Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 31.10.1959, Síða 4

Stúdentablaðið - 31.10.1959, Síða 4
4 StúdentablaS ell week" ganga „rússar" f r i sfrigapoknm Rcett við Pétur Snczland, stud. jur.: um háskólanám í Bandaríkjunum Brittingham hinn bandaríski er íslenzkum stúdentum að góðu kunnur, en hann hefur nokkur næstliðin ár, stutt stúd- enta til náms við háskóla í Bandaríkjunum árlangt. Fyrir nokkru hitti STÚDENTABLAÐ að máli, einn þeirra er þessa styrks hafa orðið aðnjótandi, Pétur Snæland, sem lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1958. Pétur stundaði nám við há- skólann í Wisconsin og tók fyrir hinar margvíslegustu greinar, svo sem hagfræði, listasögu, amerískar bókmennt- ir, ræðumennsku, og auglýs- ingatækni. — Hvað geturðu sagt okkur um námsfyrirkomulag í Banda- ríkjunum ? — Ef við tökum t.d. hag- fræðina, segir Pétur, þá er þess fyrst að geta, að taka verður nokkurs konar undirbúnings- kúrsa í henni sem og öðrum greinum, áður en hið eiginlega nám hefst. Fyrirlestrar eru tveir á viku, og sóttu þá 300 til 400 manns. Þriðja tímann var hafður annar háttu á, þá var bekknum skipt niður í smá hópa, 10 manns eða svo, síðan tók hver Pétur Snæland. hópur ásamt kennara fyrir ein- hver þau atriði, torskilin, sem fram höfðu komið í fyrirlestr- unum áður, ræddi þau fram og aftur og reyndi að komast að einhverri niðurstöðu. Þetta fyrirkomulag tekur nota bene aðeins til byrjenda, þeir sem lengra eru komnir, hlusta á fyrirlestra, en verða jafnframt að skila ritgerðum um ýms efni, t.d. er þeim gert að lesa ákveðnar bækur, og skrifa síðan um þær greinar. — Hvernig er með tíma- skyldu? — Tímaskylda er svo til al- gjör, það er að visu erfitt að hafa nákvæmt eftirlit með 400 manna hóp, þó er stundum tek- ið fullkomið manntal, annars aðeins stikkprufur, og einnig kemur fyrir að manntal er tek- ið öllum að óvörum. Sé maður fjarverandi þrjá tíma í röð, fær hann bréf, frá sínum „adviser“, en við háskóla í Bandaríkjun- um hefur hver nemandi sinn sérstaka ráðunaut. Nemandan- um er gcrt að koma til fundar við þennan ráðunaut og standa þar fyrir máli sínu. — Próf ? — Þau eru höfð á sex vikna fresti, sem gerir það að verk- um, að maður veit sjálfur bezt hvar á vegi maður er staddur, annars er einkunnarfyrirkomu- lag þannig, að fleiri komast í gegn þar en hér. Einkunnirnar eru A,B,C,D,E,F fái maður F er maður fallinn, annars er enginn raunverulegur greinar- munur gerður á hinum einkun- unum, það skiptir litlu máli hvort maður fær A eða E. — Hvort fellur þér nú betur við það fyrirkomulag, sem hér ríkir, eða úti? — Ja, þetta er náttúrulega mikið þægilegra hérna, en á hinn bóginn er auðveldara að komast í gegn í Bandaríkjunum. Þar er hægt að ná prófi með sáralitum lestri, og má kannske segja að það sé ekki til fyrir- myndar. — Félagslíf?

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.