Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.02.1971, Qupperneq 12

Stúdentablaðið - 01.02.1971, Qupperneq 12
SUNDURLAUSIR ÞANKAR UM STARFSEMI S.F.H.I. í VETUR Starfsemi S.F.H.Í. hefur að ýmsu leyti verið með svipuðu móti og var í fyrra, en í öðru hafa verið farnar nýjar slóðir. Skulu þar fyrst nefndir starfs- hópar, sem stofnaðir hafa verið um þrjá málaflokka. Fjallar einn starfs- hópurinn um ísland og Evrópuhyggj- una, annar um aðstöðumun til náms og sá þriðji um þjóðfélagsvaldið. Þátt- taka hefur ekki verið mikil í þessum hópum, enda var ekki stefnt að því að svo yrði, en tveir þeir fyrstnefndu virðast komnir nokkuð örugglega á laggirnar. Hægar hefur gengið að koma starfsemi þess þriðja í fast form. önnur nýjungin í starfsemi S.F.H.Í. er ný fundaform. Hefur verið reynt að tengja fundagesti umræðuefninu nánar en unnt er á venjulegum fundum í skól- anum sjálfum. Efndi S.F.H.I. til sér- stakrar sýningar á „Táknmáli ástar- innar“ í Hafnarbíói og panelumræðna á sviði kvikmyndahússins að sýningu lokinni um ágæti kvikmyndarinnar, kynferðisfræðslu, klám o.fl. — Einn- ig var efnt til sérstakrar sýningar á kvikmyndinni „Z“ í Austurbæjarbíói og Grikklandsvöku á eftir. — öðrum framhaldsskólanemum var boðið að sækja báðar þessar samkomur og voru þær fjölsóttar. Loks var í desember efnt til ökuferðar um borgina í hóp- ferðabifreið og rætt um varðveizlu gamalla húsa og borgarhverfa. Leið- sögumaður stúdenta var Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt. Efnt hefur verið til þriggja leikhús- ferða á leiksýningar, sem taka á ýms- um viðfangsefnum þjóðfélagsumræðna samtímans og hafa farið fram um- ræður við leikendur og leikstjóra að sýningum loknum. Einnig hefur verið efnt til bókmenntakynningar og þjóð- lagakynningar. Reynt hefur verið að halda uppi Sjálfumgleði í Glaumbæ á þriðjudags- kvöldum, ýmist að viðstöddum sér- stökum gesti eða án alls sliks. Hefur aðsókn verið mismikil en þó hvergi 12

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.