðið - 28.08.2009, Page 2

Fréttablaðið - 28.08.2009, Page 2
2 28. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR ALVÖRU SÁLFRÆÐITRYLLIR D Y N A M O R E Y K JA V ÍK www.bjartur.is Ný stjarna á himni reyfarahöfunda Þýðandi: Bjarni Jónsson BEINT Í 3. SÆTI METSÖLULISTA EYMUNDSSON D Y N A M O D Y N A M O M R E Y K J R E Y K JA V A V AA ÍKÍ ALÞINGI Þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna létu ríkisstjórnina – og þá sér í lagi Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra – heyra það í þriðju umræðu um Icesave-frumvarpið sem stóð á Alþingi í allan gærdag og fram á kvöld. Töldu þeir stjórnvöld hafa haldið illa á málinu og í raun klúðrað því. Ætlan þeirra hafi verið að keyra málið óbreytt í gegnum þingið en til allrar lukku hafi það breyst mjög til betri vegar. Það voru svo til eingöngu stjórnarandstöðuþing- menn sem fluttu ræður en örfáir stjórnarliðar tóku þó til máls. Frumvarpið um ríkisábyrgð vegna Icesave- reikninga Landsbankans tók miklum breytingum í meðförum fjárlaganefndar. Voru færðir í það margvíslegir fyrirvarar, bæði efnahags- og laga- legir. Eru þeir í frumvarpinu sagðir „óaðskiljan- legur hluti ríkisábyrgðarinnar“. Skrifað var undir Icesave-samningana 5. júní og frumvarp um ríkisábyrgð vegna lána var lagt fyrir þingið í byrjun júlí. Til stendur að greiða atkvæði um málið á þing- fundi sem hefst klukkan tíu í dag. - bþs Stjórnarandstaðan harmaði framgöngu ríkisstjórnarinnar í Icesave-málinu í gær: Atkvæði um Icesave greidd í dag SIGMUNDAR TVEIR Þingmenn sátu að mestu hljóðir undir ræðum um Icesave-málið á Alþingi í gær. Áður en þingfundur hófst hafði forsætisnefnd Alþingis fjallað um frammíköll og tíðan óróa í þingsalnum síðustu vikur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Rúnar Helgi, hefur þetta mikla þýðingu fyrir ykkur? „Já, þetta þýðir að íslenskan verði í askana látin.“ Umsóknaraðild Íslendinga að Evrópu- sambandinu hefur í för með sér mikil uppgrip fyrir íslenska þýðendur. Rúnar Helgi Vignisson er formaður Bandalags þýðenda og túlka. FJÁRMÁL Laun Jóns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Stoða, lækka um 70 prósent samkvæmt nýjum samningi sem Eiríkur Elís Þor- láksson, stjórnarformaður félag- ins, sagði frá í gær. Eiríkur sendi frá sér yfirlýsingu eftir að Fréttablaðið birti í gær frétt þess efnis að framkvæmda- stjóri Stoða væri enn á fyrri ofur- launum þrátt fyrir að félagið hafi gengið í gegnum nauðasamninga þar sem skuldir umfram eign- ir voru um 200 milljarðar króna. Fram kom í fréttinni að verið væri að semja við Jón Sigurðsson um laun á lágstemmdari nótum. „Framkvæmdastjóri félagsins, Jón Sigurðsson, hefur síðustu miss- erin starfað fyrir Stoðir, áður FL Group, samkvæmt gildandi ráðn- ingarsamningi. Laun framkvæmda- stjóra samkvæmt samningnum eru um fimm milljónir króna á mánuði. Eftir að nauðasamningar Stoða voru samþykktir fyrr í sumar varð fyrst ljóst að starfsemi félagsins myndi halda áfram. Samkomulag hefur nú verið gert við framkvæmdastjóra félagsins sem felur í sér yfir 70 pró- senta lækkun á launum hans,“ segir í yfirlýsingu Eiríks. Samkvæmt þessu verða mánaðarlaun Jóns um 1,5 milljónir króna. Fréttablaðið óskaði í gær eftir nánari svörum frá félaginu um starfskjör framkvæmdastjórans. „Frá hvaða tímapunkti gilda þessi nýju launakjör? Fær forstjórinn aðrar greiðslur í tengslum við það að gefa eftir fyrri ráðningarsamn- ing sinn við Stoðir?