Stúdentablaðið - 01.12.1966, Síða 20
Frá Félagi
frjálslyndra stúdenta
að stúdenta varðaði stjórnmál engu
síður en aðra þegna þjóðfélagsins.
Stúdentafélagskosningarnar
S. 1. vor samþykkti S. H. I. lög fyrir
S. F. H. I., en samkvæmt þeim skal
félagið fjalla um almenn félagsmál
háskólastúdenta og vera að auki vett-
vangur þjóðfélags- og menningar-
mála. I beinu framhaldi af framan-
sögðu bauð VAKA fram við kosn-
ingar til stjórnar Stúdentafélagsins
15. október s. 1. Hlaut VAKA u. þ.
b. 49% greiddra atkvæða eins og
kunnugt er.
Af einhverjum „óskiljanlegum"
ástæðum mættu hin stjórnmálafélög-
in þrjú ekki til leiks, heldur héldu
áfram áður uppteknum „sauðar-
gæruskollaleik". Má þó búast við
því, að innan skamms komi rétt
andlit þeirra í ljós, enda er stúdent-
um Ijóst, að ný lög eru í gildi geng-
in, og „grímudansleiknum" er lokið.
Aðalfundur VÖKU
Aðalfundur VÖKU, félags lýðræðis-
sinnaðra stúdenta, var haldinn að
Hótel Sögu 15. nóvember s. 1. I
skýrslu fráfarandi stjórnar kom m. a.
fram, að fjórir fyrirlesarar úr röð-
um háskólastúdenta höfðu komið á
fundi hjá félaginu: Jón E. Ragnars-
son, Jakob R. Möller, Skúli G. John-
sen og Vladimir Jakúb, rússneskur
háskólamaður, sem hér stundaði
nám í fyrravetur.
I stjórn félagsins fyrir næsta
starfsár voru kjörnir: Friðrik Sophus-
son stud. jur. formaður, Páll Bragi
Kristjónsson stud. jur. varaformaður,
Ármann Sveinsson stud. jur., Bjarni
Lúðvígsson, stud. jur., Gylfi Þ.
Magnússon, stud. oecon., Ingólfur
Hjartarsson stud jur., Jóhannes M.
Gunnarsson stud. med., Júlíus S.
Ólafsson stud. oecon og Leifur
Dungal stud med. I kjördeildarráð
voru kjörnir: Brynjólfur Kjartansson
stud. jur., Guðjón Magnússon stud.
med., Georg Ólafsson stud. oecon.,
Hjörtur Hannesson stud. polyt. og
Sigurður Sigurðarson stud. theol.
Eftirfarandi ályktun, vegna fram-
komins frumvarps á Alþingi, var
samþykkt:
Aðalfundur VÖKU, félags lýð-
ræðissinnaðra stúdenta, haldinn að
Hótel Sögu 15. nóv. fagnar þeirri
stefnu, sem fram kemur í frumvarpi
ríkisstjórnarinnar á Alþingi um
námslán og námsstyrki.
Fundurinn telur mikilsvert:
1) Að íslenzkir námsmenn er-
lendis og þeir, sem stunda nám við
Háskóla Islands njóti sömu aðstöðu
með sama hætti til opinberrar að-
stoðar.
2) Að tekið verði upp jafn-
greiðslukerfi (annvitet) til endur-
greiðslu á námslánum.
3) Að veittir skuli kandidata-
styrkir til þeirra, sem stunda nám
til lokaprófs.
Hins vegar bendir fundurinn á
brýna nauðsyn þess, að fjárframlög
úr ríkissjóði verði aukin að miklum
mun til að breytingarnar nái tilætl-
uðum árangri.
Að lokum
VAKA, félag lýðsæðissinnaðra stúd-
enta, var stofnað 1935 af nokkrum
háskólastúdentum. VAKA er sjálf-
stætt stjórnmálafélag, sem grund-
vallast á lýðræðishugsjónum og
berst gegn hvers konar ofbeldis- og
öfgastefnum á sviði félagsmála. All-
ir lýðræðissinnaðir stúdentar geta
því tekið þátt í störfum félagsins.
