Spegillinn - 01.01.1958, Page 22
za
S.E E G I LLI N N
Honum leið hálfilla undir þessiun lestri,
því að gamli Jonni var að reyna að brjótast
upp á yfirborðið. Þó sagði liann loksins:
— Já, en Elaine, livern skrattann áttu við
með þessu öllu?
— Þú ættir að spyrja liana Joan systur
þína að því, sagði Elaine. — Ég kom til
hennar uin daginn.
— Mér þykir mjög vænt um liana Joan
systur mína, sagði Jonni.
-—- Það skyldi enginn lialda, svaraði
Elaine. •— Þú komst til hennar reglulega
í hverri viku áður fyrr, en nú hefur liún
ekki séð þig mánuðum saman, eða er það?
— Nei, .... að vísu ....
— Og þú vissir alls ekki, eða vildir eloki
vita,þegar þau urðu fyrir óhappinu og Bill
misti atvinnuna, sagði Elaine.
— Þú ert ekki sérlega hrifin af mér,
sagði Jonni.
— Nei, ekki af þessum uppblásna og
eigingjarna Jonna Ricardo. Þú segir nú
kannske, að mig varði lieldur lítið um það,
en liugsaðu nú samt um það.
Og Jonni hugsaði um það. Vandlega. Og
þegar hann kom heim til sín um kvöldið,
liringdi hann til umboðsmanns síns.
— Þú manst, Jói, þessa samkomu þar
sem ég á að koma fram annað kvöld. Strik-
aðu það út.
— Hvað gengur að þér? æpti Jói. —
En livað um gestina, sem ætla að sjá þig?
Hvað á ég að segja þeim öllum?
— Segðu þeim hvað þú vilt, sagði Jonni
hrottalega. — Nú vil ég fara að eiga mitt
einkalíf sjálfur.
Hann sagði ekki umhoðsmanninum, að
liann ætlaði í heimsókn í lítið liús í út-
jaðri borgarinnar, þar sem systir lians bjó
með manninum sínum og tveim bömum
þeirra. Bill hafði áður verið leigubílstjóri,
en ók nú strætisvagni.
Þetta var laugardagskvöld og þegar
þarna kom, var mágur lians í þann veginn
að fara í bíó einn síns liðs. Joan sagði
lionum, að þau gætu aldrei farið saman,
því að þá var enginn til að vera hjá börn-
unum.
— Hvernig væri að fá mig fyrir bama-
píu? sagði Jonni.
Þegar hér var komið sögunni, fór Jonni
að hlæja, og svo fór hann í skápinn og
hellti í glösin lijá þeim aftur.
Og nú leit liann um öxl og sagði: —
Og þá var það, sem ég missti röddina!
— Af því að sitja hjá krökkunum?
spurði ég hissa.
— Já, skilurðu. Krakkamir höfðu verið
með kíghósta, en vom á batavegi.
— Og þú fékkst hann af þeim? spurði
ég.
— Já, ég fékk hann svei mér svo um
munaði, sagði Jonni og glotti. — að var
rétt eins og forsjónin sjálf Væri þama að
verki. Hann fór þannig með raddböndin
í mér, að ég var eins og kórdrengur, sem
er að komast úr mútum. Hafi röddin mín
verið sýróp áður, var hún nú möl.
—■ Og Jonni Ricardo dó? spurði ég.
— Já, og var grafinn, bætti Jonni við.
—• Ef krakkaangarnir hefðu liaft bóluna
eða mislinga, gæti ég kannske ennþá verið
að mjálma, sem Jonni Ricardo, afrækt
kunningja mína, og yfirleitt hagað mér
eins og skítmenni. En nú höfðu þau kíg-
hóstann og því er ég feginn, af því að ár-
angurinn var göldmm líkastur. Elaine
varð aftur skotin í mér. Og það var meira
að segja hennar hugmynd, að við skyldum
gera fyrir upprennandi söngvara það sem
umboðsmaðurinn minn hafði gert fyrir
mig.
— Elaine er með mér í atvinnurekstr-
inum, og okkur gengur vel, eins og þú
sérð. Það er bara eins og stendur, að hún
er ekki vinnufær. Og Jonni brosti.
—- Nú er það svo að skilja, að þið farið
bráðum að verða þurfandi fyrir bamapíu?
sagði ég og brosli á móti. Reyndu mig ef
í hart fer. Ég hef enga rödd að missa.
NtlR ÁSKRIFENDUR
SPEGILSINS frá nýári 1958 að telja, fá í kaupbæti allan árgang-
inn 1957, en að honum þrotnum árganginn 1956. Þó geta þeir,
sem þess óska, valið um þessa tvo árganga, og taki það þá sér-
staklega fram við pöntun.
Utan Reykjavíkur. Sendið afgreiðslunni áskriftargjaldið 1958 —
kr. 100.00 — í póstávísun, með greinilegu nafni og heimilisfangi
sendanda; þá er kaupbætirinn sendur um hæl.
í Reykjavík. Hringið í síma 1-27-02 eða sendið afgreiðslunni ár-
gjaldið í pósti.
KJARAKAUP
Árgangarnir 1951 — 1957 hafa kostað í áskrift samtals kr. 475.00.
Þessa sjö árganga er nú hægt að fá alla saman fyrir kr. 230.00,
eða undir hálfvirði. Sumir þeirra fást ekki einstakir. Utan
Reykjavíkur þarf greiðsla að fylgja pöntun.
SPEGILLINN
Pósthólf 594 — Sími 1-27-02 — Reykjavík.
HAMAR H.F.
JÁRNSTEYPA
VÉLAVERKSTÆÐI
KETILSMIÐJA
HAMARSUÚ SINU
TRYGGVAGÖTU
REYKJAVÍK
FRAMKVÆMDASTJÓRI
BEuEDIKT GRÖNDAL
SÍMI 2-21-23
SÍMNEFNI: HAMAR
StyðjvS innlendan iðnað.
íslenzkt fyrirtæki.
Ritstjóri: Páll Skúlason — Teiknari: Halldór
Pétursson — Ritstjórn og afgreiðsla: Smára-
götu 14, Reykjavík — Sími 12702 — Árgangur-
inn er 12 blöð; um 220 bls. efni — Áskriftar-
vcrð kr. 100.00 — erlendis kr. 110.00; greiðist
fyrirfram — Áritun: SPEGILLINN, Pósthólf
594, Reykjavík.
Blaðið er prentað í Isafoldarprentsmiðju h.f.