Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1966, Side 22

Stúdentablaðið - 01.12.1966, Side 22
stud. med. Sumarfagnaður fór að venju fram á Hótel Borg að kvöldi síðasta vetrardags. Þar var einnig haldinn vetrarfagnaður 22. okt. s. 1. og sá hin nýskipaða stjórn Stúdenta- félags Háskólans um fagnaðinn, en formaður hennar er Aðalsteinn Ei- ríksson stud. theol. Meðal annarra stúdentafagnaða má nefna árshátíð garðanna, svo og tvö garðsböll. Bókmenntakynningar, mál- og stúdentafundir I febrúar s. 1. gekkst bókmennta- kynningarnefnd fyrir kynningu í kaffistofu Háskólans. Þar ræddi Sig- urður A. Magnússon um gríska Nóbelsverðlaunaskáldið Georgis Seferis og kynnti verk hans. Mál- fundur var hald’nn í setustofu Gamla-Garðs og var umræðuefnið „Kristin trú og kirkja". Framsögu- menn voru Sig. Orn Steingrímsson stud. theol. og Sverrir Hólmarsson stud. mag. I febrúar s. 1. var haldinn fundur í Sigtúni og var umræðu- efnið: „A ríkið að styrkja blöðin". Framsögumenn voru blaðamennirn- ir Eiður Guðnason og Styrmir Gunn- arsson. Skilafundur fráfarandi stúdenta- ráðs fór fram 3. marz. Fluttu þar Björn Teitsson, stud. mag. fráfarandi formaður og Tómas Sveinsson, stud. theol. fráfarandi gjaldkeri skýrslu sína. A almennum stúdentafundi í jan. s. 1. voru samþykktar víðtækar lagabreytingar á lögum fyrir stúd- entaráð. Fundurinn var allfjölmenn- ur og fjörugar umræður spunnust um málið. Þá var og framboðsfund- ur 13. okt. s. 1. til kosninga í stjórn Stúdentafélags Háskólans, en það félag hefur nú mikilvægu hlutverki að gegna í félagsmálum stúdenta. Fundurinn var mjög fjölmennur, enda var hér um pólitísk framboð að ræða og því sótt og varizt af mikilli hörku. Stúdentakórinn Starfsemi stúdentakórsins stendur nú í miklum blóma. A skírdag í vor hélt kórinn söngskemmtun í Gamla Bíó, við góðar undirtektir. Ennfrem- ur söng kórinn í útvarpið síðasta vetrardag og á háskólahátíðinni. Kórnum hefur verið boðið á afmæli stúdentakórsins í Ábo í Finnlandi, ásamt kórum frá hinum Norðurlönd- unum. Er nú æft af kappi og hefur kórinn fullan hug á að þiggja þetta ágæta boð. Stjórn kórsins annast sem áður Jón Þórarinsson, tónskáld. Fyrirlestrar Stúdentar helguðu 1. des. s. 1. efninu „Varðveizla þjóðernis". Flutti Sig- urður Líndal hæstaréttarritari frá- bæra ræðu um það efni. Kveikti sú ræða eld í brjóstum stúdenta og undirrituðu 600 þeirra áskorun til Alþingis um að loka beri Keflavík- ursjónvarpinu. S. 1. vetur flutti Sig- urjón Björnsson, sálfræðingur, fyrir- lestur um „Sálfræðilegar bók- menntasýningar". Þá flutti dr. Gísli Blöndal, hagfræðingur, fyrirlestur um „Þróun fjármálastjórnar á Is- landi", sem hann byggði að miklu leyti á doktorsritgerð sinni. A veg- um Háskólans flytur nú prófessor Þórhallur Vilmundarson fyrirlestra- flokk um íslenzk örnefni og gerir þar grein fyrir nýrri leiðsögukenn- ingu um það efni. Fyrsti fyrirlestur- inn var haldinn í hátíðasalnum 13. nóv. s. 1. og nefndist „Kennd er við Hálfdán hurðin rauð". Næsti fyrir- lestur var svo haldinn 20. nóv. og nefndist „Er á ferli úlfur og refur". Báðir þessir fyrirlestrar voru frá- bærlega