Eins og að undanförnu mun starf
félagsins aðallega felast í blaðaút-
gáfu og fundahöldum um þjóðfé-
lags- og menningarmál, enda er vett-
vangur félagsins að ræða stjórnmál
á „akademiskum" grundvelli.
Félag frjálslyndra stúdenta var stofn-
að 29. apríl 1939. Stofnendur þess
voru 25 að tölu og meðal þeirra
getur að líta nöfn margra merkra
manna. Geta má þess, að í hópi
stofnenda voru tveir núverandi al-
þingismenn, einn hæstaréttardómari
og þrír prófessorar við H. I. Eitt af
stefnuskrármálum félagsins frá upp-
hafi hefur verið að vinna að félags-
og hagsmunamálum stúdenta svo og
að kynna þeim þjóðmál. Samkvæmt
þessu hefur félagið starfað í rúman
aldarfjórðung. Á þessu tímabili hef-
ur á ýmsu oltið, félagsstarfið hefur
risið og hnigið líkt og gerist og
gengur. Á undanförnum árum hefur
verið sérstaklega erfitt um vik fyrir
þau pólitísku félög, sem hafa starf-
að í háskólanum. Hefur ekkert
þeirra farið varhluta af þeim erfið-
leikum. Þrátt fyrir þessa erfiðleika
hefur F. F. S. alltaf haldið uppi stöð-
ugri félagsstarfsemi. Stjórn félagsins
síðastliðið starfsár var skipuð eftir-
töldum: form. Friðgeir Björnsson
stud. jur., varaform. Heimir Pálsson
stud mag., ritari Snorri Sveinn Þor-
geirsson stud. med., gjaldkeri Val-
garður Egilsson stud. med. og spjald-
skrárritari Þorsteinn Skúlason stud.
jur. Stjórnin hélt auk allmargra
stjórnarfunda þrjá almenna félags-
fundi þar sem rædd voru ýmis fróð-
leg og nytsöm mál.
Félagið þáði boð rússneska sendi-
ráðsins til kvikmyndasýningar og
nutu félagsmenn hinnar alkunnu
rússnesku veitingagestrisni að sýn-
ingu lokinni.
Þá tóku þeir formaður Friðgeir
Björnsson stud. jur. og Gunnar
Karlsson stud. mag. þátt í störfum
samstarfsnefndar F. F. S. og S. U. F.
um utanríkismál.
Á árinu gerðist F. F. S. aðili að
heimssamtökum frjálslyndra og rót-
tækrar æsku — The World Federa-
tion of Liberal and Radical Youth,
WFLRY — og sótti formaður árs-
þing þeirra samtaka, sem haldið var
í Varese á Italíu 17.—19. sept. s. 1.
Þrír félagsmenn höfðu áður farið
utan á vegum þessara samtaka til
þess að kynna sér störf og stefnu
þeirra. F. F. S. væntir sér mikils af
þátttökunni í störfum WFLRY.
Með tilkomu hins nýendurreista
Stúdentafélags hafa ný viðhorf skap-
azt á pólitískum vettvangi stúdenta.
Félagið hefur lýzt fullum stuðningi
við stefnuskrármál B-listans og mun
veita atbeina sinn til þess að koma
þeim í framkvæmd eftir því, sem
tækifæri gefast til.
Á aðalfundi félagsins, sem hald-
inn var 19. nóv. 1966 var stjórn
félagsins kjörin, sem hér segir: Þor-
steinn Skúlason stud. jur. formaður,
Guðbrandur Steinþórsson stud.
polyt., Rúnar Guðjónsson stud. jur.,
Finnbogi H. Alexandersson stud.
jur. og Hjálmar Freysteinsson stud.
med. I varastjórn: Gísli Magnússon
stud. philol. og Völundur Jónsson
stud. philol. Endurskoðendur voru
kjörnir Einar Kristinsson stud.
philol. og Guðmundur Einarsson
stud. oecon. Eg vil að lokum hvetja
stúdenta til þess að kynna sér stefnu
Félags frjálslyndra stúdenta og taka
þátt í starfsemi þess.
Friðgeir Björnsson.
STÚ DENTABLAÐ
20