Spegillinn - 01.03.1949, Side 17

Spegillinn - 01.03.1949, Side 17
S PEG I LLI N N 47 Ungi maðurinn virtist ætla að segja eitthvað, en hann hætti við það, þegar hann sá tvo nýja lúxusa koma brunandi og nema staðar fyrir aftan hinn fyrsta. Þarna komu þær, frú Angan og frú Sævar, hvor með sína þernu og ennfremur var í för með þeim ungur leikari, en þar eð hann gerir hér eigi annað en fylla töluna — opinber- lega — skiptir nafn hans engu máli. Var nú farangurinn drifinn út úr lúxusunum og þeir óku burt. Bílstjóri rútubílsins klifraði upp á þakið á sínu farar- tæki og með honum tveir menn til aðstoðar. Síðan gekk al- menningurinn rösklega að verki við að rétta upp. Fínu frúrnar tvístigu, jazzmennið fitlaði við sjónaukann, en þernurnar tóku að rétta upp hina léttari pinkla. — Farið varlega með þennan pakka, bílstjóri, sagði frú Sævar, — það er nýr þrjátíu punda lax í honum. — Ha? Nýr lax? endurtók bílstjórinn, vantrúaður. — Já, anzaði frúin, — eitthvað verður maður að borða. Hvatvísi unglingurinn úr almenningnum kallaði upp: — Þakkaðu fyrir, góði, á meðan þér verður ekki rétt upp lifandi naut, sem á að slátra í miðdagsmatinn á sunnudag- inn. — Ætlið þér að sýna okkur ósvífni? spurði frú Sævar og sneri sér reiðilega að hinum unga manni. — Nei, frú mín góð. Ég bið yður afsökunar, sagði hann í hógværum og kurteisum rómi. — Ég átti auðvitað við fer- fætt naut. Allur almenningurinn skellihló. Frúin gaf honum illt auga, en sneri frá. Að vísu hafði skaparinn gefið henni hraðmælta tungu, já, og ríkan mann, en svo virtist sem hann hefði gefið þessum unglingi hraðmælta tungu og vit með. Brátt var allur farangur kominn upp á bílinn eða inn í hann. Einn nestiskassi fína fólksins var svo þungur, að sinn maður lyfti hvorum enda og einn undir miðju, til að koma honum upp á þakið. Að baki þeim stóð jazzmennið og virtist mjög búið til stórræða, ef þá þryti afl, hvað þó ekki varð. — Þarna mun nautsskrokkurinn kominn, tautuðu þeir. Nú var ekið sem leið lá og ekki staðnæmzt fyrr en við Gullfoss. Þar hafði verið pantaður matur fyrir mannskap- inn. Borðuðu menn nægju sína og voru lystugir vel. Frúrnar átu mat sinn sem aðrir, en þær höfðu orð á því, að allt væri þetta til skammar landi og lýð. Hingað kæmu margir útlend- ingar að skoða fossinn, og svo væri hér ekkert hótel, engin jazzhljómsveit, ekkert, nema ómerkilegur skáli, þar sem ekki væri vatnsklósett, hvað þá meira. Fólkið tíndist upp í bílinn og aftur var ekið af stað. Frúrnar og fylgdarlið þeirra hafði lagt undir sig fremri hluta bílsins og svo langt aftur sem talan hrökk til að fylla sætin. Almúgafólkið leit á þær sem verur af öðrum heimi, sem hefðu villzt innan um annað dauðlegt fólk. í afturhluta bílsins hafði unglingurinn orðhvati helzt mannaforráð, einkum meðal yngra fólksins þar. Hann var

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.