Spegillinn - 01.09.1947, Page 11

Spegillinn - 01.09.1947, Page 11
SPEGI LLI N N 153 Vaxandi örðugleikar Glæsilegur bíll staðnæmdist fyrir utan Gróðamel 13 og tvær prúðbúnar konur stigu út úr honum, sem ekki var neitt sjaldgæf sjón á þessum stað. Síðan gengu þær hægt og nokk- uð þunglamalega inn í húsið og var eitthvað óvenjulegt í fasi þeirra og hreyfingum, eitthvað óbjörgulegt, ef svo mætti segja, þrátt fyrir það, að konur þessar voru þær Hallbjörg og Mannbjörg. — Gerðu svo vel að fá þér sæti í þægilega stólnum þarna, sagði Hallbjörg, þegar þær komu inn. — Ekki mun af veita að láta fara vel um sig eftir allt þetta stríð. Það er rækalli hart að þurfa að leggja svona hart að sér, þegar maður er orðinn nokkurn veginn öruggur með að geta farið að hafa það náðugt. Og það fyrir gjaldeyrisskort, sem ég gat ekki látið mér til hugar koma að héldi innreið sína hjá okkur, þar sem allt veður í peningum, eins og allir eru sammála um. Ég hef aldrei verið eins úrvinda af þreytu á æfi minni. Og um leið hlammaði frúin sér niður í stóra stólinn sinn svo fjaðr- irnar sungu. Hún var sannarlega þreytt. — Það er svo sem ekki tekið mikið tillit til neytendanna nú orðið, sagði Mannbjörg og var stórhneyksluð á svipinn. — Þarna fær maður ekki nema óljósustu vísbendingar um, hvað einkum og sér í lagi þarf að kaupa, og svo er máske allt annað skammtað á morgun en það, sem við keyptum í dag. Þetta kalla ég litla tilhliðrunarsemi, og ef eitthvað lekur á annað borð, þá mætti gjarnan leka betur, eða svona dálítið haganlegar. — 0, það er ekkert skipu.lag á neinu nú orðið, skal ég segja þér. En ég er alveg á sama máli, því hér verður aldrei sett undir þann lek^að ekki leki, hvort sem er. Ég er nú búin að kaupa barnatau í tvær dragkistur, en hver veit nema að sú vara vepði fram...:is fár.nleg og máske alls ekki skömmt- uð, af umhyggju fyrir ókomnu kynslóðinni. — Barnatau? spurði Mannbjörg undrandi. — Því gleymdi ég alveg. — Vertu róleg og sittu svolítið lengur hjá mér, sagði Hall- björg, þegar hún sá að vinkona hennar ætlaði að taka sprett- inn. -— Þú átt ekki von á neinurn barnabörnum og hvað sjálfa þig snertir, þá er víst allt i stakasta lagi, þótt alltaf sé betra að hafa en hafa ekki. — Þetta er líklega rétt athugað hjá þér, en ég er orðin eitthvað nervös af öllu þessu innkaupaveseni. Það eru engin takmörk fyrir því, hvað mann kann að vanta. En þú varst að tala um barnabörn. Er hún Annetta þín kannske svoleið- is? Og svo er hún nú líka úti í Bandaríkjunum. — Ég geri ráð fyrir að hún komi bráðum heim og aldrei er hægt að segja, hvað koma kann fyrir konur á hennar aldri. Undir svoleiðis hugsanlegum kringumstæðum væri það fall- egt.afspurnar, ef hún lenti í vandræðum vegna tauleysis hjá henni móður sinni. — Alltaf ertu jafn framsýn og athugul með þinn gang. og ef allir væru eins, þá væri ekki þessi stöðugi sónn um vöntun á öllum sköpuðum hlutum. En er ekki hættulegt fyrir hana Annettu að koma heim núna, ég meina að hún fái engan gjaldeyri til þess að komast út aftur. Þessu er eitthvað svo misskipt, meira að segja milli íþróttamanna. Þarna fá 3 menn ekki grænan franka til þess að synda í Monaco, en samtímis fl.júga 16 ÍR-ingar í sprikltúr til Norðurlanda. — Það er allt vel skiljanlegt, sagði Hallbjörg. — Frændur okkar á Norðurlöndum eru nefnilega allt öðruvísi. I Monaco eru þarlendir menn auðvitað ófáanlegir til þess að borga brúsann með sínum peningum, þeim þykir víst meira gaman að spila upp á þá, en þegar norðar dregur breytist viðhorfið. Það er samúðin og skilningurinn, manneskja, sem allt veltur á. Svona getur Annetta haft það, ef hún fer aftur til Ríkj- anna. Hún segir bara, að þarlendir menn borgi uppihald hennar með sínum eigin dollurum, sem reyndar má til sanns vegar færa, þótt Hálfdán eigi góðan slatta enn í Bank of Niagara og hlaupi stundum undir bagga með henni. — Það er ekki ofsögum sagt af útsjón og velmegun ykkar. En alveg er ég hissa á því, að þú skulir ekki skreppa vestur og dvelja eitthvað í Rík.junum. Þér. yrði áreiðanlega veitt mikil athygli þar. Hver veit nema að þú gætir orðið guð- mcðir skipsfarms af amerískum köttum, eins og þessi Eva Arden, eða eitthvað svoleiðis, sem mikið þykir í varið þar- lendis. — Ég er nú ekki sérstaklega hænd að köttum, en þetta er vonandi ekki eina ráðið til að vekja eftirtekt á sér þar vest- ur frá. Satt að segja heldur ekkert í mig hér heima nema þjóðræknin, sem mér er svo mjög í blóð borin. En nú skulum við taka upp léttara hjal, eða hvað ætlar þú að skemmta þér í kvöld? Þú ferð náttúrlega í eitthvert partí. — Æi nei, ekki í kvöld. Þau eru dálítið þreytandi svona alveg í slag. En ég er boðin á einhvern voða fínan kabarett til þess að sjá kúnstir erlendra listamanna og heyra góða músik hjá einhverju nýju bandi, sem heitir „Lowdrop & his 5 boys & girls“. — Ég er svo þreytt í kvöld, að ég verð víst að sitja heima og hvíla mig og hlusta á útvarpið. Æi, nú er ég víst orðin of sein til að heyra núverandi uppáhaldslagið þar. Sjáðu hvað ég er alltaf heppin, sagði Hallbjörg, þegar tónarnir bárust fi*á hátalaranum út um stofuna: „Helgum frá döggvum hi-imnabrunns“ . . .“. Að laginu loknu b.jóst Mannbjörg til brottferðar og Hall- björg fylgdi henni til dyra. í forsalnum mættu þær Hálfdáni, sem var að koma heim, s.jáanlega framúrskarandi þreyttur. — Hvernig hefur þér gengið með innkaupin í dag, Hálfdán minn? spurði frúin. — 0, sæmilega. Ég læt ekki snúa á mig og vona að mér séu ekki allar bjargir bannaðar. Svo kvoddust þær Hallb.jörg og Mannbjörg. Bob á beygjunni.

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.