Spegillinn - 01.07.1960, Blaðsíða 10

Spegillinn - 01.07.1960, Blaðsíða 10
154 SPEQI LLI N N (janyan tnikla timbri búið er að saga niður í uppsláttinn. Vér viljum enga af- stöðu taka til kirkjunnar að svo komnu máli, en leyfum oss þó að geta þess til, að hún sé teiknuð með það fyrir augum að hún geti bergmálað sem allra bezt tóma- hljóðið, sem áreiðanlega kemur til með að ríkja þar. „ólafur benti samráðherrum sínum á sígilt bjargráð allt til þessa dags. — Þið skuluð taka hár úr hala mínum, hókus, pókus — og viðreisnin kemur strax. Frábær kviðlingur, sem engra skýringa þarf með. „Skúrir í dag og skúrir í gær, skúrir alla daga. Af ávöxtunum þekkjast þær, en það er nú önnur saga“. Þetta látlausa vers um tíðarfarið verður síðasti kviðlingurinn að sinni, þar sem vér erum önnum kafnir við að vinna að stórmerkri ritgerð um áhrif v-hljóðvarps á kennimyndir sterkra sagna í forn- (eða frum-) norrænu, og væntum þess að fá styrk úr hugvísindasjóði við næstu úthlutun. Flatrímarinn. BtJSÁHÖLD Jón Jóhannesson & Co. h.f. Ég snaggaði mér í brækurnar klukkan sex að morgni sunnudag- inn 19. júní sl. Nú er þetta alls ekki hinn venjulegi fótaferðartími minn, en hér stóð mikið til. Ég ætlaði nefnilega að taka þátt í spásérstúrnum mikla, Keflavíkur- göngunni svonefndu, og þess vegna fór ég í reimaða strigaskó, sem ég var svo heppinn að ná í á gamla, góða verðinu. Síðan þaut ég eins og tundurskeyti í bílinn; og segir ekki af því meira fyrr en suður við flugvallarhlið. Þar safnaðist hópur- inn saman, 250 manns; (ég taldi fólkið nú reyndar ekki nákvæm- lega, en þessi tala er áreiðanlega mjög nærri sanni, auk þess sem þetta er rúnn og góð tala). Einar Bragi, atómskáld og Jónas Árna- son, sem nú er ekki kommúnisti lengur, fylktu liðinu, og Einar flutti smáhvatningarávarp til að örva göngufólkið áður en þrammið hófst. Helgi S. var á gægjum þarna, auðvitað að njósna um okk- ur fyrir Moggann! hann taldi hóp- inn, en þið megið ekki taka mark á tölunni hjá honum, hann nefni- lega taldi bara annan hvern þátt- takanda. Nú svo drattaðist allt draslið af stað. (Hér er notuð bók- un lögreglunnar á vellinum, auð- vitað væri miklu tígulegra mál að segja; t. d. nú seig hin mikla fylk- ing íslenzkra ættjarðarvina af stað, hægt en ákveðið. En maður getur varla ætlazt til, að lögregluþjónar kunni skil á slíku orðavali; þeir eru nú einu sinni bara lögreglu- þjónar). Þeir sem aftastir fóru, sögðu, að formaður Natóvinafélags- ins og gjaldkeri þess, hefðu gægzt út fyrir hliðið og gefið göngunni langt nef, er það og vel líklegt að félagsskapurinn hafi ekki látið þetta tækifæri til að treysta vin- áttubö.ndin við Nató sér úr greip- um ganga. Var nú þrammað sem leið liggur yfir Vogastapann, síðan farið beint af augum í Vogana og borðað í hermannatjaldi í Kúagerði. Til hátíðabrigða gæddi sumt af göngufólkinu sér á kók og jórturleðri auk tollsvikinna vindl- inga sunnan af Velli. Mig dauð- langaði í kók og tyggjó, en þorði ekki að smakka það, af því að Jónas Árnason horfði svo nístandi fyrirlitlega á þá, sem voru að jórtra. (Það á nú víst að segja: mér dauð- langaði . . . á nútíma íslenzku, en ég held mig við eldri málvenjuna). Jæja; svo var nú haldið af stað frá U.S.A.-tjaldinu og þrammað í áttina til Hafnarfjarðar. Alltaf voru fleiri og fleiri að bætast í hóp- inn og þetta var orðinn voðalegur fiöldi, þegar til Hafnarfjarðar kom. Þegar við fórum um Strandgötuna, tók einhver í hópnum eftir striga- poka úttroðnum uppi á hamars- svllu. Forvitnir náungar ruku til og vildu ná í pokann, en hann forðaði sér bá með því sem í hon- um var. (Síðar kom \ liós að það hafði verið steinn í nokanum. meira að segia hersteinn). Áður en við fórum úr Hafnó vildu sumir telia hóninn nákvæmlega. en þegar til kom, nennti bví enginn. svo að Finar Bragi áætlaði bara að við værum sex hundruð, og hringdi niður í útvaro svolátandi frétt af göngunni: Þátttakendur í Kefla- víkurgöngunni komu til Hafnar- fiarðar klukkan fimm. og voru þá orðnir um 600 að tölu. Nú gerðist lítið markvert fyrr en kom niður á Miklubrautina, nema hvað í Kópa-

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.