Fréttablaðið - 28.08.2009, Side 19
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
BORGARLEIKHÚSIÐ stendur fyrir opnu húsi laugardaginn
29. ágúst. Þar verður boðið upp á vöfflur og kaffi, líf og fjör verð-
ur á öllum sviðum og skemmtidagskrá í forsalnum allan daginn.
Einnig verður boðið upp á skoðunarferð um leikhúsið og skoð-
að bak við tjöldin. www.borgarleikhus.is
„Ég hætti við graskerssúpuleit-
ina þar sem það fást hvort sem
er svo sjaldan grasker á Íslandi.
Ég var að grúska á netinu þegar
þessi sætkartöflusúpa varð á vegi
mínum og hef ég eldað hana oft en
krakkar eru mjög hrifnir af henni,
enda sæt og mjúk, með smá sýr-
ópi og rjóma,“ segir Ásta Guðrún
sem er í fæðingarorlofi númer tvö
þessa stundina og þekkt í vinahóp
sínum fyrir framúrskarandi takta
í eldhúsinu. „Ég er mikið fyrir að
elda súpur, enda bæði ódýrar og
hollar og svo bý ég oft til stærri
skammta og frysti afganginn í
plastboxum. Ég veit eiginlega fátt
betra en góða heimagerða súpu á
vetrarkvöldum,“ segir Ásta en hún
hefur gjarnan brauð með sem með-
læti og salat ef hún er í extra stuði.
juliam@frettabladid.id
Eldar súpur og frystir
Ásta Guðrún Jóhannsdóttir er mikill súpukokkur en í leit sinni að uppskrift að graskerssúpu fann hún
sætkartöflusúpu sem er mjög vinsæl hjá eldri og yngri meðlimum fjölskyldunnar.
Ástu Guðrúnu Jóhannsdóttur þykir fátt betra en heitar súpur yfir vetrartímann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
2 msk. smjör
1 laukur, gróft saxaður
1 miðlungsstór blaðlauk-
ur, gróft saxaður
2 hvítlauksrif, smátt
skorin
800 g sætar kartöflur,
skornar í bita
1 l grænmetissoð
1 kanilstöng
1/4 tsk. múskat
3 dl matreiðslurjómi
2 msk. hlynsíróp
Bræðið smjörið í potti,
bætið lauknum út í og
látið krauma í 5 mínút-
ur. Bætið næst við blað-
lauknum og hvítlaukn-
um og látið krauma í
5 mínútur til viðbótar.
Bætið sætu kartöflun-
um, grænmetissoðinu,
kanilstönginni og
múskatinu við. Látið
suðuna koma upp og
leyfið öllu að malla í
30 mín. Veiðið kanil-
stöngina upp úr og
maukið súpuna. Hægt
er að nota töfrasprota
eða ausa súpunni
í skömmtum í mat-
vinnsluvél. Þegar búið
er að mauka súpuna
er rjóma og hlynsírópi
bætt við og súpan látin
hitna vel í gegn.
LJÚF SÚPA ÚR SÆTUM KARTÖFLUM
FYRIR 4-6
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
H
ri
n
g
b
ro
t
6.890 kr.
4ra rétta tilboð
og nýr A la Carte
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn
með sérvöldu víni með hverjum rétti: 10.990 kr.
Barolo „Ornato“ 2004 | Ítalía.
Chablis Grand Cru ,,Les Clos” 2005 | Frakkland
Glas af eðalvíni
Nú hefur veitingahúsið Perlan bætt við möguleikanum að velja
sér glas af 16 eðalvínum með mat. Verð frá 1.050-3.700 kr.
Sjá nánar á perlan.is.
· Reykt önd með fíkjum, valhnetum og rauðvínsgljáa ·
· Humarsúpa rjómalöguð með grilluðum humarhölum ·
· Lambahryggur með lambaskanka og rósmarínsósu ·
* E Ð A *
· Fiskur dagsins útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar ·
· Skyr “Tonka crème brûlée” með karamelluís ·