Spegillinn - 01.05.1948, Blaðsíða 14

Spegillinn - 01.05.1948, Blaðsíða 14
76 SPEBILLINN Hin mikla hátíð Stefáns Ögmundssonar, Gunnars Thors, Stalíns og Stefáns Jóhanns Hinn mikli hátíðisdagur verkalýðsins um heim allan rann upp heiður og skær snemma morguns 1. Maí Annó Dómini 1948, eins og venja er til. Verkalýðsforingjar allra landa, þar á meðal Gunnar Thór, Jóhann Hafstein, Stalín og Stefán Jó- hann, teygðu ánægjulega úr sér í rúmunum og geispuðu. Það var á þeim dýrðardegi, þegar danska smjörið kom í búðir í Reykjavík deginum áður, eftir að Ríkisstjórn vor hafði undirnært Islendinga af feitmetisskorti mánuðum saman, því að náttúrlega þótti ekki bikarinn fullur nema smjörlíkið vantaði líka, og verður að seilast til samanburðar allt aftur til ástandsins í París Annó Dómini 1871, þegar Prússar dreittu Napoleón 3. inni og allt hans fólk, til að fá hugboð um líðan Reykjavíkurbúa um þessar mundir. En á þeim sama degi gerðu bakarasveinar náttúrlega verkfall, svo að ekkert brauð var til að éta með smjörinu, en það er nú önn- ur saga eins og Kipling sagði — eða var það kannske Árni Pálsson? Á þeim sama dýrðardegi voru liðnir aðeins fáir dagar frá því er Borgarstjórinn í Reykjavík seldi venzlafólki sínu einn nýsköpunartogara með hálfrar miljón króna hagn- aði (fyrir venzlafólkið), að því er hið greinargóða lands- málablað Tíminn téði oss, vikur frá því Masaryk hinn tékk- neski vakti á sér heimsathygli með því að detta út um glugga og finnast dauður á gangstéttinnk sennilega borinn þangað (Morgunblaðið), mánuðir síðan Pétkoff (búlgarskur) var hengdur upp í Soffíu (mjög óþokkasælt verk hjá Morgun- blaðinu) og ár síðan Gottwald (tékkneskur) sat á skólabekk með Þóroddi Guðmundssyni (ennþá íslenzkur ríkisborgari) fyrir að eignast ný samgöngutæki áður en sumarið er liðið og getum þá selt þau gömlu með svipuðu verði. í dag fögnum við sumri, en það gerir engin þjóð önnur og þess vegna er sumardagurinn fyrsti einkar þjóðlegur dagur. Þessari staðreynd munu ágætir útvarpsflytjendur útvarpsins ekki gleyma í kvöld, en á eftir verður að sjálfsögðu spiluð syrpa af sumarlögum og máske líka Vorkliður eftir hann Sinding, sem alltof sjaldan heyrist í útvarpinu, eins og fleiri ágæt lög. Við hverfum frá kulda vetrarins, sem reyndar var ekki mikill, nema þá ef fraus svo mjög, að hitaveitan klikkaði, eða öllu fremur er álagið varð of mikið. Framundan er nú sól og sumar, en vissara verður þó að hafa samgöngutækin í lagi, því ef rignir hér syðra þá er okkur óhjákvæmilegt að fara norður og njóta sólarinnar þar. Svo óska ég ykkur öllum gleðilegs sumars, vaxandi velmegunar og nýrra samgöngu- tækja. Þannig fórust frú Hallbjörgu orð og var góður rómur gerr að máli hennar, er þótti skörulegt og raunhæft að vanda. Bob á beygjunni. og komst upp með hjálp Þórodds, því að Gottwald var mesti klaufi í rússneskum stíl. Smyglaði Þóroddur til hans upp- kastinu að stílnum, á meðan kennarinn, Mólótoff, sem sat yfir, var að bauka við að kveikja sér í sígarettu. Stílsefnið var: ,,Hvað varðar oss um þjóðarhag?" Þessi mikli dýrðardagur rann sem sagt upp í bíti og hörm- uðum vér aðeins, hve margir vorra samborgara voru forfall- aðir frá að gleðjast með glöðum, þar eð þeir voru í heilsu- bótarför í Ameríku eftir slæma umferðarpest, sem gengið hafði þá nýverið í borginni og læknar álitu að stafaði frá óheilnæmum dollurum. Þar eð ég persónulega hef unnið mig upp úr skítnum með einstaklingsframtaki og er orðinn stétt- vís auðvaldssinni, ætlaði ég mér að halla mér út af aftur og eftirláta kollegunum að lýsa gleðideginum. En man ég þá ekki eftir því að einn aðalbrautryðjandi verkalýðshreyfing- arinnar (að því er hann segir sjálfur í Jólablaði Alþýðu- blaðsins), Hannes á hornum sér, er nýflúinn úr borginni og ,,Suggi“-nn hans er aðeins eftir í dálkum Alþýðublaðsins. Og Víkverji er einhversstaðar á þönum að passa upp á komu kríunnar, sem hann er búinn að boða fyrir mánuði síðan, hefur enda fullan eignarrétt á, þar eð hann hefur uppgötvað hana fyrstur mánna á ári hverju í mannaminnum, eins og margt annað fleira gott, að því er hann tér oss í dálkum sín- um. Ég varð því nólens vólens (en það þýðir nauðugur vilj- ugur, sett hérna að hætti góðra höfunda til að sýna kunn- áttu vora) að rjúka fram úr rúminu og búast í snatri. Ekki áleit ég nokkur tök á því að ná í Njálsgötu-og-Gunnarsbraut að svo stöddu, sem ekki hefur verið tagltæk þegar minna var í húfi, og sá þegar í hendi mér, að vagnarnir væru búnir að koma sér fyrir einhversstaðar miðsvæðis í bænum, þar sem útsýni væri gott og bílstjórarnir komnir upp á þak í inni- skóm og farnir að dytta að amboðum upp á sumarfríið, á meðan þeir biðu, en konur þeirra búnar að hengja þvott sinn til þerris milli vagnanna. Nei, ég lagði þegar af stað gang- andi og kom einmitt í því niður á Lækjartorg, er tvær fylk- ingar fánum prýddar sigu saman. Ætluðu báðar að vera fyrri til að ná gamla vígi sósíalista á tröppum Útvegsbank- ans. Þó varð ekki úr bardaga, því að þegar menn höfðu spurt um fyrirliða hvers annars, kom það upp úr dúrnum, að hér fóru bandamenn og vinir. — Stefán Jóhann emk nefndur, kallaði fyrirliði þess flokks- ins, er rauðari var og voru þó báðir skræpóttir. Hann var herðibreiður, ekki óvígamannlegur, en engi var hann skap- stillingarmaður. — Eða hver ræður fyrir liði yðru? — Vér erum fóstbræður tveir, og heitir annar Gunnar, en annar Jóhann. Skulu vér setja grið meðal vor ok er þat firra ein at höggva hvern annan í spað fyrir engar sakir, en spara eigi hin breiðu spjótin, er fjendur vorir koma til.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.