Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.08.2009, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 28.08.2009, Qupperneq 8
8 28. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR DÓMSMÁL Catalina Mikue Ncogo, sem viður- kennt hefur að hafa gert út hóp vændis- kvenna í Reykjavík, hefur verið ákærð fyrir að fá þrjá Belga, einn karlmann og tvær konur, til að flytja til Íslands samtals ríf- lega 420 grömm af kókaíni. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Annars vegar er um að ræða ferð belg- ísks manns sem kom til landsins í byrjun apríl með tæp 70 grömm af kókaíni innvort- is. Hann strauk úr haldi lögreglu en náðist nokkrum klukkustundum síðar. Catalina hafði meðal annars bókað hótelherbergi fyrir manninn hér á landi. Hins vegar er hún talin hafa fengið tvær belgískar konur til að flytja hingað ríflega 350 grömm af kókaíni innvortis. Þær hafa báðar hlotið dóm í málinu. Þá er Catalina einnig ákærð fyrir að hafa, í leitarklefa toll- gæslunnar í Leifsstöð, bitið í bak lögreglu- manns. Catalina sat um tíma í gæsluvarðhaldi grunuð um mansal og að hafa ætlað að flytja til landsins tólf kíló af kókaíni ásamt kærasta sínum, sem handtekinn var með efnin á Schiphol-flugvelli í Amsterdam. Hún hefur sagt frá því í viðtali að hafa haft á sínum snærum hérlendis tólf vænd- iskonur, sem hún hafi meðal annars gert út úr húsi við hlið lögreglustöðvarinnar á Hverfisgötu. - sh Vændissali ákærður fyrir fíkniefnasmygl og að bíta lögregluþjón í bakið: Catalinu birt ákæra fyrir kókaínsmygl VÆNDISHÚSIÐ Á HVERFISGÖTU Catalina, íslenskur ríkisborgari ættaður frá Miðbaugs-Gíneu, gerði nokkrar vændiskonur út úr þessu húsi. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA JAPAN, AP Taro Aso, forsætisráð- herra Japans, gerir sér litlar vonir um að stjórn hans fái meirihluta á nýju þingi eftir kosningarnar á sunnudag. Skoðanakannanir benda til þess að Lýðræðisflokkur Japans vinni yfirburðasigur og fái tvo þriðju hluta atkvæða. Það myndi duga flokknum til að fá 320 þingsæti af alls 480 í neðri deild þingsins, en sú deild fer samkvæmt stjórnar- skrá með völdin í landinu. Frjálslyndi flokkurinn, sem er flokkur forsætisráðherrans, hefur verið með 300 þingsæti en fær líklega ekki nema 100 á kom- andi þingi. Annað eins afhroð hefur Frjáls- lyndi flokkurinn aldrei beðið í þingkosningum, en hann hefur stjórnað landinu nánast óslitið síðan 1955. Undantekning frá því er stutt tímabil á árunum 1993- 94. Yukio Hatoyama, leiðtogi Lýð- ræðisflokksins, verður væntanlega forsætisráðherra, verði úrslitin í samræmi við skoðanakannanir. Lýðræðisflokkurinn er reyndar íhaldssamur flokkur, ekki síður en Frjálslyndi flokkurinn, enda upphaflega klofningsframboð úr Frjálslynda flokknum. Standi Lýð- ræðisflokkurinn við kosningalof- orð sín er engu að síður að vænta verulegra breytinga á stefnu Jap- ans í mörgum málum. - gb Breytingar væntanlegar eftir þingkosningar í Japan: Búist við stórtapi hjá stjórnarflokknum TARO ASO Forsætisráðherra Japans veifar til kjósenda úr bifreið sinni. