Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1966, Blaðsíða 34

Stúdentablaðið - 01.12.1966, Blaðsíða 34
«lón Þ. Þóp skrifar um Athugasemd við grein Vésteins Ólasonar um stofnun SÍH Stjórn Stúdentafélags Háskóla ís- lands hefur fallizt á, að undirritaður fengi að gera athugasemd við grein Vésteins Olasonar „Um stofnun Sambands íslenzkra háskólastúd- enta" (SÍH), sem birtist hér í blað- inu. Astæðan er sú, að í téðri grein er drepið á allmörg atriði, sem orka tvímælis, og gætu gefið lesendum hennar rangar hugmyndir um málið, einkum er varðar afstöðu Stúdenta- ráðs til stofnunar SIH. Astæðuna fyrir því að Vésteinn ritar grein sína, segir hann vera þá, að hann vænti, að þeir sem ákvörð- un eiga að taka um þetta mál verði einhverju nær eftir lesturinn, því að hann telji það mjög miður farið, ef skortur á þekkingu og skilningi á þessu mikilvæga máli yrði til þess að hindra framkvæmd þess! Síðan heldur Vésteinn því fram, að þeirrar skoðunar hafi gætt mjög meðal stúdentaráðsmanna, að þessi sameiningarmál væru þeim svo ó- kunn, að þeir ættu erfitt með að mynda sér rökstudda skoðun um þau, og jafnvel, að raddir hefðu heyrzt innan Stúdentaráðs, sem mæltu gegn stofnun SÍH. í þokka- bót hefði komið fram gagnrýni á samkomulagsgrundvöll þann, sem gerður var með Stúdentaráði og Sambandi ísl. stúdenta erlendis árið 1965. Það fer ekki fram hjá neinum, sem les grein Vésteins, að í henni felst mikil gagnrýni á Stúdentaráð, þar sem það er ásakað fyrir að sýna málinu tómlæti og jafnvel fyrir að vilja sameininguna feiga sökum þekkingarskorts og skilningsleysis. Hið rétta í málinu er, að Stúdenta- ráð hefur fylgzt mjög vel með mál- inu frá því, að það var tekið til um- ræðu. Stúdentaráðsmenn hafa fengið öll málsgögn í hendur og hlýtt á boðskap Andra Isakssona.r, sem helzt hefur verið í forsvari fyrir SISE. Það hefur aldrei komið annað fram en að stúdentaráðsmenn hafi verið hlynnt- ir stofnun SIH, og hafa allir stúd- entaráðsmenn staðið að viljayfirlýs- ingu um það mál. Það sem hingað til hefur staðið í vegi fyrir, að málið kæmist lengra áleiðis en raun ber vitni, er hvorki þekkingarskortur né skilningsleysi stúdentaráðsmanna eins og Vésteinn vill vera láta, enda verður að gera ráð fyrir, að þeim stúdentaráðsmönn- um, sem koma til með að gefa mál- inu mestan gaum, og ráða úrslitum þess, séu þau rök löngu kunn, sem fram koma í grein Vésteins. Það sem staðið hefur í vegi er, að þeim fulltrúum Sfúdentaráðs og SISE, sem skipa viðræðunefndina um sameiningarmálin, hefur ekki enn tekizt að útfæra hugmyndina í formi laga, þar sem málið hefur reynzt miklu flóknara heldur en það leit út fyrir í upphafi, — og miklu flókn- ara en Vésteinn vill vera láta í grein sinni. Af grein Vésteins verður því naumast sá dómur dreginn, að hann geti veitt nefndarmönnunum það lið- sinni, sem þarf til að koma málinu í höfn. Þær tillögur, sem Vésteinn kemur fram með í grein sinni, eru síður en svo nýjar af nálinni. Þær eru, eins og hann sjálfur segir, byggðar á samkomulagsgrundvellinum frá 1965, en hann hefur við nánari at- hugun sætt gagnrýni af hálfu beggja málsaðila, SHÍ og SÍSE. Tillögur Vé- steins eru ágætar svo langt, sem þær ná, en við nánari athugun hefur það komið í ljós, eins og áður er get- ið, að ekki nægir viljinn einn sam- an, ef ekki tekst að útfæra hugmynd- ina í öllum nauðsynlegum smáatrið- um, þannig að unnt verði að semja lög sambandsins. Þess vegna