Fréttablaðið - 28.08.2009, Side 6

Fréttablaðið - 28.08.2009, Side 6
6 28. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR MENNING Þrír umsækjendur um stöðu þjóðleikhússtjóra andmæla umsögn þjóðleikhúsráðs um hæfni umsækjenda. Tveir til viðbótar íhuga hvort þeir andmæli. Alls sóttu níu um stöðuna. Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhús- stjóri og Þórhildur Þorleifsdóttir voru metnar mjög vel hæfar, aðrir hæfir. Andmælendur segja ráðið ekki hafa metið hæfni umsækjenda né rökstutt umsögn sína. Það sé vanhæft til að meta hæfni núverandi þjóðleikhússtjóra, því starf ráðsins sé svo samofið starfi hennar að með því að ganga fram hjá henni hefði ráðið fellt áfellis- dóm um sjálft sig. Ari Matthíasson leikari segir sín andmæli ganga út á að „hæfnismat þjóðleikhúsráðs sé algjörlega órök- stutt og þar með ómálefnalegt“. Hann bendir á að ráðið hafi ekki boðað neinn umsækjanda í viðtal. Hlín Agnarsdóttir leikstjóri seg- ist í sínum andmælum gagnrýna að ráðið hafi ekki lagt neitt mat á menntun og reynslu umsækjenda: „Ég vona að ráðuneytið nýti sér athugasemdirnar og að það fari fram eitthvert endurmat, sérstak- lega í ljósi þess að þetta getur ekki verið hlutlægt mat hjá ráðinu. Ég fer líka fram á að fá atvinnuvið- tal.“ Páll Baldvin Baldvinsson, full- trúi ritstjóra á Fréttablaðinu og kvikmyndaráðgjafi, telur mennta- málaráðherra, sem skipar í stöð- una, eiga þann kost einan að „taka allt ferlið til sín í Skuggahverfið“. Með vinnubrögðum sínum hafi ráðið sannað fyrrgreint vanhæfi. Kolbrún Halldórsdóttir, fyrrum ráðherra, er ekki búin að ákveða hvernig hún bregst við. „Ég varð fyrir vonbrigðum með þessa umsögn og er mjög hugsi yfir henni,“ segir hún. „Þeir ákveða að einungis ein reynsla hafi vægi og það er að stýra stofnanaleikhúsi.“ Hilmar Jónsson, leikhússtjóri Hafnarfjarðarleikhússins, veltir því einnig fyrir sér hvort hann andmæli. Menntamálaráðherra sé í vanda staddur. Ráðherrann, Katrín Jakobs- dóttir, segist ekki tjá sig fyrr en að andmælafresti loknum. „Ráðið hefur ákveðið hlutverk og skilar sinni umsögn. Svo er það mitt mat hvað ég geri,“ segir hún. Spurð hvort ráðið kunni að vera vanhæft, segir ráðherra að lögin geri ekki sérstaklega ráð fyrir því að einn umsækjenda sé sitj- andi þjóðleikhússtjóri: „Þetta er í fyrsta skipti sem sitjandi stjóri sækir um og við bara skoðum það.“ Það ætti að gerast í næstu viku. Sigurður Kaiser framkvæmda- stjóri ætlar ekki að andmæla. Það orki tvímælis að ráðið meti hæfi sitjandi stjóra. Það geti varla tal- ist hlutlaust. Hann treysti þó ráð- herra til að ráða í stöðuna. Hún hafi frjálsar hendur, því allir voru metnir hæfir. klemens@frettabladid.is Mánud gstilboð Hum r 2000,-KR.KG Glæný Laxaflök 1990,-KR.KG NÝJAR GELLUR, SALTFISKUR OG AÐ SJÁLFSÖGÐU GLÆNÝ LÍNUÝSA Þjóðleikhúsráð sagt vanhæft til matsins Þrír umsækjendur af sjö sem metnir voru hæfir til að verða þjóðleikhússtjórar senda ráðherra andmæli sín. Tveir til viðbótar hugsa málið. Ráðið sagt vanhæft og umsögn þess ófullnægjandi. Ráðherra fer yfir andmælin og tjáir sig svo. HLÍN AGNARSDÓTTIR ARI MATTHÍASSON KATRÍN JAKOBSDÓTTIR Hæf og andmæla: Ari Matthíasson, leikari og fyrrum framkvæmdastjóri Hlín Agnarsdóttir, leikstjóri Páll Baldvin Baldvinsson, fulltrúi ritstjóra og kvikmyndaráðgjafi Hæf og íhuga andmæli: Hilmar Jónsson, leikstjóri Hafnar- fjarðarleikhússins Kolbrún Halldórsdóttir, fyrrum leik- stjóri og ráðherra Hæfur og andmælir ekki: Sigurður Kaiser, stofnandi Vestur- ports og framkvæmdastjóri - Mjög vel hæfar: Tinna Gunnlaugsdóttir, þjóð- leikhússtjóri Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri Ekki náðist í einn hæfra umsækjenda: Magnús Ragn- arsson, fyrrum sjónvarps- stjóra. UMSÆKJENDURNIR PÁLL BALDVIN BALDVINSSON LÖGREGLUMÁL Fundur sérstaks saksóknara og yfirmanns efna- hagsbrotadeildar Europol, ásamt fulltrúa Íslands hjá Europol, gekk ljómandi vel, að sögn saksóknar- ans, Ólafs Þórs Haukssonar. Menn- irnir hittust á miðvikudag. Spurður hvort af samstarfi verði milli sérstaks saksóknara og Euro- pol, við rannsóknina á bankahrun- inu, bendir Ólafur Þór á að sam- starfið sé nú