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Tólf manns af erlendu bergi brotnir hafa á síð- ustu dögum verið blekktir til að kaupa ónothæfa flugmiða í gegn- um svikamyllu á vefnum. Lög- reglan á Suðurnesjum varar við þessu. Allt fólkið var stöðvað í Leifs- stöð þegar í ljós kom að greitt hafði verið fyrir miða þeirra með stolnu greiðslukorti. Fólkið tengdist ekki innbyrðis, en hafði allt keypt miða sína á netinu af óþekktum millilið sem bauð mið- ana á mjög góðu verði. Því var síðan sagt að gefa upp bókunar- númer við komuna í Leifsstöð, þar sem svikin uppgötvuðust. - sh Tólf blekktir í viðskiptum: Varað við flug- miðasvikurum Í LEIFSSTÖÐ Allir sem hafa verið blekktir eru af erlendu bergi brotnir og talið er að svikarinn sé útlendur. VIÐSKIPTI Stjórn Össurar hf. óskaði í gær eftir að hlutabréf félagsins yrðu skráð í Kauphöll Danmerkur. Gert er ráð fyrir að skráningin verði samþykkt í næstu viku. Í dönsku kaup- höllinni eru 180 fyrirtæki og verður Össur 36. stærsta fyrirtækið þar. „Það eru engin áform um að flytja starfsem- ina úr landi,“ segir Jón Sig- urðsson, forstjóri Össurar hf.. Eingöngu sé um eðlilegt skref að ræða sem hafi verið lengi í undirbúningi. „Þetta er til þess að þjón- usta betur þá erlendu aðila sem eiga í Össuri því með gjaldeyrishöftunum geta þeir ekki átt viðskipti með hlutabréfin,“ segir Jón. Um helmingur hlutabréfa Öss- urar er í eigu erlendra aðila og hefur Össur nú fengið undanþágu frá gjaldeyrislögum frá Seðlabankanum. Ákveðnar takmarkanir eru þó á undan- þágunni en þeir sem keyptu hlutabréf eftir 1. apríl mega ekki fara með hlutabréfin úr landi. Segir Jón að einungis hafi örfáir aðilar versl- að með hlutabréf Össurar síðan þá og eigi því takmörkin við um fáa. Einnig er skilaskylda á þeim gjaldeyri sem fæst við sölu Íslendinga á hlutabréfum. „Það er ljóst að þessi gjaldeyrishöft eru verulega íþyngjandi fyrir íslenskt atvinnulíf,“ segir Jón. Um 99,5 prósent af sölu Össurar fer fram erlendis. Allur hagnaðurinn kemur þó í gegnum Ísland, þar sem höfuðstöðvarnar eru hér. Þróunardeild fyrirtækisins er einnig á Íslandi og fer veruleg framleiðsla á flóknari stoðtækjum fram hér á landi. Aðeins starfa um 250 af 1.600 starfsmönnum Össurar á Íslandi. Össur mun áfram vera skráð í Kauphöll Íslands, eins og fyrirtækið hefur verið frá árinu 1999. Stækka á hlutafé Össurar við skráninguna um 5 til 7 prósent. „Stækkun hlutafjárins er til þess að auka seljanleika bréfanna því það vill enginn eiga hlutabréf á Íslandi,“ segir Jón sem gerir ráð fyrir að erlendir aðilar verði duglegir að selja hlutabréf sín um leið og skráningin verður samþykkt. Íslenska fyrirtækið Marel stefnir einnig á tvöfalda skráningu erlendis í Amsterdam eða Skandinavíu með það að markmiði að fram- kalla skilvirka verðmyndun hlutabréfa á ný. vidir@frettabladid.is Össur ætlar ekki úr landi Össur hf. hefur óskað eftir því að vera skráð í Kauphöll Danmerkur. Fékk undanþágu frá gjaldeyrislögum til þess að erlendir aðilar gætu átt viðskipti með hlutabréf. Marel hefur einnig áhuga á skráningu erlendis. JÓN SIGURÐSSON ALÞINGI Vegna laga njóta við- skiptalegar upplýsingar um bankana verndar. Þar af leiðir að fjármála- ráðherra telur sér ekki unnt að svara fyrir- spurn Eyglóar Harðardóttur Framsóknar- flokki um verð- tryggingar- og