Spegillinn - 01.09.1947, Qupperneq 9
SPEGILLINN
1S1
iandbúnaðarráðuneytii bannar innflutning dýra.
Björnunum var snúið aftur.
&
þess, að í nokkra daga varð Þorláksmessa hjá þaraðlútandi
kaupmönnum. Þykir það með ágætum, er kona ein roskin
keypti tvinna til 70 ára, en önnur, sem tvinna hafði fengið,
gerði tilraunir til að selja hann tíföldu verði. Eru menn að
gera sér mvndir af því í huganum, hvernig hamstrararnir
myndu líta út, þegar þeir eru komnir í allt, sem þeir hafa
klófest, Yrði reiðingurinn þá tífaldur á sumum hlutum lík-
amans, og kannske þeim, er sízt skvldi. Nú hefur sú nýlunda
verið upp tekin, að kvitta skuli fyrir alla vefnaðarvöru, sem
keypt er, til þess að halda uppi einhverjum jöfnuði. Mun
þetta vera hið mesta happabragð í væntanlegu atvinnuleysi,
því að vafalaust geta einir 100 menn fengið jobb við að vinna
úr nótunum.
Nokkur ágreiningur hefur risið um það — líklega eftir-
hreytur frá Landbúnaðarsýningunni — hvert væri elzta naut
landsins. Síðustu fregnir herma, að aldursforsetinn sé vest-
ur á Rauðasandi, sem er í kjördæmi Gísla, og má þetta blað
vel við una. Búið er að halda reisugildi Þjóðminjasafnsins,
og er talið, að það verði fokhelt í haust. Hinsvegar reyndist
síldargeymslan á Sigló ekki fokheld eða öðruvísi held, og
hefur þannig komið óorði á nýsköpunina. Nýja vatnsveitan
kemur í haust, er oss sagt til huggunar í væntanlegu mjólk-
urleysi, og Bjarni Ben. er farinn utan, til þess að vera ekki
á landinu samtímis Stefáni Jóhanni, en hann kom heim sama
daginn.
Hér verður að hætta að sinni, því að ég verð að fara að
gá að því, hvar Lárusarnir eiga að skemmta í dag.
Umferðareglur
Rykið af götunni þyrlast um andlitið á manni:
öskrandi bifreiðin þýtur í loftköstum hjá manni.
Inni í mekkinum liringsnýst ég blindur og bölvandi:
bílana og stjórana upphátt í huganum mölvandi.
En hafi nú rignt svo, að rykið sé horfið af götunum;
í rólegu sakleysi geng ég í sparifötunum.
Þá kemur bíll, sem að venju er fljótur i ferðunum,
og forin af veginum situr á bakinu og herðunum.
Máttlaus er reiðin, því horfinn er helvítis fanturinn;
í hugánum sé ég hvar glottir á honum tranturinn.
Svölunin eina er að bölva og hafa í hótunum;
hrækja og skirpa í áttina og krafsa með fótunum.
, Bílstjóra finnst hann víst mesti maður á hnettinum:
meðan að „tíkin“ nær ánamaðki á sprettinum.
Þess vegna eys hann upp skítnum með tilgerðar-
skrúfunni
og skoðar í speglimun réttindamerkið á húfunni.
Gangleri.