Spegillinn - 01.03.1949, Page 12
42
SPEGILLINN
Kæra Gudda mín!
Ég sá í einhverju blaði að það var skrevað Gudda en ekki
Gödda og ég ætla að gera það líka en ég veit samt ekki hvort
það er neitt réttara.
Nú er pabbi búinn að fá hrútinn að austan hann sótti hann
um helgina og var tvo daga og hann er svo ansi mannborleg-
ur og ég hlakka mikið til að sjá lömbin undan honum í vor
ég meina sko hrútinn en ekki pabba.
Pabbi var heldur en ekki súr á svipinn um daginn af því
hann fékk bara Tímann en ekki ísafold en mömmu var alveg
sama. Svo fór mamma að tala um yfirganginn í Hollending-
unum þarna austur frá og sagði að það væri nú meiri grimmd-
in og villimennskan og ekkert betra en hjá Hitler heitnum og
þá gat pabbi sama sem ekkert sagt af því hann var ekki bú-
inn að fá ísafold og þorði ekki að láta mömmu vita að hann
hefði lært Tímann utan að heldur en ekki neitt.
Svo keypti pabbi líka miða í béhappdrættinu hans Ríkis-
sjóðs en mamma hélt það væri fjandans nóg að vera í ahapp-
drættinu og fá aldrei neinn vinning en pabbi sagði þá að það
væri helzt von ef maður væri með í öllum dráttum en svo
bara fresta þeir alltaf dráttunum og maður fær aldrei neinn
aurinn.
Þá erum við nú búin að fá lækni hingað í sveitina en eng-
an prestinn og það er bara verra að fá lækni ef enginn prest-
ur er því áður fóru alltaf allir suður til læknanna og dóu þar
en nú deyja allir heima og við verðum alltaf að vera að fá
lánaðan prest í næstu sveit til að jarða og svoleiðis.
Pabbi og mamma eru stundum að tala um þetta Atlants-
hafsbandalag og pabbi segir að austrið sé okkur hættulegast
og það er sama og ísafold segir en mamma hefur ótrú á þessu
bandalagi eins og öllum bandalögum síðan sjúkrasamlagið
kom hér og segir það sé víst bezt að bjarga sér sjálfur en
stóla ekki á aðra.
Prestarnir ykkar þarna fyrir sunnan eru líka með þetta
bandalagsmál og pabbi segir að prestar ættu ekki að skipta
sér af svoleiðis og hann séra Jakob ætti nú bara að missa
hempuna fyrir vikið og ég held að þetta sé bara úr ísafold
en ekki Tímanum en mamma segir það sé jafngott þótt fleiri
prédiki en Pétur og þá veit pabbi ekki hvað hann á að segja
því þeir í ísafold hafa víst ekki sagt neitt um Pétur svo pabbi
veit ekki hvað óhætt er að segja.
Hérna kom aldeilis gestur um daginn það var hreppstjór-
inn úr næstu sveit.
Pabbi snéri svolítið upp á sig og sagði að þetta væri fram-
sóknarmaður en hann sagði það bara við okkur mömmu.
Svo fóru pabbi og hreppstjórinn úr næstu sveit að tala
saman og ég sá að hreppstjórinn kunni Tímann nærri eins
vel og pabbi kann ísafold. Það var ansi gaman að hlusta á
þá því hreppstjórinn úr næstu sveit skammaðist eins og þeir
gera í Tímanum en pabbi þybbaðist eins og þeir í ísafold.
Svo fór hreppstjórinn úr næstu sveit að skamma kommúnist-
ana og þá voru hann og pabbi alveg sammála því pabbi sagði
að kommúnistar sæju bara austrið og vildu koma öllu undir
austrið alveg eins og þeir segja í ísafold og hreppstjórinn
úr næstu sveit sagði Stalin er þeirra guð alveg það sama og
ég sá í Tímanum, sem mamma kveikti upp með um daginn.
Svo dró hreppstjórinn úr næstu sveit blað upp úr vasa sín-
um og það var þá áramótatíminn með myndinni af Hermanni
og því öllu saman. Þá kom nú svipur á suma. Svo fór hrepp-
stjórinn úr næstu sveit að fletta áramótatímanum og sýna
pabba hvað Hermann segði hérna og þarna en pabbi þóttist
ekkert sjá af því hann hafði ekki gleraugun og auðvitað
fundust ekki gleraugun en mamma þóttist lesa svolítið og
sagði að Hermann væri nú oft ansi sanngjarn og tillögu-
góður og þá glotti pabbi og tautaði í hálsmálið sitt og þóttist
nú svo sem þekkia tillögurnar í Tímanum og það væri lítil
kúnst að vera vitur eftir á.
Svo fór pabbi að gjóa augunum inn í höfðalagið sitt þar
sem hann geymir áramótaísafoldina sína og gleraugun en
hann sótti það samt ekki enda kann hann áramótaísafoldina
utan að.
Svo fór hreppstjórinn úr næstu sveit og pabbi sagði við
okkur mömmu að framsókn ætlaði víst að bjóða karlgreyið
fram við næstu kosningar og hann væri nú svona að kynna
sér statusinn, ha, ha sagði pabbi og hló svolítið.
Pabbi og mamma voru um daginn að tala um Guðvors-
lands og pabbi sagði það væri andskoti hart* að þurfa að
kaupa sinn eiginn Guðvorslands af Baunanum fyrir okur-
verð en ég held þeir í ísafold minnist aldrei á Guðvorslands.
Þeir eru allir í pólitíkinni svo pabbi hefur víst fundið þetta
út sjálfur því ekki er það úr Tímanum. En mamma sagði
bara að það tæki því nú varla að vera að fárast um einar
2000 krónur jafnvel þótt þær væru danskar úr því Guðvors-
lands væri nú orðinn okkar eign með húð og hári eða eitt-
hvað svoleiðis sagði mamma.
Ég held líka að körlunum hérna megi standa á sama því