þegar til staðar. Ísland hafi haft tengslafulltrúa í höfuðstöðvunum í Haag í tvö ár. „Við vorum að kanna möguleik- ana á því að útfæra þetta sam- starf,“ segir hann. Ólafur Þór segist ekkert geta sagt til um hvernig rætt hafi verið um að útfæra samstarfið. „Ég get ekki skilgreint það nema með því að gefa vísbendingar þeim sem aðgerðir kynnu að beinast að,“ segir hann. Annars fundaði Ólafur Þór með Evu Joly í gær og segir hann hana bæði hafa farið yfir unnið starf og fært fram ákveðnar nýjungar. „Þetta er allt samkvæmt áætlun og á þeim grunni sem lagt var upp með,“ segir sérstakur saksóknari. - kóþ Sérstakur saksóknari þögull um útfærslu samstarfs við Evrópulögregluna: Ljómandi Europol-fundur ÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON Segir fund sinn með Carlo van Heuckelom, yfirmanni efnahagsbrotadeildar Europol, hafa gengið vel. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FJÖLMIÐLAR Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hafa farið fram á opinbera rann- sókn á því hvort Ríkiútvarp- ið hafi gerst sekt um brot á ákvæðum laga um bann við áfengisauglýsingum. Að því er segir í tilkynningu frá samtökunum mátti heyra fjórar áfengisauglýsingar í tveimur auglýsingatímum í lok júlí, „meðal annars eina þar sem vodki var auglýstur, en sú áfengistegund verður sennilega seint talin til „léttöls“,“ segir í tilkynningunni. Ríkisútvarpið hefur neitað samtökunum um upptöku af auglýsingatímanum og vísað til höfundarréttarlaga. - sh Foreldrasamtök í hart: Vilja rannsókn á áfengisauglýs- ingum RÚV DÓMSMÁL Ákæra á hendur Gunnari Viðari Árnasyni fyrir innflutning á ríflega sex kílóum af amfetam- íni til landsins verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Gunnari Viðari er gefið að sök að hafa flutt inn 6,15 kíló af amfeta- míni frá Hollandi til Íslands, falin í málningardósum sem fluttar voru til landsins með hraðsendingar- fyrirtækinu UPS. Efnin fundust við leit tollgæslu og lögreglu 21. apríl í ár. Tveir menn til viðbótar, Sigurð- ur Ólason og Ársæll Snorrason, sátu um skeið í gæsluvarðhaldi vegna málsins en eru ekki ákærð- ir. Aðrir þættir málsins sem snúa að þeim eru enn til skoðunar hjá Ríkissaksóknara. - sh Sex kíló af amfetamíni: Fíkniefnaákæra þingfest í dag MENNTAMÁL Menntamálaráð- herrar og samstarfsráðherrar Norðurlandanna veittu um 135 milljónir króna á árinu til að styrkja íslenska námsmenn á Norðurlöndum sem eiga í fjár- hagserfiðleikum vegna efnahags- kreppunnar. Uppfylltu 292 náms- menn skilyrði til að fá styrkinn. Þrír fengu styrk vegna fram- færslu og ferða í iðnnámi en 289 fengu framfærslustyrki. Lang- flestir þeirra stunduðu nám í Danmörku eða 289. Var þeim veittur framfærslustyrkur í allt að þrjá mánuði. Gert er ráð fyrir að sama upphæð og var í ár verði í boði árið 2010. - vsp Ráðherrar Norðurlanda: Íslenskir náms- menn fá styrki Munt þú sækja einhvers konar nám eða námskeið í haust? Já 36% Nei 64% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ætti að selja Kanadamönnum hlut Orkuveitunnar í HS-Orku? Segðu skoðun þína á Vísi.is AFGANISTAN, AP Nýjustu tölur úr forsetakosningum í Afganistan gefa til kynna að Hamid Karzai, forseti landsins, hafi aukið forskot sitt. Samkvæmt þeim hefur Karzai hlotið 44,8 prósent atkvæða á meðan Abdullah, fyrrum utanríkisráðherra landsins, hefur hlotið 35,1 prósent. Tölurnar eru þó byggðar á 17 pró- sentum atkvæða víðs vegar um landið, og gætu því breyst mikið. Endanlegra úrslita er ekki að vænta fyrr en um miðjan september, þar sem tugi alvarlegra kvartana vegna kosninganna þarf að rannsaka. Miðað við nýju tölurnar hefur Karzai ekki sigrað endanlega í kosningunum. Sigurvegari þarf að fá helming atkvæða, en ef enginn fær svo mörg atkvæði þarf að kjósa aftur á milli tveggja efstu manna. Abdullah hefur sakað Karzai um víðtækt kosninga- svindl, en því hefur Karzai alfarið neitað. - þeb Endanleg úrslit munu ekki liggja fyrir fyrr en um miðjan september: Karzai eykur forskot sitt KOSNINGARNAR Kosningarnar fóru fram í síðustu viku og bæði Karzai og Abdullah lýstu yfir sigri. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.