Fréttablaðið - 28.08.2009, Síða 22
2 föstudagur 28. ágúst
núna
✽hönnun og tíska
þetta
HELST
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Arnþór Birkisson Ritstjórn Anna M. Björnsson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
• Getur hafi ð nám hvenær sem er
• Kennt 1 x viku frá kl. 18-22
• Gæðavörur frá Professionails notaðar við kennslu
• Kennarar með kennararéttindi frá skóla Professionails
í Belgíu
• Glæsilegur nemendapakki ásamt vandaðri
naglaslípivél og naglalampa.
• Ýmsir möguleikar við fjármögnun námsins
• Næsta námskeið hefst 14. september
• kennt 4 x viku í 14 vikur
• Glæsilegur nemendapakki
• Kennt er með hinum frábæru glominerals
förðunarvörum frá USA
• Ýmsir möguleikar við fjármögnun námsins
• Nýir kennarar
SNYRTISKÓLI - naglaskóli - förðunarskóli - fótaaðgerðaskóli
S N Y R T I -AKADEMÍAN
ODDNÝ STURLUDÓTTIR BORGARFULLTRÚI
Helgin mun hefjast með rómuðu kósýkvöldi á föstudagskvöldi. Á laugardaginn er
svo sumarferð Samfylkingarinnar á dagskrá sem er sem betur fer barnvæn. Mos-
fellsdalur, Þingvellir, Laugarvatn, sund, grill og hestasýning. Á sunnudaginn er svo
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn á dagskrá, síðasti séns fyrir veturinn.
H önnuðurinn Sruli Recht opnar ásamt listakonunni
Megan Herbert nýja búð á Granda
á laugardaginn. Hún ber nafnið
Vopnabúrið, eða The Armoury, og
er vel falin meðal ryðgandi skipa
og yfirgefinna fiskverkunar-
stöðva við höfnina í Reykjavík,
að Hólmaslóð 4.
„Ég hef lengi verið hrifinn af
svæðinu á Granda enda hef ég
verið með vinnustofu mína á
nokkrum stöðum á þeim slóð-
um,“ segir Sruli sem er að leggja
lokahönd á uppsetningu búð-
arinnar þegar blaðamaður slær
á þráðinn. „Mig langaði líka að
vera örlítið frá miðbænum og
fannst þetta „fishpacking distr-
ict“ hafa skemmti-
legan sjarma,“
segir hann.
Hugmynd-
in að verslun-
inni vaknaði með þeim
Megan í vor og
hafa þau í sumar
unnið að því
að gera upp
húsnæðið.
Í Vopna-
búrinu verða
til sölu vörur Srulis úr línu hans
„non-products“ ásamt mynd-
skreyttum verkum úr sögum eftir
Megan.
Sruli hefur vakið nokkra at-
hygli fyrir línu sína en margar
vörur hans eru úr verkefni sem
hann tók sér fyrir hendur í upp-
hafi árs sem miðaði að því að
koma fram með eitt verkefni
í hverjum mánuði. Nokkur
þeirra hafa þegar vakið at-
hygli og hlotið verðlaun.
Má þar nefna regnhlífina
Umbuster og beltið ~Elt
Formleg opnun Vopna-
búrsins hefst klukkan 16 á
laugardag og stendur til klukkan
18. - sg
Sruli Recht opnar búð á Granda:
VEL FALIÐ VOPNABÚR
SÝNING RUE DU MAIL vakti mikla
athygli í París á síðustu tískuviku, sér
í lagi fyrir mikinn glimmeraugnskugga
sem kemur sterkur inn í haust.
Ísbjarnarmotta
Eitt fyrsta verkefni
Srulis í non-product
línunni.
Umbuster Regnhlíf sem unnið hefur
til verðlauna enda stórskemmtileg
hönnun hér á ferð.
Vinkonurnar Elma Lísa Gunnars-
dóttir og Silja Hauksdóttir verða
með skemmtilegan fatamarkað
á laugardaginn í húsnæði Félags
íslenskra leikara á Lindargötu 6.
„Það verða alls kyns falleg föt til
sölu, fylgihlutir, skór og skart,“
segir Elma en einmitt á laugar-
daginn verður Þjóðleikhúsið með
opið hús þar sem vetrardagskráin
er kynnt og ýmislegt sprell verður
í gangi fyrir alla fjölskylduna.
„Við verðum með heitt á könn-
unni, Soffía frænka kíkir til okkar
á fatamarkaðinn og svo klukkan
fjögur verðum við með uppboð á
tveimur búningum úr Þjóðleik-
húsinu. Fatamarkaður Elmu og
Silju verður opinn frá klukkan 11
til 18. - amb
Elma Lísa og Silja Hauks með fatamarkað:
Fjör og óvæntar
uppá komur
Smekklegar stöllur Þær Silja Hauksdóttir og Elma Lísa selja af sér spjarirnar á laugardag
Segurmo lokað á
mánudag
Veitingastaðurinn vinsæli Segurmo,
sem rekinn er af Núma stjörnu-
kokki, mun leggja upp laupana
næsta þriðjudag.
Nýr staður er
víst væntanleg-
ur á barinn Bos-
ton í staðinn en
ljóst er að marg-
ir munu sakna
hinnar frábæru
eldamennsku
á góðu verði sem Segurmo bauð
upp á. Mánudagskvöldið er síðasti
séns til að snæða hinn undursam-
lega Segurmo-plokkfisk.
Ljósmyndara vantar
fyrirsætur
Brad Harris,
ljósmyndari frá
New York, leit-
ar að fólki til að
vera á myndum sem hann ætlar að
taka núna á laugardag og sunnu-
dag. Tökurnar fara fram rétt fyrir
utan bæinn og verða landslags-
myndir með fólki á. Brad, sem er
þekktur ljósmyndari vestra segist
ekki vilja alvöru fyrirsætur held-
ur bara venjulegt fólk. Áhuga-
samir geta haft samband við
Margréti Erlu Maack á Face-
book.
Breiðhyltingar slá í gegn
Hljómsveitin Nolo hefur trónað
á toppi Gogoyoko-„playlistans“
undanfarnar vikur en þessi áður
óþekkta rokksveit saman stendur
af nokkrum ungum
Breiðhyltingum.
Unnendum Nolo
gefst í kvöld kostur
á að hlýða á sveitina, en hún mun
troða upp á skemmtistaðnum Ka-
ramba ásamt Weapons.
Mér fannst þetta „fish-
packing district“ hafa
skemmtilegan sjarma
helgin
MÍN