“ segir í fyrir- spurn Fréttablaðsins sem Stoðir kusu að svara ekki. Í yfirlýsingu Eiríks stjórnar- formanns segir að ekki sé rétt að Stoðir séu í meirihlutaeigu ríkisfyrirtækja eins og sagt var í Fréttablaðinu. Þar kom fram að gamli Glitnir og Nýi Landsbankinn eigi samtals um 58 prósent í Stoð- um. Voru félögin bæði tvö í frétt- inni talin í eigu ríkisins. Hið rétta er hins vegar að gamli Glitnir er ekki í eigu ríkisins heldur tilheyr- ir hópi ótiltekinna kröfuhafa sem á eftir að skýrast hverjir eru. Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, segir helstu kröfuhafa vera erlenda banka. Ekki liggur á lausu hverjir eru hluthafar í Stoðum fyrir utan gamla Glitni og nýja Landsbankann. Júlí- us Þorfinnsson, verkefnastjóri hjá félaginu, segir hluthafana á annað hundrað talsins, að mestu íslensk- ar og erlendar fjármálastofnanir og félög. „Stoðir eru ekki lengur með skráð hluta- eða skuldabréf í Kaup- höll Íslands og nánari upplýsingar eru ekki veittar um hluthafalista félagsins, að minnsta kosti ekki að svo stöddu,“ segir Júlíus. gar@frettabladid.is Laun forstjóra Stoða lækkuð í 1,5 milljónir Fimm milljóna króna mánaðarlaun forstjóra Stoða lækka um 70 prósent. Þetta kemur fram í yfirlýsingu stjórnarformanns Stoða sem bendir á að félagið sé ekki í meirihlutaeigu ríkisins. Ekki fæst upplýst hvenær nýju kjörin taka gildi. UMRÓTATÍMAR Mikil óvissa skapaðist um framtíð Stoða við yfirtöku ríkisins á Glitni í fyrrahaust. Stoðir fóru í greiðslustöðvun og tóku kröfuhafar félagið yfir með nauða- samningum í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR JÓN SIGURÐSSON EIRÍKUR ELÍS ÞORLÁKSSON AFGANISTAN, AP Einum af yngstu föngum í Guantanamo-fangabúð- unum á Kúbu hefur verið sleppt úr haldi. Hann var færður í búð- irnar frá Afganistan árið 2002, sakaður um að hafa kastað hand- sprengju að bíl. Í árásinni særð- ust tveir bandarískir hermenn. Dómari fyrirskipaði að honum skyldi sleppt og taldi að hann hefði verið neyddur til að játa á sig árásina. Mohammed Jawad hyggst nú kæra Bandaríkjastjórn vegna málsins. Hann segist hafa sætt margvíslegum pyntingum í búðunum. Fjölskylda hans segir hann hafa verið tólf ára þegar hann var handtekinn. - þeb Var haldið í Guantanamo: Vill bætur frá Bandaríkjunum BANDARÍKIN Allar líkur eru á því að stúlka, sem rænt var í Banda- ríkjunum fyrir átján árum, sé komin í leitirnar. Tveir menn eru nú í haldi lögreglu vegna málsins. Konan sem um ræðir gekk inn á lögreglustöð og sagðist vera Jaycee Lee Dugard, og hefði verið rænt fyrir átján árum síðan. Jaycee Lee var ellefu ára gömul þegar henni var rænt á leið í skóla. Hún hefur aldrei sést síðan. Lögreglan í Kaliforníu segir að allar líkur séu á því að konan sé fundin og foreldrar hennar eru á sama máli. Niðurstaðna úr DNA- prófi var að vænta í nótt. - þeb Stúlka sem var rænt: Fundin eftir átj- án ár í gíslingu Vísitalan hækkar enn Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í ágústmánuði er 346,9 stig og hækkaði um 0,52 prósent frá fyrra mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 10,9 prósent, samkvæmt tölum Hagstofunnar. EFNAHAGSMÁL EFNAHAGSMÁL Verðtryggingin er afsprengi óstöðugs hagkerfis, þar sem stjórnmálamenn leiðrétta mistök sín með því að fella gengi krónu. Hún er skásti valkostur lántakenda, sem annars þyrftu að taka gengistryggð lán, eða hafa breytilega vexti á lánum. Slíkir vextir hefðu til dæmis farið í 25,5 prósent haustið 2008. