Stúdentablaðið - 01.12.1966, Qupperneq 18
Frá Félagi
studenta í heimspekideild
þessu, má benda á að umrætt her-
bergi getur aðeins tr.lizt bráðabirgða-
lausn. Það er svo 11 gluggalaust og
loftræstingarlaust með öllu og hlýtur
því af þessu og ýmsum öðrum á-
stæðum að flokkast undir heilsu-
spiilandi húsnæðis, þótt enn sé ekki
kunnugt um meiri háttar heilrutjón
af þess völdum.
A síðastliðnu starfsári gekkst
Mímir fyrir alls kyns fræðslu og
félagsstarfsemi sem á undanförnum
árum. I nóvember flutti Haraldur
Sigurðsson bókavörður erindi um
kortagerð yfirleitt, en þó með hlið-
sjón af þá nýkunngerðu Vínlands-
korti, sem hafði valdið mönnum
ýmsum heilabrotum og sálarkvöl-
um.
Nokkru síðar varð próf. Halldór
Halldórsson við þeirri bón félagsins
að flytja erindi um kennslufyrir-
komulag og málefni deildarinnar,
sem þá voru ofarlega á baugi.
Þáverandi sendikennari Thorkil
Damsgaard Olsen fiutti erindi um
ýmis vandamál í sambandi við kon-
ungasögur. Hlutust af nokkrar um-
ræður, og sýndist sitt hverjum að
vanda.
I febrúar flutti Jón Böðvarsson
cand. mag. hið fróðlegasta erindi
um kjaramál háskólamenntaðra
manna og þó einkum íslenzku-
manna, og þótti mönnum það heldur
ófögur lýsing. Þó að Mímismönnum
sé fátt ógeðfelldara en að taka undir
sultarsöng mataráhyggjumanna nú
á dögum, þótti mönnum þó einsýnt,
að við slíkt mætti ekki una mögl-
unarlaust. Var því í samræmi við
önnur félög í Heimspekideild sam-
anborin yfiriýsing ein, harðorð nokk-
uð, og send æðstu máttarvöldum til
umsugsunar og íhugunar.
Nokkru síðar kom próf. Sigurður
Nordal á fund í félaginu, og flutti
hann skemmtilegt og fróðlegt erindi
um íslenzk fræði fyrr og nú. Þótti
sá fundur takast með afbrigðum vel.
I apríl var haldinn síðasti félags-
fundur Mímis. Var þar á boðstólum
ýmislegt efni í samantekt stúdenta í
íslenzkum fræðum.
Rannsóknaræfingar voru tvær að
vanda og skipulagðar í samræmi við
Félag íslenzkra fræða. A hinni fyrri
flutti próf. Bjarni Guðnason erindi
um siðgæði Islendingasagna, en á
hinni síðari f jallaði Olafur Halldórs-
son cand. mag. um heimildir Fær-
eyingasögu. Að erindum loknum
lyftu menn glösum í þakklætisskyni
fyrir inntekinn fróðleik.
Þorrablót félagsins var að þessu
sinni haldið á góu sökum húsnæðis-
skorts. Blótið þótti takast með ágæt-
um, enda voru veitingar góðar og
allur viðurgerningur. Ymis skemmti-
atriði voru, bæði undirbúin og ekki.
Að lokum var stiginn dans.
Um vorið gekkst félagið fyrir
ferðalagi um Dalasýslu undir leið-
sögn Árna Björnssonar cand. mag.
Voru þátttakendur mjög ánægðir
með ferð þessa.
Félagið Mímir sá að venju um út-
gáfu samnefnds blaðs. Efnið var að
sjálfsögðu nokkuð misjafnt, en í
heild var blaðaútgáfan félaginu til
sóma.
Að lokum má minnast á það, sem
efst er á baugi hjá Mími þessa stund-
ina, en það er undirbúningur afmæl-
is félagsins, en Mímir verður tvítug-
ur 11. des. n. k. Hyggst félagið hafa
viðbúnað allmikinn vegna þessara
merku tímamóta. Hyggja ýmsir gott
til glóðarinnar í sambandi við af-
mæli þetta, og er vonandi, að menn
verði ekki fyrir vonbrigðum.
Olafur Oddsson stud. mag.
Félag stúdenta í heimspekideild var
formlega stofnað 3. febr. 1966, og
sátu 30 manns stofnfundinn. Undir-
búningsfundur hafði verið haldinn 6.
okr. 1965 og þar kosin nefnd til að
undirbúa og boða til stofnfundarins.
I Iögum félagsins segir, að allir
stúdentar í heimspekideild séu sjálf-
krafa meðlimir í félaginu. Fyrstu
stjórn félagsins skipuðu: Björn Teits-
son, formaður, Björn Þorsteinsson,
gjaldkeri, og Rafn Guðmundsson,
ritari.
Einn almennur félagsfundur var
haldinn á s. 1. vetri. Var það 30.
marz og var Kristján J. Gunnarsson,
skólastjóri, fenginn til að hafa fram-
sögu á fundinum um stöðu skólans
í þjóðfélaginu. Fjallaði hann m. a.
um æskilega stefnumörkun í sam-
bandi við breytingar á íslenzka
skólakerfinu. Fundurinn var því
miður fámennur, en umræður urðu
samt sem áður fróðlegar og
skemmtilegar
Hinn 17. apríl efndi félagið til
rannsóknarferða um Borgarfjarðar-
hérað. Þrátt fyrir fremur slæmt veð-
ur reyndist þetta hin bezta ferð.
Komið var í Reykholt, að Bifröst og
Borg og víðar, og voru Borgfirðing-
ar hinir ágætustu heim að sækja.
Leiðsögn önnuðust Jón Böðvarsson
cand. mag. og Böðvar Guðmundsson
stud. mag. Þátttakendur voru 44.
Ferðakostnað greiddi menntamála-
ráðuneytið. Hér má einnig geta þess
að félagið hlaut í vor styrk af fé há-
skólans til félagsstarfa og fé til stúd-
entaskipta frá stúdentaráði. Fyrir
þessar fjárveitingar er félagið þakk-
látt.
As. 1. vori sendu stjórnir Félags
stúdenta í heimspekideild, Mímis, fé-
lags stúdenta í ísl. fræðum, og Félags
stúdenta í Iandafræði frá sér álits-
gerð til dagblaðanna og ýmissa op-
inberra aðila, þar sem mótmælt var
eindregið þeirri stefnu, sem ríkj-
andi virðist vera í launamálum
kennara. Fylgdi með rökstuðningur,
þar sem bent var á, hve nám í heim-
spekideild hefur verið þyngt og jafn-
framt þó af Kjaradómi minnkaður
launamismunur milli háskólamennt-
aðra kennara og réttindalausra. Er
hér vissulega um að ræða mál, sem
stúdentar í heimspekideild geta ekki
látið með öllu afskiptalaust eða óá-
talið.
Eitt af höfuðmarkmiðunum með
stofnun félagsins var að vinna að
framgangi hagsmunamála stúdenta
í deildinni. I samræmi við þetta skrif-
aði stjórn félagsins í febr. s. I. bréf til
háskólayfirvaldanna, þar sem kvart-
að var yfir of litlu lestrarrými í húsa-
kynnum skólans. Heimspekideild tók
með bréfi til háskólaráðs undir óskir
okkar í þessu máli. Mál þetta leystist
skömmu síðar í bili með því, að há-
tíðasalurinn var tekinn til afnota sem
lestrarhúsnæði. I marz skrifaði stjórn
félagsins Heimspekideild bréf, þar
STÚ DENTABLAÐ
18