Stúdentablaðið - 31.10.1959, Qupperneq 11
StúdentablaB
11
1‘élur Snuilund fyrir utun hús þcss félags, scm Iiann var mcölinmr í.
í „HELL WEEK“ ...
(Framh. af bls. 5)
bils, tekur við svokölluð hell
week, þá flytur maður inn í hús
félagsins, og verður að þola
ýmis konar píningar, en það
eru nú hlutir, sem maður talar
varla um, t.d. var einn stúdent
drepinn í þessu nýlega. Við fá-
um svo til ekkert að sofa, og
yfirleitt enga frístund, verðum
að fara á fætur eldsnemma,
lesa í nokkra klukkutíma, fara
í hina og þessa leiki, og gera
allan ands........sem okkur
er skipað. Allan þennan tíma
verðum við að ganga í
strigapokum, fara allra okkar
ferða í strigapokum, hvort sem
það er á fyrirlestra eða eitt-
hvað annað. Það fyrsta, sem
maður gerir, er venjulega að
klippa göt á pokann, svo
að hægt sé að fara í jakka
og buxur utan yfir. Það þarf
náttúrulega ekki að taka það
fram samkvæmt framansögðu,
að eitt af skilyrðunum fyrir að
komast inn í ,,fraternity“, er að
maður hafi læknisvottorð um
hestaheilsu. Þegar svo hell week
er lokið, getum við hagað okkur
alveg eins gagnvart nýliðunum
og gert var við okkur.
— Er nokkuð fleira, sem þú
getur sagt okkur um skóla-
lífið?
— Nei, það held ég tæplega,
það má þó kannski geta þess,
að nemendur búa annað hvort
í heimavistum eða húsum fé-
laganna, það er að vísu líka
hægt að leigja sér íbúð eða
hcrbergi annars staðar, en allt
slíkt fer um hendur skólayfir-
valda, sem veita leyfi til að
leigja húsnæði utan skólans.
Kvenþjóðinni er skylt að koma
inn kl. hálf ellefu á kvöldi,
nema laugardögum kl. hálf eitt.
Hins vegar megum við strák-
arnir vera eins lengi úti og
okkur sýnist.
KOMA ARTHUR MILLER OG MARILYN
MONROE TIL ÍSLANDS?
BANDARlSKA leikritaskáldið heimsfræga, Arthur Miller er á förum í fyrirlestrarferð
til Norðurlandanna. Til mála liefur komið, að Miller komi liér við, sömu erinda, á veg-
um stúdentaráðs og Stúdentafélags Reykjavíkur. Eiginkoua Millers, hin kunna kvik-
myndaleikkona Marilyn Monroe verðnr í fylgd með manni sínum. Sigurður A.
Magnússon blaðamaður hefur haft milligÖngu um þetta heimhoð. Þegar þetta er ritað,
er enn ekki vitað, hvort úr heimsókn þeirra hjóna hingað til lands getur orðið.