Stúdentablaðið - 01.12.1966, Side 19
sem kvartað var yfir því, að ekki
væri tekið nægilegt tillit til æski-
legs heildarsamræmis við samningu
stundatöflu heimspekideildar. Við-
brögð deildarinnar voru þau að boða
formann félagsins á deildarfund með
prófessorum. Samþykkti þar deildin
fyrir sitt leyti tillögu félagsins í fyrr-
nefndu bréfi um að skipuð yrði sam-
starfsnefnd háskólakennara og stúd-
enta um málið og tilnefndi dr. Matt-
hías Jónasson sem formann nefnd-
arinnar og til var dr. Símon Jóh.
Agústsson. Stjórn félagsins tilnefndi
fyrir sitt leyti í nefndina þrjá stúd-
enta og þann fjórða til vara. Nefnd
þessi á að starfa að því að koma
betra lagi og samræmingu á að því
er varðar gerð stundaskrár fyrir
deildina. Því miður var nefndin
aldrei kölluð saman í sumar, en hef-
ur komið saman nú í haust, og verð-
ur vonandi einhverra tíðinda að
vænta af þeim vettvangi er fram líða
stundir.
Fráfarandi stjórn félagsins hóf
aðgerðir í þá átt að koma á stúd-
entaskiptum við samsvarandi félag
við Oslóarháskóla, og er nú beðið
eftir svari frá stúdentunum þar.
Síðasta verk fráfarandi stjórnar
var að gefa út lítið Fréttabréf með
tíðindum af starfi félagsins, og var
það ekki sízt ætlað nýstúdentum.
Aðalfundur félagsins var síðan hald-
inn 10. nóv. s. 1. Er stjórnin nú
þannig skipuð: Björn Þorsteinsson,
formaður, Rafn Guðmundsson,
Kristín Blöndal, Sigurgeir Stein-
grímsson og Nína Þórðardóttir.
Að lokum þykir hlýða að árétta
það enn frekar, að einna brýnast
hagsmunamál stúdenta við deildina
virðist vera að námsaðstaða þeirra
verði bætt á ýmsan hátt. Þessi deild
hefur verið bagalega vanrækt að
ýmsu leyti og því orðið hálfgerð
ruslakista í sumu tilliti. Þetta bitnar
mest á þeim stúdentum, sem vilja í
raun og veru taka próf með fullum
réttindum út úr deildinni, ekki sízt
eftir reglugerðarbreytinguna, sem
miðar ótvírætt að þyngingu námsins.
En nú þegar er komin nokkur reynd
á framkvæmd forprófa og fleiri ný-
mæla, og má telja fullvíst, að ýmis
atriði á því sviði megi lagfæra að
fenginni reynslu til ótvíræðs hag-
ræðis fyrir alla aðila. Eigi það að fást
fram, þurfa stúdentar við deildina
óefað að standa fast saman í þessu
tiltölulega lítt reynda félagi sínu.
Björn Teitsson.
Fréttip
af
starfi
pólitísku
Frá Félagi
róttækra stúdenta
Félag róttækra var stofnað 13. apríl
1934, sem samfylking stúdenta gegn
áhrifum auðvaldsins og fasisma inn-
an Háskólans. I félaginu voru margir
stúdentar, sem nú eru hóskólapró-
fessorar og alþingismenn og tilheyra
nú ýmsum stjórnmálaflokkum. Fé-
lagið klofnaði skömmu fyrir seinni
heimstyrjöldina er hinn róttæk-
ari armur félagsins lýsti yfir stuðn-
ingi við Sósíalismann, en hinir stofn-
uðu Félag frjálslyndra stúdenta.
Síðan hefur margt á daga félags-
ins drifið, en á aðalfundi félagsins í
október 1966, voru lög þess loks
endurskoðuð. Þar er höfuðmarkmið
félagsins svo skilgreint að F. R. S.
hyggst glæða skilning stúdenta á
þjóðfélagsmálum og berjast fyrir
sigri hins lýðræðislega sósíalisma á
Islandi. Auk þess eru settar fram
kröfurnar um: að nám verði viður-
kennt þjóðnytjastarf og launað sam-
kvæmt því, um eflingu lifandi ís-
lenzkrar menningar og hvatt til sam-
stöðu allra stúdenta um hagsmuna-
mál sín.
