Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.02.1971, Blaðsíða 3

Stúdentablaðið - 01.02.1971, Blaðsíða 3
stúdenta 1. tölublað 48. árg. 1971. 2. blað starfsárið 1970-71. Útgefandi: Stúdentafélag Háskóla íslands. Ritnefnd: Benedikt Ólafsson, stud. jur., ritstj. og ábyrgðarm. Gunnar Þorsteinsson, stud. oecon, Björn Magnússon, stud. jur., Eiríkur Brynjólfsson, stud. sociol., Kári Stefánsson, stud. med. Aósetur blaðsins: Herbergi Stúdenta- félags, íþróttahúsi Háskólans, Sími 25570. Filmusett og prentað: Lithoprent hf. Bókband: Félagsbókbandið hf. frá ritnefnd GÓÐIR SAMSTÚDENTAR. Þá eru jólin gengin um garð, gamla árið runnið í tímans haf og árið 1971 heilsar okkur öllum, sem hvítt óskrifað blað. Blað sem við smárn saman fyllurn út með verkum okkar og annarra. Mér varð hugsað til þess um jólin, hví þau væru svo stutt. Þessi hátíð ljóss og friðar sem tengir flesta tryggðarböndum um stundarsakir og blæs þeim vinarþeli í brjóst. Byssur þagna á víg- völlunum, hermenn kasta. frá sér vopnum sínum og skríða upp úr skotgröfunum. Óvinir takast í hendur og drekka vinarskál. Milljónir manna ganga í kringum jólatré sín og syngja: „Heims um ból helg eru jól . . . friður á jörðu því faðirinn er fús þeim að líkna sem tilreiðir sér“; meðan vopn þeirra kólna af hita bardagans og bíða þess að þeim verði beitt á ný. Hví eru jólin svo stutt ? — Megi jólin ríkja sem lengst í hugum okkar allra. Þetta er nú annað blaðið sem út kemur í vetur. Um fyrra blaðið skal sem minnst sagt, enda var það ekki sem bezt uppsett og ákaf- lega rýrt að efni. Meira mun reynt að vanda til frágangs þessa blaðs, þó efni sé enn í rýrara lagi, enda fæstir skrifað í það af eigin frum- kvæði. Innan .Háskólans er gefinn út fjöldi annarra blaða, sem ef til vill gleypir ritsmíðar stúdenta og dregur auk þess stórlega úr sölu auglýsinga. Við þetta vaknar óneitanlega sú spurning hvort útgáfa Stúdentablaðs sé ekki óþörf, eða þá hvort ekki megi fækka hinum blöðunum. Er ekki komin tími til að taka útgáfumál innan Háskólans til rækilegrar endurskoðunar? Vona ég að sem flestir láti til sín heyra um þetta mál. Ben. Ólafsson. 3

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.