hefði Vésteinn unnið þarfara verk, hefði hann notað það mikla rúm, sem hann fær í þessu blaði, til að leysa þann vanda í stað þess að bera stúd- entaráðsmönnum á brýn þekkingar- leysi og skilningsskort, — en segja svo ekkert sjálfur til viðbótar því, sem stúdentaráðsmönnum mátti öll- um vera kunnugt. Eggert Hauksson. XIII. heimsmeistara- mót stúdenta í skak Heimsmeistaramót stúdenta í skák, hið XIII. í röðinni, var haldið í Örebro í Svíþjóð dagana 30. júlí til 14. ágúst á næstliðnu sumri. Það var árið 1952, að ákveðið var að halda slíkt mót í fyrsta skipti, bæði til þess að gefa stúdentum frá hin- um ýmsu þjóðum heims tækifæri til að reyna með sér við skákborðið svo og til þess að auka kynni á meðal stúdenta. Hið fyrsta stúdentaskák- mót var svo haldið í Liverpool árið 1952 og var þá einstaklingskeppni, og sigruðu þá Sovétmeistararnir Taimanov og Bronstein. Á næsta ári var svo mótið haldið í Brussel, en eingöngu með þátttöku V.-Evrópu- þjóða, þá var og sú breyting gerð á keppnisfyrirkomulagi, að keppt var í sveitum og heur verið svo jafnan síðan. Hér fylgir skrá yfir sigurþjóð- ina hverju sinni svo og frammistöðu íslendinga. 1953 nr. 1. Noregur, ís- land í 4. sæti, 1954 nr. 1 Tékkó- slóvakíu, Island í 5. sæti, 1955 nr. 1 U.S.S.R. ,ísland í 6. sæti, 1956 nr. 1 U.S.S.R., ísland í 9. sæti, 1957 nr. 1 U.S.S.R., ísland í 8. sæti, 1958 nr. 1 U.S.S.R., ísland í 10. sæti, 1959 sigruðu Búlgarar, 1960 Bandaríkja- menn, 1961 Sovétmenn, 1962 Sovét- menn, 1963 Tékkar, en í þessum mótum tóku Islendingar ekki þátt, 1964 sigruðu Sovétmenn en þá lentu ísiendingar í 19. sæti, 1965 sigruðu Sovétmenn enn, en þa voru Islend- ingar ekki með. Snemma á þessu ári vaknaði svo áhugi íslenzkra stúdenta á því að taka þátt í mótinu 1966, og voru gerðar ráðstafanir til undirbúnings þátttöku. I lok maímánaðar var svo liðið valið og þátttaka tilkynnt og stuttu síðar hafnar æfingar undir stjórn Friðriks Ólafssonar stórmeist- ara. Að morgni 28. júlí s. 1. lögðu eftirtaldir menn af stað til mótsins. Trausti Björnsson, Bragi Kristjáns- son, Jón Þ. Þór, Guðmundur Lárus- son og Jón Friðjónsson. Að morgni 30. júlí var mótið sett af Folke Rogard forseta alþjóðaskáksam- bandsins F. I. D. E. en daginn eftir hófst sjálf keppnin. Þar sem þátt- tökuþjóðirnar reyndust of margar til þess að hægt væri að láta allar tefla í einum riðli var það fyrirkomulag haft á, að fyrst var öllum þjóðunum skipt í 6 riðla til undanrása, og skyldu tvær efstu í hverjum riðli síð- an tefla í A-úrslitum en hinar í B-úr- slitum. Er dregið var í riðla til und- anrása, lentum við í riðli með Tékk- um og Holllendingum, við töpuðum með sama hlutfalli fyrir báðum 2VÍ — 1 Vl og lentum því í B-úrslitum. Þar gekk okkur svo aftur á móti mjög illa og höfnuðum við í 6. sæti í riðlinum, 18. sæti yfir allt mót- ið. I A-riðli sigruðu Sovétmenn með yfirburðum, hlutu 34x/2 v. 2. Tékk- ar með 281/2 og í 3.—4. sæti urðu Danir og Júgóslavar með 2714> v, hvor, í B-riðli sigruðu Svíar. Hér skal ekki á neinn hátt reynt að af- saka hina lélegu frammistöðu ís- lenzku sveitarinnar, heldur einungis hvatt til þess, að undirbúningur undir næsta mót, sem væntanlega verður háð í Tékkóslóvakíu að ári, verði hafinn helzt ekki síðar en um áramót. Það er mjög gagnlegt að taka þátt í slíkum mótum, því að þau auka kynni og vináttu meðal stúdenta um allan heim. STÚDENTABLAÐ 34

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.