Fréttablaðið - 28.08.2009, Síða 25
28. ágúst föstudagur 5
NDUN
inni og hverja einustu mínútu er
eitthvað í gangi í hausnum á mér,“
segir Saga sem hefur verið önnum
kafin undanfarna mánuði.
„Ég búin að vinna rosalega
mikið í vetur og taka myndir
endalaust. Það verður gaman að
sjá allt koma út sem ég er búin
að vera að gera, en þar á meðal
eru myndaþættir í tískublöðum í
Noregi, Frakklandi, Þýskalandi og
tvær auglýsingaherferðir fyrir Ad-
olfo Dominguez, en þau eru með
200 búðir úti um allan heim svo
það er mjög stórt verkefni. Ég tók
líka myndir fyrir Dazed Digital og
gerði einn myndaþátt fyrir Dazed
and Confused sem ég er rosalega
spennt að sjá. Að mynda fyrir
Dazed and Confused er nokkuð
sem ég ætlaði alltaf að gera og
var búin að setja niður plan um
að gera það innan tveggja ára, en
þau höfðu bara samband að fyrra
bragði svo ég var náttúrulega
ótrúlega ánægð með það.“
EKKI Á HEIMLEIÐ
Aðspurð segist Saga kunna vel við
sig í London. „Mér finnst London
æðisleg borg. Það er svo mikið
af ungu fólki þar og stemningin
skemmtileg. Það er líka auðvelt
að fá tækifæri ef maður er dug-
legur og fólk er almennt opið fyrir
nýjum hugmyndum,“ segir hún,
en viðurkennir að bæði námið og
húsaleigan séu rándýr. „Þetta var
erfiður vetur eins og hjá öllum, en
ég fékk mikinn stuðning frá fjöl-
skyldu minni, var dugleg að vinna
og það reddaði mér alveg að fá
nokkur „freelance“-verkefni. Mér
finnst það besta sem fólk getur
gert núna vera að fara í nám. Það
er svo góð fjárfesting fyrir lífið.
Ég myndi ekki vilja vera að vinna
hér á Íslandi og fá greitt í íslensk-
um krónum. Frekar vil ég berjast
úti og vera áfram þar. Það eru for-
réttindi að geta verið í námi og
mér finnst það ótrúlega gaman
svo ég mun aldrei gefast upp,“
útskýrir Saga og segist ekki búast
við að flytja heim að námi loknu.
„Ég sakna þess stundum að vera
heima, en ég held að það sé ekki
mikið að gera í ljósmyndun hérna.
Ég sé fyrir mér að búa í London í
minnst fimm ár og fara svo eitt-
hvað annað. Mig langar líka ein-
hvern tíma að búa í New York og
kannski París. Þó ég flytji ekki til
Íslands á næstunni þá finnst mér
alltaf jafn gott að koma heim.
Þegar ég kem reyni ég að taka
sem mest af myndum enda eru
það myndirnar sem fá mesta at-
hygli úti og ég á vonandi eftir að
geta gert sem flest verkefni hérna
heima.“
Bólurnar á bak og burt
Frá Clinique er kominn leirmaski
sem inniheldur efni sem draga úr
bólumyndun og útbreiðslu þeirra.
Maskinn er fitumettandi og slípar
dauðar húðfrumur svo húðholur
stíflast ekki og húðin verður fersk-
ari og hreinni. Clinique hefur einn-
ig sett á markað nýjan hyljara sem
meðhöndlar bólur ásamt því að hylja
þær. Anti-Blemish Clearing-hyljarinn
dregur úr fitumyndun, roða, ertingu
og kemur í veg fyrir að húðin stíflist.
Hyljarinn gefur náttúrulega áferð og
hann má nota með öllum olíulausum
farða. Hann fæst í mismunandi lita-
tónum ásamt grænum lit sem dreg-
ur úr roða.
