Fréttablaðið - 28.08.2009, Side 20

Fréttablaðið - 28.08.2009, Side 20
 28. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR2 KVIKSKYNJUN er ný sýning sem opnuð verður á Torginu í Þjóðminjasafni Íslands á laugardaginn klukkan 11. Á sýningunni má sjá verk blindra og sjónskertra barna. Við sýningaropnunina býðst gestum einnig að skoða snertisafn Þjóðminjasafnsins. Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja MEÐ TUDOR „Við gerum þetta til þess að heiðra íslenska hundinn,“ segir Sigríður Sjöfn Helgadóttir, sýningarstjóri landbúnaðarsýningarinnar Glætu 2009, en þar mun fara fram feg- urðarsamkeppni íslenska hunds- ins á morgun. „Við viljum lyfta honum aðeins á stall.“ Sigríður segir þetta ekki form- lega hundasýningu. „Þetta er frekar gert til þess að íslenski hundurinn fái að njóta sín og getur hvaða íslenskur hundur sem er komið, hann þarf ekki að vera í neinu félagi. Við vild- um líka pressa á það að þeir sem ekki eru í félögum myndu þora að koma,“ útskýrir Sigríður og held- ur áfram: „Svo koma hundaeig- endur með sinn hund og ganga í einn til tvo hringi eða standa uppi á sviði, allt eftir því hvað hundur- inn býður upp á.“ Aðspurð segir Sigríður að álitsgjafi í fegurðarsamkeppn- inni verði Sigríður Pétursdóttir á Ólafsvöllum sem er alþjóðleg- ur dómari og veitir hún álit sitt á fegurð hundanna. „Við fáum í firmakeppnum í hestamennsk- unni tvo heiðursálitsgjafa, ekki dómara, sem gert er til að hafa gaman. Það er misjafnt hvað fólki finnst fallegt,“ upplýsir Sigríður. „Við miðum fegurðarsamkeppn- ina svolítið við firmakeppnir og þar er það ekki einkunn heldur augað sem gildir.“ Sigríður segir þrjá hunda vera skráða til leiks en hún vonast eftir fleirum. „Þannig að ég er alls stað- ar að óska eftir íslenskum hund- um,“ segir hún brosandi. „Það getur líka verið að fólk sé hálfragt við að skrá hundana sína til leiks í fegurðarsamkeppni.“ Skráningu lýkur í kvöld en sýningin verður haldin á morgun klukkan fjögur. Fegurðarsamkeppni íslenska hundsins er liður í landbúnaðar- sýningunni Glætu 2009 sem hald- in er um helgina og er eina land- búnaðarsýningin sem fram fer á landinu í haust. „Þetta er eina landbúnaðarsýningin sem slík.“ Sýningin er haldin í nýrri reiðhöll í Borgarnesi og búist er við um fimm þúsund manns. martaf@frettabladid.is Hundar keppa í fegurð Fegurðarsamkeppni íslenska hundsins verður haldin á morgun á einu landbúnaðarsýningunni sem fram fer á þessu hausti. Er þetta óformleg fegurðarsamkeppni sem gerð er til að heiðra íslenska hundinn. Að sögn Sigríðar munu hundarnir standa uppi á sviði eða labba í hringi, allt eftir því hvað hundurinn býður upp á. MYND/JÓHANNA G. HARÐARDÓTTIR Útsala • Úlpur • Kápur • Jakkar Glæsilegar yfirhafnir. 50% afsláttur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.