vel sóttir og vöktu verð- skuldaða athygli. Erlent stúdentastarf Starf utanríkisnefndar hefur verið all mikið á síðasta ári, þar sem svo hefur borið við, að á þessum tíma hefur bæði verið haldið alþjóðlegt þing stúdenta og haldin norræn for- mannaráðstefna hér á landi, en þessir tveir þættir hafa löngum verið ein helztu verkefni nefndarinnar. Síðast í marz sótti Björn Bjarna- son stud. jur., form. utanríkisnefnd- ar stúdentaráðs seminar sem Norsk Student Union gekkst fyrir og rædd voru utanríkismál stúdenta. í maí sóttu þeir Skúli G. Johnsen, stud. med., formaður stúdentaráðs, Gunnar Benediktsson, er nemur í Stokkhólmi og Björn Bjarnason nor- ræna formannaráðstefnu, sem hald- in var í Stokkhólmi. Um 17. maí fór Björn Teitsson, stud. mag., fyrrv. form. stúdentaráðs á vegum stúdentaráðs í boði norskra stúdenta til Oslo á alþjóðlega stúd- entaviku, sem haldin er í kringum þjóðhátíðardag Norðmanna. Um miðjan júní fór Andri Isaks- son á vegum stúdentaráðs til Nairobi og tók þar þátt í Austur-afríkönsku seminari, sem haldið var þar af stúd- entasamtökunum á Norðurlöndum. í síðasta stúdentablaði skýrði Andri frá þessari ferð sinni. Um Ólafsvöku hátíð Færeyinga sóttu tólf íslenzkir stúdentar Fær- eyjar heim í boði færeyskra stúdenta. Bjuggu þeir á heimilum í Færeyjum og dvöldust þar í viku tíma í góðu yfirlæti. Ferð þessi var skipulögð af Ferðaþjónustu stúdenta. Þá ber að geta þess, að á næsta sumri mun Stúdentaráð bjóða hingað til lands 12 færeyskum stúdentum. Þá dvald- ist Svavar Sigmundsson í Færeyjum um mánaðartíma á styrk frá MFS, Meginfélagi Færeyskra Stúdenta. Stúdentaráð undirbýr nú komu fær- eysks námsmanns til líkrar dvalar hér. I ágúst var haldið í Nairobi, Kenya, 12. alþjóðaþing Interna- tional Student Conference. Þing þetta sóttu fyrir Stúdentaráð þeir Björn Bjarnason og Ástráður Hreið- arsson, stud. med., varaform. utan- ríkisnefndar, skýrsla um þingið hef- ur þegar birzt í Stúdentablaði. Hinn 9—11 nóv. s. 1. var haldin hér á landi formannaráðstefna nor- rænu stúdentasamtakanna, sú fjórða, sem haldin er hérlendis. Ráðstefnu þessa sátu 10 erlendir gestir og var hún haldin á Hótel Loftleiðum, þar sem gestirnir bjuggu. Frekari grein- argerð um ráðstefnuna hefur ekki verið gerð enn og mun hún birtast síðar. Skipnlagsbreytingar Samþykktar voru víðtækar laga- breytingar á lögum S. H. í. 26. jan. 1966. Má í raun réttri segja, að lög- unum hafi ekki verið breytt, heldur hreinlega búin til ný, enda er þetta langróttækasta breytingin, sem gerð hefur verið á lögum Stúdentaráðs allt frá stofnun þess árið 1920. Heildarstefna nýju laganna felst m. a. í enn aukinni verkaskiptingu, meira samhengi í störfum (allir sitja tvö ár) svo og auknu starfi nefnda innan ráðsins. Stúdentafélag Háskól- ans hefur verið falið að sjá um allar skemmtanir og almennt félagslíf stúdenta. Stúdentaráð hefur tekið upp náið samstarf við Samband ísl. stúdenta erlendis (SISE). Má t. d. nefna námskynningar á vegum þess- ara tveggja stúdentasamtaka, er tók- ust allar einkar vel. STU DENTABLAÐ 22

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.