Ný og glæsileg stundaskrá hefst 7. sept. nk
Birt með fyrirvara um breytingar og prentvillur
Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur
06:30-07:20 Brjáluð brennsla-Svava 6:20-07:10 Spinning-Lára 06:30-07:20 Brjáluð brennsla-Svava 6:20-07:10 Spinning-Lára 06:30-07:20 Brjáluð brennsla-Svava 9:15-10:15 MRL-Callie
06:45-07:30 Gravity (lok.)-Ása 07:15-08:00 Gravity (lok.)-Lára 06:45-07:30 Gravity (lok.)-Ása 07:15-08:00 Gravity (lok.)-Lára 06:45-07:30 Gravity (lok.)-Ása 10:20-11:20 Kviðbani-Callie
07:30-08:30 Kundalinijóga-Estrid 09:00-10:00 Kvennasm. (lok.) -Heiðrún 07:30-08:30 Kundalinijóga-Estrid 09:15-10:15 Tækjakennsla-Heiðrún 07:30-08:30 Kundalinijóga-Estrid 10:25-11:25 BodyCombat-Nanna/Sæunn
09:15-10:00 Gravity (lok.)-Patricia 09:15-10:15 Móðir og barn-Helga 09:15-10:00 Gravity (lok.)-Patricia 09:15-10:15 Móðir og barn-Helga 09:15-10:00 Gravity (lok.)-Patricia 10:30-11:15 Gravity (lok.)-Kojak
10:15-11:15 Leikfimi-Olga 12:00-12:45 Gravity (lok.)-Patricia 10:15-11:15 Leikfimi-Olga 12:00-12:45 Gravity (lok.)-Patricia 10:15-11:15 Leikfimi-Olga 11:30-12:30 Magadans framh.-Sigga
12:05-12:55 BodyStep-Svava 12:05-12:55 Hádegispúl-Callie 12:05-12:55 BodyStep-Svava 12:05-12:55 Hádegispúl-Callie 12:05-12:55 BodyStep-Ása Sunnudagur
12:10-12:55 Gravity (lok.)-Kojak 13:30-14:30 Leikfimi-Nana 12:10-12:55 Gravity (lok.)-Kojak 13:30-14:30 Leikfimi-Nana 12:10-12:55 Gravity (lok.)-Kojak 10:15-11:15 BodyPump-Hildur/Patricia
16:20-17:15 Leikfimi-Olga 16:15-17:15 MRL-Callie 13:30-14:30 Pilatesleikfimi-Beta 16:15-17:15 MRL-Callie 16:20-17:15 Leikfimi-Olga 11:20-12:20 Salsa-Þórunn
16:30-17:15 Gravity (lok.)-Patricia 17:15-18:00 Gravity (lok.)-Kojak 16:20-17:15 Leikfimi-Olga 17:15-18:00 Gravity (lok.)-Kojak 16:30-17:15 Gravity (lok.)-Patricia 12:30-13:30 BodyStep-Svava/Ása
17:00-18:00 Tækjakennsla-Heiðrún 17:20-18:20 Púltími-Callie 16:30-17:15 Gravity (lok.)-Patricia 17:20-18:20 Púltími-Callie 17:20-18.20 BodyPump-Jón Þór
17:15-18:15 Latin fitness-Þórunn 17:20-18:20 BodyCombat-Sæunn 17:20-18:20 BodyPump-Patricia 17:20-18:20 BodyCombat-Sæunn 18:30-19.30 BodyCombat- Nanna/Sæunn
17:20-18:20 BodyPump-Patricia 17:35-18:20 RPM-Jón Þór 17:15-18:15 BodyJam-Sæunn 17:35-18:20 RPM-Jón Þór
18:25-19:25 Stöðvaþjálfun-Kojak 18:25-19:25 Magadans-SiggaNanna 18:25-19:25 Stöðvaþjálfun-Kojak 18:25-19:25 Magadans-SiggaNanna
18:30-19:30 BodyAttack-Ása 18:35-19:20 Gravity (lok.) Callie 18:30-19:30 BodyAttack-Ása 18:35-19:20 Gravity (lok.) Callie
18:35-19: 20 RPM-Guðrún 18:25-19:25 Tæ box-Kojak 18:35-19: 20 RPM-Guðrún 18:25-19:25 Tæ box-Kojak
19:30-20:15 Gravity (lok.)-Kojak 19:30-20:30 BodyPump-JónÞór 19:30-20:15 Gravity (lok.)-Kojak 19:30-20:30 BodyPump-JónÞór
19:40-20:40 Afró-Sigrún og co. 19:30-20:30 Jóga-Steinunn Anna 19:40-20:40 Afró-Sigrún og co. 19:30-20:30 Jóga-Steinunn Anna
Auglýsingasími
– Mest lesið