Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.02.1971, Síða 15

Stúdentablaðið - 01.02.1971, Síða 15
hjá Jóhannesi, og þar væri ég sennilega ennþá, ef hann hefði ekki selt. Hann er eftirminnilegur maður, Jóhannes á Borg. Hann þéraði mig alltaf, hann þéraði alla, þang- að til þeir lentu með honum í veizlu og drukku með honum, eftir það var hann dús við þá, en þar sem ég drakk aldrei, þá urðum við aldrei dús. Eitt sinn var ég að fara til Lon- don, þá kom Jóhannes til mín með stórt umslag og sagði: „Þér gætuð kannske haft not fyrir þetta, kaup- ið eitthvað á börnin.“ Þegar ég svo opnaði umslagið, þá ultu út úr því eitt hundrað pund-seðlar. Ég man líka eftir því þegar hann réði mig, þá sagði hann: „Ef gest- irnir hrósa matnum við mig, þá mun ég koma því á framfæri við yður, en kvarti einhver, þá mun- uð þér eiga mig á fæti.“ Sp: Svo tókstu við Loftleiðahótelinu. Fr: Ég var nú m. a. hjá sjálfum mér í millitíðinni og bjó til veizlumat fyrir fólk út í bæ. Síðan tók ég við hótelinu og var með það í u.þ.b. þrjú ár, þá var ég látinn víkja fyrir öðrum manni. Trúmálin hafa ef til vill spilað einhverja rullu þar, ég er nefnilega í sér- trúarflokki, Vottum Jehóva. Sp: Er ekki trúfrelsi á íslandi? Fr: Jú, einhversstaðar stendur það nú. Sp: Er eitthvað sem þú mundir vilja taka fram að lokum, um mötu- neytið hér á Garði ? Fr:.ía, ég vildi bara óska stúdentum til hamingju með hið nýja, sem rís hér við hliðina. Mér finnst Félags- stofnun gera mjög vel við þá, ef þeir fá að njóta þess einir á vetrum, því að það kemur til með að verða samkeppnisfært við beztu matsölu- staði bæjarins. Bóla NAMSFARGJOLD HMFTLEIflA „Mennt er hyggnum h»ent“ hagkvœm námsfargjöld Loftleiða stuðla að því, að ungir íslendingar sœki sér framhalds- menntun þar sem hana er bezta að fá hverju sinni. Leitið upplýsinga hjá skrifstofum Loftleiða, ferðaskrifstofunum og umboðsmönnunum víðsvegar um land. Þotur Loftleiða þjóta 30 ferðir í viku til Evrópu og Ameríku. WTLEIDIR 15

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.