Spegillinn - 01.07.1960, Blaðsíða 13
SPEG I LLI N N
157
ÞJÓFAR NOKKRIR
frömdu í síðastliðnum mánuði það skálka-
strik að brjótast inn í hið góðkunna vax-
myndasafn í Lundúnaborg, sem kennt er
við maddömu Toussaud, og stela þaðan
vaxmynd af hinum nýbakaða konungs-
fjölskyldulim Amistrong Jones ljósmynd-
ara, en létu hinsvegar óhreyfðar allar aðr-
ar myndir, sem þarna voru saman komnar.
Urðu jafnskjótt uppi ráðagerðir miklar hjá
hinni konimgshollu þjóð, og fékk mestan
byr sii tillaga að setja alvöru-Jonesinn
sjálfan í safnið, vel búinn vopnum og
verjum, til þess að hrinda árásum, en
búa til nýja vaxmynd og gefa prinsessunni.
Úr framkvæmdum varð ekki, því að von
bráðar fannst myndin ,lítt skemmd, í ein-
um símaklefa í borginni.
PORTÚGALAR
inoka um þessar mundir upp fiskinum í
grænlenzkri landhelgi, og fær danskurinn
ekki við neitt ráðið, sökum þess að lögregl-
an í Góðvon getur livergi fengið lánaðan
bát! En rétt samtímis auglýsa Ferðaskrif-
stofa Ríkisins og Flugfélag Islands
skemmtiferð lil Grænlands, þar sem m. a.
verða farnar langar leiðir á bátum. Gefur
þetta allgreinilega í skyn, að þessir aðilar
eigi meiri vinsældum að fagna með Skræl-
ingjum en þeirra yfirboðarar, og væri
lieldur ekki neitt óeðlilegt.
ANASTAS MIKOYAN
sent mörgum Islendingum er að góðu
kunnur síðan hann beiðraði oss með hing-
aðkomu sinni, liefur samkvæmt erlendum
blaðafregnum, er hingað hafa borizt. „misst
hálfan titilinn“, eins og það er svo lögulega
orðað í heimild vorri. Enda þótt þetta sé
leiðinlegt vegna vina hans hér, finnst oss
það ekki neitt ofboðslegt, er þess munu
dæmi þama austur í Sovétti, að menn missi
allan titilinn og jafnvel hausinn með.
TILLAGA
hefur komið fram, einhversstaðar að, um
að gera Höfða — áður Héðinshöfða -— að
húsnæði fyrir listaverkasafn borgarinnar,
og ku tillaga þessi jafnvel hafa verið
rædd í bæjarráði. Þar eð liér er um gamalt
limburhús að ræða, var tillagan samstund-
is kveðin niður, og er illa farið, þar sem
höfundur herinar mtin áður hafa kynnt
sér magn og gæði listasafnsins, og vitað
hvað liann söng, þegar liann vildi sama
sem bera það á bál.
MÁLVERK NOKKUR
sem sannfróðustu menn telja, að Hitler
hafi gert á unga aldri, þegar hann var
veggfóðraralærlingur austur í Vín, hafa
nýskeð komið fram í London í eigu konu
nokkurrar, sem þarna reyndist ríkari en
hún hafði haldið, liafandi enga hugmynd
haft. um höfund listaverkanna. Nú hafa
nokkrir áliugamenn bundizt samtökum um
að kaupa léreft þessi, en síðan ætla þeir að
fá að láni nokkur klessuverk hjá Skúrka
gamla og efna síðan til samsýningar á af-
urðum þeirra félaga. Ennfremur höfum
vér heyrt á skotspónum, að Listasafns-
vinafélagið hér sé eitthvað að bera víumar
í verk þessi, en eigi hefur oss tekizt að fá
pottþétta staðfestingu á þeirri fregn.
S. H. OG S. I. S.
hafa nú tekið liöndum saman (og það
eru nú ekki neinar flekkaðar liendur) til
að vinna bug á gerlum þeim er jafnan hafa
hrjáð íslenzka fiskverkun og verið oss til
foráttu á mörkuðum erlendis. Hafa þau
fengið hingað útlendan sérfræðing til að
kynna sér ástandið á þessu sviði, og var sá
fljótur að kveða upp þann úrskurð, að
vatnsmenning Islendinga væri á mjög lágu
stigi, (með öðrum orðum kunna Islending-
ar ekki einusinni að fara með óáfenga
drykki). Vér höfum forvitnazt nokkm
frekar um það hjá fomstumönnum þess-
ara rnála, hvernig ætlunin sé að heyja þetta
gerlastríð, en fengum þau svör, að það
vissu þeir ekki svoi gerla.
BANDARlKIN
— eða Júessei, svo að þjóðin skilji orð-
ið — hafa í seinni tíð verið að sýna Kúbu
hin og þessi önugheit og nú hefur Æk
verið gefið umboð til þess að segja upp
öllum sykurkaupum við ríki Castros. Jafn-
vel kom til mála að taka fyrir öll romm-
kaup líka, en þá risu upp félög romm-
byttna í ríkjunum og fengu afstýrt þessu á
síðustu stundu. Hefur Castro nú sæmt hinar
drykkfelldustu byttnanna heiðursmerki.
HUGVITSMAÐUR
nokkur úti í þeim stóra heimi liefur fund-
ið upp svokölluð ráðstefnugleraugu, sem
þannig eru úr garði gerð, að á glerin em
máluð uppglennt og vökul augu, en hins-
vegar getur gleraugnaberinn sofið svefni
hinna réttlátu, án þess að nokkur verði þess
var. Að sjálfsögðu liafa gleraugu þessi á-
unnið sér gífurlegar vinsældir lijá öllum
kongressamönnum lieims og ganga út eins
og lieitt brauð. Þó er sagt, að einn maður
bölvi því, að þau skyldu ekki uppfundin
löngu fyrr og það er Hannes, fyrrverandi
þingmaður Vestur-Húnvetninga, sem forð-
um sofnaði á Alþingi, en gleraugnalaus.
THOR THORS
afhenti fyrir nokkm í umboði sendiherra
allra Noirðulandanna í Wasliington, Æk
forseta góða bók í þrem bindum, sem öll
Norðurlöndin liafa splæst í og hefur inni
að halda margan staðgóðan fróðleik um
þau, í nútíð og fortíð. Undanfarið hefur
Æk átt marga andvökunóttina sökum á-
standsins í alþjóðamálum, sem lieldur ekki
er allt í sómanum, en ekki hafði liann
lesið nema hálfa síðu í þessari ágætu bók,
þegar hann sofnaði eins og skot.