Fréttablaðið - 28.08.2009, Page 4

Fréttablaðið - 28.08.2009, Page 4
4 28. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR M Á L V E R K A U P P B O Ð Erum að taka á móti verkum fyrir næsta uppboð. Lægri sölulaun – Örugg þjónusta Skipholti 35 105 Reykjavík. sími 511 7010 Gsm: 847-1600 petur@galleriborg.is Fyrir fjársterka aðila leitum við að módelmyndum eftir Gunnlaug Blöndal, verkum eftir Louisu Matthíasdóttur og góðum Kjarvalsmyndum. Vinsamlegast hafi ð samband sem fyrst í síma 511 7010 eða 847 1600 LÖGREGLUMÁL „Almennt er það vegna þess að upplýsingar eru við- kvæmar, þær geta verið ónákvæm- ar og svo gæti birting þeirra skað- að rannsóknarhagsmuni eða valdið öðrum skaða,“ segir Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri hjá Seðla- bankanum, spurður hvers vegna bankinn svarar ekki spurningum Fréttablaðsins um meint brot á gjaldeyrishöftum. Eins og kunnugt er hefur gengi krónunnar veikst umtalsvert á liðnum mánuðum þrátt fyrir gjaldeyrishöft og hagstæðan vöru- skiptajöfnuð. „Staða erlendra aðila í krónum hefur lækkað nokkuð undanfarna mánuði, sem bendir til þess að farið sé í kringum höftin í einhverj- um mæli,“ segir í yfirlýsingu pen- ingastefnunefndar Seðlabankans 13. ágúst síðastliðinn. Fréttablaðið óskaði eftir svörum frá Seðlabank- anum um meint brot á gjaldeyris- höftunum sem vísað hefur verið til Fjármálaeftirlitsins. „Seðlabankinn veitir ekki nákvæmar upplýsingar um það, en bankinn starfar í nánu sam- starfi við FME vegna rannsókna á brotum um gjaldeyrismál og regl- um settum á grundvelli þeirra og hafa stofnanirnar gert með sér samstarfssamning vegna þessa,“ er svarið þegar spurt er um fjölda slíkra mála. „Seðlabanki Íslands getur ekki veitt upplýsingar um slíkt,“ er svar- ið þegar spurt er um stöðu þessara mála, þær upphæðir sem um sé að tefla og um hvaða aðila sé að ræða og í hvaða greinum þeir starfi. Afnema á gjaldeyrishöftin í áföngum. Fyrsti áfanginn verður að aflétta höftum af innstreymi gjald- eyris. Ætlunin er að hefja það ferli í október að því gefnu að nauðsynleg skilyrði hafi skapast. Á meðan er unnið að því að sjá til þess að betur sé farið eftir lögunum. „Skref í þá átt var stigið með stofnun Gjaldeyriseftirlits innan Seðlabankans í júní. Frekari skref eru áformuð, en ekkert er hægt að segja um þau á þessu stigi,“ er svar Seðlabankans þegar spurt er hvort í bígerð sé að herða umgjörð og eftirlit með gjaldeyrishöftunum. Fjármálaeftirlitið segir rann- sóknirnar flóknar. Sum málin hafi orðið tilefni rannsóknar á öðrum brotum á lögum um gjaldeyris- mál. „Vegna þessa er erfitt á þess- ari stundu að segja nákvæmlega til um fjölda mála sem til rann- sóknar eru,“ útskýrir stofnunin. Beita má stjórnvaldssektum við minni háttar brotum en stærri mál fara til lögreglu. Fjármála- eftirlitið svarar því ekki hvort viðurlögum hafi þegar verið beitt. gar@frettabladid.is Engin svör um meint gjaldeyrishaftasvindl Hvorki Seðlabankinn né Fjármálaeftirlitið vilja upplýsa nokkurn hlut um þau mál sem eru til rannsóknar vegna þess að talið er að farið hafi verið í kring um gjaldeyrishöftin. Herða á eftirlit en samtímis er stefnt að því að minnka höftin. FER GJALDEYRINN Í RÉTTAR HENDUR? Krónan veikist og Seðlbankinn hefur vísað ótilgreindum fjölda mála til Fjármálaeftirlitsins vegna gruns um að farið sé í kring um gjalderyrishöftin. NORDICPHOTOS/GETTY VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 31° 20° 27° 28° 18° 21° 25° 26° 21° 25° 27° 21° 22° 32° 16° 22° 34° 22° 12 9 7 8 8 8 10 12 Á MORGUN 5-13 m/s hægastur sunnan til. SUNNUDAGUR 5-13 m/s, stfastur norðvestan til 16 13 6 8 10 10 10 6 10 5 5 5 8 10 16 6 10 8 10 ÁGÆTT SYÐRA Í dag og alveg fram á sunnudag verður besta veðrið á landinu syðra. Má búast við björtu með köfl um og ágætlega hlýju að deginum, sýnu hlýjast til landsins á suðausturlandi. Norðanlands og aust- an verður vætusamt og svalt og verður svo fram yfi r helgi. Það er nokkuð á reiki hvað gerist eftir helgina. 