Á aðalfundinum rakti Jón Böðv-
arsson cand. mag. sögu félagsins og
Júníus Kristinsson ræddi um hin
nýju viðhorf eftir sigur B-listans.
Drög að starfsáætlun var samþykkt
og hefur áætlunin nú verið gefin út
og dreift í Háskólanum. í stjórn
voru kjörnir: Magnús Jónsson stud.
philol. formaður, Rafn Guðmunds-
son stud. philol ritari og jafnframt
ritstjóri Nýja Stúdentablaðsins, Olaf-
ur Einarsson stud. mag. gjaldkeri.
Meðstjórnendur: Jón Sigurðsson
stud. philol og Jóhann Bergmann
stud. polyt.
Starf pólitísku stúdentafélaganna
hefur á undanförnum árum verið
heldur lítið, síðan pólitískar lista-
kosningar til stúdentaráðs voru af-
numdar. Eftir þá breytingu, sem nú
hefur verið gerð á félagsstarfsemi
innan Háskólans hefur starfsaðstaða
félaganna batnað á ný.
I fyrravetur myndaðist sterk sam-
staða háskólastúdenta um undir-
skriftasöfnun um að krefjast lokun
Keflavíkursjónvarpsins. Félag rót-
tækra var umhugað um að sú sam-
staða héldist og tók því þátt í fram-
boði B-listans til kjörs til Stúdentafé-
lags Háskóla íslands. Sigur B-listans
sannaði nauðsyn samstöðu allra
þjóðhollra stúdenta og stefnuskrá
B-listans var málefnagrundvöllur,
sem Félag róttækra var fúst til að
berjast á.
En jafnframt samstöðunni um hin
nýju viðhorf, vill Félag róttækra
glæða skilning stúdenta á þjóðfé-
lagsmálum og þá sérstaklega hug-
sjónum sósíalismans. Því hefur fé-
lagið gefið út starfsáætlun, sem ber
vott um fjölþætt vetrarstarf. F. R. S.,
var fyrsta pólitíska stúdentafélagið
til að hefja starf á þessu hausti og
ber það vott um bætta aðstöðu fé-
lagsins eftir breytingarnar á félags-
lífi háskólastúdenta.
Höfuðatriðin í starfi félagsins í
vetur verða þrír umræðuhópar, sem
eiga að koma saman aðra hvora viku.
Fyrsti hópurinn fjallar um leiklist,
annar um ný viðhorf til sósíalisma,
þriðji um samtímabókmenntir. Hóp-
arnir eru þegar teknir til starfa.
Auk þessara umræðuhópa, mun
málgagn félagsins, Nýja Stúdenta-
blaðið koma út og kemur fyrsta
blaðið í byrjun desember. Einnig er
ætlunin að halda nokkra almenna
fundi um ýmis málefni og hefur m.
a. C. H. Hermannson, formanni
sænska kommúnistaflokksins verið
boðið að halda fyrirlestur á vegum
félagsins.
Félag róttækra stúdenta skorar á
alla stúdenta að kynna sér stefnu og
starf Félags róttækra og afstöðu fé-
lagsmanna í hagsmunamálum stúd-
enta. Tími fordóma og áróðurskýja
kalda stríðsins er að linna. Við hvetj-
um stúdenta til að hugleiða hlutlægt
stefnu félagsins og skipa sér í raðir
róttækra stúdenta.
F. R. S.
Frá Vöku,
félagi lýðræðissinnaðra stúdenta
Breytingar á
stjórnunarmálum stúdenta
Að vonum markaðist starf VÖKU
s. I. starfsár fyrst og fremst af þeim
breytingum, sem áttu sér stað á
stjórnunarmálum háskólastúdenta,
enda hafði stefna félagsins um all-
langt skeið verið að ráða bót á þeim
óviðunandi lögum um S. H. I., er
gengu í gildi 1960. Með þeim lögum
var grundvellinum að mestu kippt
undan starfsemi pólitísku félaganna,
og stúdentaráðskosningarnar urðu
eins konar skollaleikur, kryddaður
lýsingarorðum eins og „ópólitískur"
og „hlutlaus".
Nefnd sú, er starfaði sumarið
1965 og undirbjó breytingarnar á
skipulagi félagsmála háskólastúd-
enta, lagði til, að haslaður yrði völlur
fyrir „pólitískar" umræður innan há-
skólans, jafnframt með það í huga,
19
STÚDENTABLAÐ