Stúdentablaðið - 31.10.1959, Blaðsíða 2
2
Sttídentablað
BRAGI KRISTJONSSON stnd. jur.:
Ofurstutt ágrip helztu lærdoma
MOSKVUFERÐAR
Stúdentaráði Háskóla Is-
lands barst digurt boð frá
rússneskum félögum sínum: Að
senda stúdent til að sitja nám-
skeið um æðri menntun í Sovét-
ríkjunum. Stúdentaráð þekkt-
ist boðið og þar sem enginn
almennilegur maður fékkst til
fararinnar, hélt ég í Austur-
veg hinn 5. sept. s.l. Skyldi
þátttakandinn kosta ferð sína
sjálfur, nema lestarferð á 2.
farrými með „Rauðu örinni“
frá Leningrad til Moskvu og
uppihald skyldi verða að kostn-
aðarlausu. Stúdentaráð tjáði
sovézkum komutíma þátttak-
andans, sömuleiðis hafði ég
samband við sendiráð Sovét-
ríkjanna og allt skyldi klárt í
Leningrad. I Helsinki hafði ég
samband við eina voldugustu
stofnun borgarinnar, sovézka
sendiráðið og lofuðust þeir enn
til að ábyrgjast öryggi einmana
Islendings. Þegar „Rauða ör-
in“ nam staðar á sótugri járn-
brautarstöðinni í Leningrad,
hélt ég því standa viðbúna mót-
tökunefnd með tilheyrandi
blómvendi og umfram allt, far-
miða til Moskvu. Enginn, ná-
kvæmlega enginn, vissi nokk-
urn skapaðan hlut um þetta
smáa ,,seminar“, og var því að-
eins um tvennt að velja: Gista
í Leningrad um nóttina og
koma of seint til námske:ðsins
eða halda áfram með lestinm,
löglega eða ólöglega. Ég kaus
að halda áfram með lest’nni,
labbaði mér í tóman klefa og
settist þar að með föggur mín-
ar. Nokkru síðar komu rúss-
neskir lestarverðir og kröfðust
farmiða og sá ég þá mína sæng
út breidda. Ekki skal sú harm-
saga rakin lengra, en áfram
komst ég með lestinni og á
hádegi daginn eftir rann lestin
inn á Leninjárnbrautarstöð'na í
Moskvu. Móttökunefndin var
þá heldur ekki komin á stað-
inn og því hafði ég skjótlega
samband við íslenzka sendiráð-
ið og hlaut þar slíka fyrir-
greiðslu, að innan tveggja
klukkustunda frá komu, hafði
mér verið búin hvíla á 10. hæð
í feiknhárri háskólabygging-
unni á Leninhæðum. Sömuleiðis
fengið afhenta matarmiða og 2
rúblur til persónuþarfa dag
hvern (sem næst 5 krónur).
Bar ég óðara fram skeleggar
kvartanir við forráðamenn
námskeiðsins, vegna meintrar
vanrækslu á gefnu loforði og
skyldi það mál þegar athugað,
en engin niðurstaða fengin,
þegar ég hélt 9 dögum síðar
frá höfuðborginni.
I
II nií/i Krisljónssoii.
tJr skýrslu vara-ráð-
herrans.
Hinn 10. september hófst
svo námskeið þetta „Um æðri
menntun í Sovétríkjunum" í
þokkalegasta sal á 21. hæð há-
skólans. Mættir voru 77 þátt-
takendur frá 42 þjóðum. Enn-
fremur varaforseti I. U. S.,
gæðalegur Kýpurbúi, f jölmargir
sköllóttir atvinnu- og eilífð-
arstúdentar, blaðafólk og nauð-
synlegir fylgifiskar og fræðing-
ar, sem hafðir voru til taks.
Var þátttakendum raðað
þannig niður, að Austur-
Evrópear eða hagnýtir Asíu-
menn sátu við hlið Vestur-