13 12 8 87 Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur REYKJAVÍK Ólöf Örvarsdóttir hefur verið ráðin skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar. Þetta var samþykkt á fundi borgar- ráðs í gær. Ólöf er arki- tekt að mennt og stundaði nám í Noregi og á Ítalíu. Hún hefur víðtæka reynslu á sviði skipulagsmála og hefur unnið á teiknistofum á Íslandi og Ítalíu. Ólöf hóf störf hjá borgarskipu- lagi 2001. Hún varð aðstoðar- skipulagsstjóri 2007 og hefur gegnt starfi skipulagsstjóra Reykjavíkurborgar frá því í febrúar 2008. Hún er gift Ásgeiri Geirssyni og eiga þau þrjú börn. - kóþ Reykjavíkurborg: Ólöf ráðin sem skipulagsstjóri ÓLÖF ÖRVARSDÓTTIR MENNTAMÁL Þau 40 börn sem eru skráð í Menntaskólann fyrir haustönnina eru öll skráð í ein- hverja aðra skóla, að sögn Eddu Huldar Sigurðardóttur, skóla- stjóra Menntaskólans. Börn sem ekki hafa hafið nám í haust eru í fríi með foreldrum, að sögn Eddu. Menntamálaráðuneytið er nú með umsókn grunnskólans til umfjöllunar og getur ferlið tekið um fjóra mánuði. Edda segir að einhverjir foreldrar hafi sagst ætla að taka börnin úr skólum sem börnin eru skráð í um leið og Menntaskólinn fær starfsleyfi. „Það gefur augaleið að ef það dregst eitthvað að við opnum er ekkert foreldri sem heldur barni sínu frá skóla í langan tíma,“ segir Edda. - vsp Börnin í Menntaskólanum: Öll skráð í aðra skóla samhliða EFNAHAGSMÁL Nefndarmenn pen- ingastefnunefndar Seðlabankans voru sammála um að veigamikil rök hnigju gegn lækkun stýri- vaxta meðan gengi krónunnar var jafnlágt og raun bar vitni. Þetta kemur fram í fundargerð Seðlabankans frá því um miðjan ágúst. Þótt þess sæjust engin skýr merki að fyrri lækkanir stýri- vaxta hefðu haft veruleg áhrif á það að farið hefði verið í kringum gjaldeyrishöftin, fé safnaðist fyrir á gjaldeyrisreikningum eða á veikingu krónunnar almennt, væri samt sem áður ekki hægt að útiloka slík áhrif. Peningastefnunefnd: Rök gegn því að lækka stýrivexti FÓLK Akureyrarvaka var sett í Lystigarðinum á Akureyri í gær- kvöldi. Garðurinn var upplýstur í tilefni þess. Akureyrarvaka markar lok Listasumars á Akureyri og stend- ur hún í dag og á morgun. Á morg- un á Akureyrarbær 147 ára afmæli og verður því fagnað samhliða vökunni. Meðal þess sem er í boði á Akur- eyrarvöku er listasýning í Lysti- garðinum og í Listagilinu. - þeb Akureyrarvaka um helgina: Haldið upp á af- mæli bæjarins DÝRAHALD Hundaræktarfélag Íslands á fjörutíu ára afmæli um þessar mundir og var blásið til afmæl- isveislu fyrir dýr og menn í tilefni af því í gær. Veislan var haldin í reiðhöll Fáks í Víðidal og var höllin full af hundum af öllum stærðum og gerðum. Meðal þess sem í boði var á afmælinu í gær voru fyrirlestrar, tískusýning á hundafatnaði og kynn- ingar á sérþjálfuðum hundum, til dæmis lögreglu- og björgunarhundum. Þá brugðu hundar á leik með eigendum sínum, til að mynda dansaði íslenskur fjárhundur við eiganda sinn og boxerhundur fór í boltaleik við sinn eiganda. - þeb Hundaræktarfélag Íslands er fjörutíu ára gamalt um þessar mundir: Afmæli fyrir hunda og menn AFMÆLINU FAGNAÐ Dagný Eiríksdóttur og hundurinn hennar Chico voru á meðal þeirra sem mættu í afmæl- ið í gær. Chico er 190 sentimetra hár á tveimur fótum og borðar eitt kíló af mat á dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI BRETLAND, AP Breska lögreglan leitar nú ræningja sem hafa framið þrjú vopnuð rán í landinu á undanförnum mánuðum. Í öllum tilvikum hafa ræningj- arnir verið íklæddir búrkum, klæðnaði sem sumar múslimskar konur klæðast og hylur allan lík- ama og andlit. Á þriðjudag var úrum fyrir tug þúsundir punda stolið úr skart- gripabúð í Banbury, norðvestur af London. Tvö svipuð rán hafa verið framin frá því í byrjun júlí og skoðar lögregla nú hvort sömu aðilar voru að verki í öllum tilvik- um. - þeb Ræningjar í Bretlandi: Búrkuklæddir þjófar á ferð AKUREYRARVAKA Vakan er orðin að hefð á Akureyri, þessi mynd er frá hátíðarhöldunum 2007. GENGIÐ 27.08.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 237,2866 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 128,31 128,93 207,57 208,57 182,86 183,88 24,563 24,707 21,117 21,241 17,981 18,087 1,3692 1,3772 199,92 201,12 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.