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir þetta, spurður um gagnrýni Eyglóar Harðardóttur, þingmanns Framsóknar, í garð ASÍ í blaðinu á miðvikudag. Eygló sagði þar að ríkisstjórn- in hafi ekki hreyft við verðtrygg- ingunni, því það sé „andstætt vilja eins helsta bakhjarls Samfylking- arinnar, ASÍ, sem [vill] verja sitt helsta valdatæki, lífeyrissjóðina“. „Umrædd þingkona þekkir greinilega ekki nokkurn skapað- an hlut til. ASÍ skipar ekki einn einasta fulltrúa í stjórn lífeyris- sjóðs og hefur enga beina aðkomu að rekstri þeirra. Hins vegar eru sjóðirnir partur af okkar kjarasamningi og einstök aðildarfélög kjósa stjórnar- menn lífeyrissjóða. Þetta hefur ekkert með valdavígi að gera heldur hefur að gera með að standa vörð um réttindi fólks,“ segir Gylfi. Spurður hvort hann telji enga ástæðu til að endurskoða verð- trygginguna, segir Gylfi: „Jú, það er mjög mikil ástæða til þess. Það gerum við með því að fá meiri stöð- ugleika í hagkerfið, meðal annars með því að sækja um aðild að ESB og taka upp evru. Þá fengi fólk svipuð kjör og fást í nágranna- löndunum.“ - kóþ Forseti ASÍ segir þingkonu Framsóknar ekkert vita um ASÍ og lífeyrissjóðina: Verðtrygging eða upptaka evru GYLFI ARNBJÖRNSSON Segir mjög mikla ástæðu til að enduskoða verðtrygginguna. Það verði gert með því að auka stöðugleika, með aðild að ESB og upptöku evru. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON STJÓRNMÁL Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra telur að endur- skoða þurfi samning milli HS Orku og Reykjanesbæjar um framsal á auðlindum til 65 ára. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær. Katrín minnir á að til er nefnd sem mótar stefnu um auðlindir í eigu ríkisins. Henni finnst eðlilegt að sú vinna sé höfð til hliðsjónar og að samningur milli HS Orku og bæjarins sé endurskoðaður með það í huga, sérstaklega þegar kemur að greininni sem fjallar um leigutíma. Þar telur hún að gengið hafi verið of langt. Hún segist hafa komið þessum skoðunum sínum til skila. - þeb Iðnaðarráðherra: Vill endurskoð- un samnings MENNING Risastórum hval var komið fyrir í Kringlunni í gær og verður hann þar til sýnis næstu daga. Hvalurinn verður í Kringlunni í tengslum við frumsýningu myndarinnar Reykjavík Whale Watching Massacre, sem verð- ur frumsýnd þann 4. september næstkomandi. Það er Júlíus Kemp sem leik- stýrir myndinni, sem fjallar um hóp ferðamanna sem fer í hvala- skoðun. Myndin er líklega fyrsta íslenska hryllingsmyndin sem gerð hefur verið. - þeb Í tengslum við frumsýningu: Risastór hvalur í Kringlunni HVALURINN FÆRÐUR Talsvert átak var að koma hvalnum fyrir í Kringlunni og þurfti að labba með hann langa leið á áfangastað. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þyrlan sótti stúlku Sextán ára stúlka féll af reiðhjóli sínu á fjallvegi norðan Tindafjallajökuls í gær. Talið er að hún hafi axlar- brotnað og hlotið kviðáverka. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti stúlkuna og flutti hana á Landspítalann í Foss- vogi um kvöldmatarleytið í gær. SLYS KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.