gjaldeyrisjöfn- uð bankanna. Eygló hefur áður spurt ráðherrann um mál- efni tengd bönkunum og fékk þá sömu svör. Í svarinu nú kemur fram að ársreikningar bankanna muni liggja fyrir í september og að í framhaldi þess megi reikna með að opinber upplýsingagjöf þeirra færist í eðlilegt horf. - bþs Eygló spyr um bankana: Má ekki segja EYGLÓ HARÐARDÓTTIR DÓMSMÁL Karlmaður á fertugs- aldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, en honum er gefið að sök að hafa í nóvember í fyrra stungið táning með hnífi í síðuna. Sá stungni hlaut þriggja sentimetra langan og tveggja sentimetra djúpan skurð. Maðurinn neitar sök og ber við neyðarvörn. Þá er maðurinn jafnframt ákærður fyrir að hafa haft tíu e- töflur í fórum sínum í klefa á lög- reglustöðinni við Hverfisgötu. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. - sh Maður á fertugsaldri ákærður: Stakk táning í Bankastræti Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir tví- skráningu ekki algenga meðal íslenskra fyrirtækja en reynslan sé góð. Til dæmis þegar Kaup- þing var skráð í Svíþjóð og hér heima. „Við fögnum þessu og teljum að þetta gæti jafnvel aukið viðskipti með hlutabréf Össurar,“ segir Þórður. Jákvæð áhrif hafa orðið hér heima á veltu fyrirtækja sem tvískrá og neikvæð áhrif tví- skráningar Össurar verða líklega takmörkuð, að mati Þórðar. Spurður hvort hann haldi að fleiri félög séu að hugsa slíkt hið sama segir hann að Marel hljóti að velta slíku fyrir sér þegar kemur í ljós hver reynsla Össurar verður. Önnur fyrirtæki en þessi tvö séu meira tengd innlenda markaðnum. Fjórtán fyrirtæki eru nú skráð í Kauphöllina og fækkaði eftir hrun. „Við erum þeirrar trúar að það sé að skapast traust til að skrá fleiri fyrirtæki. Það kæmi á óvart ef það gerðist ekki innan tiltölulega skamms tíma að einhver fyrirtæki létu á það reyna hvort það væri skynsamleg leið til fjármögnunar að skrá sig í Kaup- höllina,“ segir Þórður. Segir hann til dæmis tölvuleikjafyrirtækið CCP velkomið í Kauphöllina. KAUPHÖLLIN FAGNAR TVÍSKRÁNINGU ÞÓRÐUR FRIÐJÓNSSON KAUPHÖLLIN Forstjóri Kauphallarinnar segir að neikvæð áhrif tvískrán- ingar séu takmörkuð. Reynslan hingað til sé góð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LÚÐUVEISLA FLÖK OG SNEIÐAR AÐEINS 1.890 kr. Tilboðið gildir í dag Óska eftir að kaupa íslensk enskt lingapon tungumála námskeið. Sem er útgefi ð ár 1976, 1977 eða 1978 en ekki English Course. En útgáfuárið er auðfundið fremst í bókum , námskeiðið sem mig vantar er alíslenskt og var á sínum tíma mikið auglýst, lærið ensku á 40 tímum, án efa eiga margir námskeiðið á vísum stað uppí hillu. Utan á aðalbók námskeiðisins stendur íslenskt – Enskt lingapon Vinsamlega hringið strax og þú lest auglýsinguna, ég slökkvi á gemsanum eftir að ég hef fengið námskeiðið. Ég borga 40,000.- fyrir námskeiðið. Ómar s. 865-7013 1. Hvaða Kennedy-bróðir lét lífið í vikunni? 2. Hvaða kvikmyndagerðar- maður ætlar að endurgera myndina Hringinn? 3. Hvaða ungi knattspyrnu- maður skoraði mark í fyrsta leik sínum í efstu deild á mið- vikudag? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34 VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.