Fréttablaðið - 28.08.2009, Qupperneq 10
10 28. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR
ÞÝSKALAND, AP Forsætisráðherra
Ísraels hefur í vikunni heimsótt
bæði bresk og þýsk stjórnvöld
ásamt því að hitta George Mit-
chell, erindreka Bandaríkjastjórn-
ar gagnvart Mið-Austurlöndum.
Jafnt Mitchell sem Gordon
Brown, forsætisráðherra Breta, og
Angela Merkel Þýskalandskanslari
hafa lagt hart að Netanjahú að gera
allt sem í hans valdi stendur til að
hægt verði að hefja á ný friðar-
viðræður við Palestínumenn. Til
þess að svo megi verða þarf hins
vegar að finnast lausn á deilum um
landtöku Ísraela á hernumdu svæð-
unum, bæði á Vesturbakkanum og
austurhluta Jerúsalem.
„Við verðum að ná framförum í
friðarferlinu,“ sagði Merkel á sam-
eiginlegum blaðamannafundi með
Netanjahú í Berlín í gær, „og stöðv-
un landnámsins er mjög mikil-
væg.“
Á þessum blaðamannafundi
lögðu þau bæði jafnframt áherslu
á að stjórnvöld í Íran stöðvi kjarn-
orkuáætlanir sínar, ella megi þau
eiga von á harðari refsiaðgerðum.
Ísraelar hafa miklar áhyggjur af
kjarnorkuáformum Írans. Orðróm-
ur hefur verið um að Bandaríkja-
stjórn hafi lofað Netanjahú því að
þrýsta harðar á Írana gegn því
að Ísraelar stöðvi landtökufram-
kvæmdir. Netanjahú segir hins
vegar ekkert hæft í þeim orðrómi.
Bandaríkjastjórn hefur gefið
Írönum frest fram í miðjan sept-
ember, en um það leyti hefst einn-
ig Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna í New York.
Daginn áður höfðu bæði Ísrael-
ar og Palestínumenn gefið í skyn að
hugsanlega myndu leiðtogar þeirra,
þeir Netanjahú og Mahmoud Abbas,
hittast á Allsherjarþinginu.
Netanjahú virðist gera sér vonir
um að hefja viðræður við Abbas
þar, en Palestínumenn hafa til
þessa sagt að viðræður geti ekki
hafist fyrr en Ísraelar verði við
kröfu Bandaríkjastjórnar um að
stöðva allar nýframkvæmdir í land-
tökubyggðum.
Heimsókn Netanjahús til Þýska-
lands varð einnig tilefni til að
minna á helför gyðinga á tímum
nasista. Honum voru meðal annars
færð frumeintök af teikningum
nasista að útrýmingarbúðunum í
Auschwitz, sem fundust í Berlín á
síðasta ári. Þessar teikningar verða
til sýnis í Helfararsafninu Yad Vas-
him í Jerúsalem.
„Þeir eru til sem neita því að hel-
förin hafi átt sér stað,“ sagði Net-
anjahú við þetta tækifæri. „Þeir
ættu að koma til Jerúsalem og
skoða þessar teikningar, þessi plön
um verksmiðju dauðans.“
gudsteinn@frettabladid.is
Landtaka hindrar viðræður
Landtökustefna ísraelskra stjórnvalda er það sem hindrar helst að viðræður við Palestínumenn geti hafist
á ný. Benjamín Netanjahú gerir sér vonir um að hitta Abbas á þingi Sameinuðu þjóðanna í september.
RÝNT Í TEIKNINGAR ÚTRÝMINGARBÚÐA Benjamín Netanjahú skoðar ásamt Ralph
Georg Reuth, sagnfræðingi í Berlín, frumeintök af teikningum nasista að útrýmingar-
búðunum í Auschwitz. Netanjahú fékk þessar teikningar afhentar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ALÞINGI Sigmundur Ernir Rúnars-
son, þingmaður Samfylkingarinn-
ar, baðst í gær afsökunar á mis-
tökum sem hann kvaðst hafa gert
á þingfundi
fyrir réttri
viku.
Sigmundur
tók þátt í um-
ræðum á nefnd-
um fundi eftir
að hafa drukkið
vín með kvöld-
verði í hófi MP
banka að loknu
golfmóti bank-
ans.
Í yfirlýsingu á miðvikudag
sagðist Sigmundur ekki hafa
kennt áhrifa af víninu.
- bþs
Sigmundur Ernir Rúnarsson:
Baðst góðfús-
lega afsökunar
SIGMUNDUR ERNIR
RÚNARSSON
Jón spyr um lögguna
Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokki
hefur lagt fram fyrirspurn til dóms-
málaráðherra um framvindu lögreglu-
mála sem tengjast mótmælaaðgerð-
unum síðastliðinn vetur.
