Spegillinn - 01.05.1948, Qupperneq 6
BPEGILLINN
NEÐRI DEILD
brezka þingsins hefur samþykkt að afnenia dauðarefsingu í næstu
fimm ár, svo sem til reynslu, en þá á auðvitað að hengja delínkvant-
ana, ef þeir hafa hagað sér illa. Ekki er því spáð, að lordarnir fallist
á svona experíment, þó ekki væri nema vegna matarskammtsins.
BRIDGESAMBAND
hafa spilafuglar þjóðarinnar stofnað með sér, en ekki er kunnugt,
hvort það hefur þegar gengið í Alþýðusambandið. Er það orðið títt,
að menn stofna sambönd um alla skapaða hluti, hér á landi; þannig
höfum vér hlerað, að jarðeigendur landsins ætli bráðum að stofna
jarðsamband.
SKÆMEISRAINN
Hekla, sem undanfarið hefur veiúð mikill blaðamatur með kíló-
metratölu sinni og flutt mörg hundruð dagóa til Suður-Ameríku, hef-
ur nú tekið upp bananaflutning til landsins, og hafa ávextir þessir þá
náttúru, að þeir sjást ekki á markaðnum. Nú hefur ein bifreiðastöð
borgarinnar gert samning við oss að birta jafnan kílómetratölu þá, er
hún ekur á mánuði hverjum, og treystum vér því, að þetta muni mæl-
ast vel fyrir hjá lesendum vorum.
■Jœtijsh •'V { .
BJÖRGUNARSKIPIÐ
Sæbjörg, sem var svo efnileg i æsku, að hún byrjaði að hneyksla
þjóðina löngu áður en hún hljóp af stokkunum, hefur nú fengið í sig
viðbætur og íauka, og var talin „öll hin vandaðasta“, áður en hún
kom á sjóinn aftur, en þá brá svo við, að hún fór að leka, svo að vart
getur sjófær talizt, og megnar sjálf Landssmiðjan ekki að kítta í hol-
urnar. Vér sjáum ekki annað fært en leggja til, að hún verði þegar
í stað seld Færeyingum.
Fer að sneiðast frelsi manns:
FariS í hirzlur borgarans,
vasapelinn borinn brott,
bannað að veita nokkrum gott.
Hrikta lásar Hreyfli á,
hristir löggan hverja skrá,
rekur nef í þunnt og þykkt,
þeir eru að reyna að finna lykt.
Flestir gerast þunnir þá,
þetta kom, er verst stóð á,
snauta bræður Bakkusar
bónleiðir til hvílunnar.
Varð á öllu slangri slútt,
slakna taugar, hvergi sprútt,
lokað allt hjá Ólafi,
engin von á Borginni.
Þegar morgunglætan grá
gægðist höfuðstaðinn á,
þunnan bæ og þyrstan sá,
þungan haus og yglda brá.
Lœt ég falla Ijó'Saspjall,
læt ég gjalla neySarkall:
Veltifi helsi af vínsölum!
Veitifi frelsi sprúttsölum.
Líknarstarfifi leyfiS þeim,
lyfin þarf aS keyra heim
handa öllum hálf-þunnum,
handa föllnum templurum.
Styttist ríma. — Rökkva fer.
Rónar híma skelþunner.
Galtóm bokkan blessuS er,
bœtir nokkur í lijá mér?