Og um laun
Þá spyr Jón fjármálaráðherra hve
mikið hefur verið greitt úr ríkissjóði
vegna launaálags formanna stjórnar-
andstöðuflokka, hve margir hafi
fengið slíkt launaálag og hve mikið
hver og einn fékk.
ALÞINGI
MÓTMÆLANDI REYKIR Í Lundúnum
hafa hundruð mótmælenda sett upp
tjaldbúðir til að mótmæla loftslags-
breytingum. Þessi blómarós gat ekki
stillt sig um að fá sér sígarettu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært átján ára stúlku fyrir að
hafa logið upp á fjóra menn að
þeir hefðu nauðgað henni. Menn-
irnir voru úrskurðaðir í gæslu-
varðhald á grundvelli ásakan-
anna. Þung refsing getur legið
við röngum sakargiftum af þessu
tagi.
Það var 4. nóvember í fyrra sem
stúlkan hafði samband við lög-
reglu og sagði að mennirnir fjór-
ir hefðu nauðgað henni í húsi ofan
við Sundahöfn í Reykjavík. Hún
ítrekaði síðan framburðinn síðar,
en breytti honum á þann veg að
líklega hefði einn mannanna ekki
haft við hana samræði.
Mennirnir voru handteknir í
kjölfarið, yfirheyrðir, látnir gang-
ast undir líkamsrannsókn og síðan
úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þeir
gengust við því að hafa haft við
hana samræði, en fullyrtu að
það hefði verið með hennar vilja.
Mennirnir sátu í varðhaldi í tvo
daga.
Stúlkan hefur nú verið ákærð
fyrir rangan framburð og rang-
ar sakargiftir, en hámarksrefs-
ing fyrir slíkt er tíu ára fangelsi.
Einn mannanna krefst tæplega 1,2
milljóna króna í skaðabætur og
annar krefst hálfrar milljónar.
Ákæran var þingfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. - sh
Stúlku gert að sök að hafa logið upp á fjóra menn:
Ákærð fyrir að ljúga til um nauðgun
SUNDAHÖFN Stúlkan sagði mennina
hafa nauðgað sér í húsi fyrir ofan
Sundahöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MENNTAMÁL Innritun í framhalds-
skóla fyrir haustönn 2009 er nú
lokið. Öllum var boðin skólavist af
þeim sem eru yngri en 18 ára, en
lög kveða á um fræðsluskyldu til
þess aldurs. Um 96 prósent nem-
enda úr 10. bekk sóttu um skóla-
vist og eru flestir skólar á höfuð-
borgarsvæðinu fullir. Einhver
sæti gætu þó verið laus á lands-
byggðinni.
Vegna aðsóknar fengu margir
nemendur ekki inni í þeim skóla
sem þeir völdu. Nokkur hundruð
nemendur yfir 18 ára hafa ekki
fengið skólavist og munu önnur
úrræði vera þeim til handa, að
sögn menntamálaráðuneytis. - vsp
Innritun í framhaldsskóla:
Enn sæti laus á
landsbyggðinni
FÓLK „Við hittumst, ég og Rúnar,
nokkrum dögum fyrir andlát hans
og ákváðum að gera styttu,“ segir
Rúnar Hartmannsson. Hann hefur
lokið við gerð styttu af tónlistar-
manninum Rúnari Júlíussyni, sem
lést 5. desember síðastliðinn.
„Þegar hann lést var spurning
hvað ég myndi gera, og ég tók þá
ákvörðun að halda áfram þrátt
fyrir að við hefðum aldrei rætt
fjármálahliðina,“ segir Rúnar.
Hann segir þá nafna hafa talið lík-
legt að Reykjanesbær myndi vilja
kaupa styttuna, til að hafa í eða við
Hljómahöllina sem Rúnar heitinn
hafði unnið að. „Ég ákvað að halda
áfram og leggja bæði vinnu og pen-
inga í að klára styttuna þó að ég sé
nú ekki efnaður maður. Svo hafði
ég samband við þá hjá bænum um
hvort þeir hefðu áhuga fyrir stytt-
unni. Þeir svöruðu mér síðan í gær
[miðvikudag] og sögðu að þeir ætl-
uðu ekki að leggja þessu lið.“
Að sögn Rúnars þýðir það bara
eitt: „Styttan er bara til sölu fyrir
hvern sem er. Það verður bara
þannig.“
Rúnar segist hafa talið víst að
bærinn myndi vilja að koma að
málinu. „Sérstaklega því það hefur
verið mikið talað um að gera eitt-
hvað fyrir Rúnar, þar sem hann
var stórt númer hér í bæ.“ - þeb
Reykjanesbær vill ekki styttu af Rúnari Júlíussyni:
Stytta af Rúnari Júl
í fullri stærð tilbúin
STYTTAN Rúnar Hartmannsson við
styttuna af Rúnari Júlíussyni heitnum.
Styttan er til sölu. VÍKURFRÉTTIR/HILMAR BRAGI