Stúdentablaðið - 25.01.1974, Page 11
Alþjóðasamband stúdenfa, IUS
Framhald af 7. síðu.
örðugt að sækja. Allar þær
upplýsingar, sem á þessum
ráðstefnum fást um mennta-
mál, utanríkismál, hagsmuna-
mál og skipulagsmál stúdenta-
samtaka, eru geysigagnlegar.
Þær veita bráðnauðsynlegan
samanburð við það, sem er-
lendis gerist í þessum málum,
vekja hugmyndir um nauðsyn-
legar aðgerðir og breytingar
hér heima, o.s.frv. Jafnframt
er ákaflega uppörvandi fyrir
þá menn, sem standa í þvargi
heima á íslandi um t.d.
menntamál, e.t.v. við lítinn
skilning annarra, að hitta og
ræða við menn, sem eru að
glíma við sömu vandamál.
Virkar öll utanríkisstarfsemi
þannig, sem beinn hvati á starf
SHl á „heimavígstöðvum“, og
viðfangsefni sín í stærra og
knýr menn jafnframt til að sjá
oftast réttara ljósi. Þá má ekki
IUS veitir SHl ómetanlega
gleyma, að þátttaka í starfi
möguleika til að gangast sjálft
fyrir fjölþjóðlegum ráðstefnum
og vekja þannig athygli á bar-
áttumálum sínum. Þannig má
hugsa sér sameiginlega ráð-
stefnu IUS og SHÍ um hern-
aðar- og fiskveiðivandamál N-
Atlantshafsins, með þátttöku
evrópskra stúdentasamtaka og
sérfræðinga. (Erik Berg form.
NUS hefur raunar fært þennan
möguleika í tal).
Nú má segja, að SHl geti
notið ferðastyrkja IUS að
nokkru leyti, án þess að leggja
nokkuð af mörkum til starfs
þess. Slíkt telst varla rismikill
hugsunarháttur.
1 þriðja lagi telur greinar-
höfundur það siðferðilega
skyldu SHl að leggja sitt af
mörkum í ýmsum alþjóðleg-
um baráttumálum stúdenta, t.
d. baráttunni til stuðnings
chileönskum stúdentum og
chileanskri alþýðu. Þetta verð-
ur ekki gert að neinu gagni án
þátttöku í erlendum ráðstefn-
um og baráttufundum og að-
eins að litlu leyti án virkrar
þátttöku í störfum Alþjóða-
sambandsins, sem nær undan-
tekningarlaust gengst fyrir hin-
um alþjóðlegu baráttuherferð-
um stúdenta.
I fjórða lagi skai undirstrikuð
sú skoðun fulltrúa íraogJúgó-
slava á nýafstöðnum Evrópu-
fundi, að v-evrópsk stúdenta-
sambönd hefðu verulega mögu-
leika til að hafa mikil jákvæð
áhrif á stefnu og starfsemi IUS
ef þau fylktu sér saman.
Um annað alþjóðasamband
verður sýnilega ekki að ræða.
Aðildarsambönd IUS eru 88
og hvaðanæva úr hciminum.
SHl dugir ekki til lengdar að
snúa sér út í horn og afneita
allri ábyrgð á alþjóðlegu sam-
starfi stúdenta, fremur en ís-
lenska ríkinu þýðir að hundsa
Sameinuðu þjóðirnar. Vel að
merkja: Þó að hugsast geti,
að IUS eyðileggi sjálft sig með
óbilgjarnri framkomu á þing-
um sínum. þýðir það ekki að
alskapað og nýtt alþjóðasam-
band stúdenta spretti upp úr
draumórakollum Vökupilta.
I fimmta lagi eflir almenn
utanríkisstarfsemi (t.d. virk
þátttaka í IUS; norðurlanda-
samstarf stúdenta) en veikir
ekki. Meira en helmingur við-
fangsefna síðasta formanna-
fundar Norðurlanda (NOM)
fjallaði um alþjóðleg og
evrópsk vandamál, eða ein-
hverjar sérstakar hliðar þeirra.
Átti þetta jafnt við utanríkis-
mennta- og hasmunamál en
síst við skipulagsmál.
I sjötta lagi hefur SlNE á-
kveðið að sækja um aðild að
IUS. Hinsvegar ei Stúdentaráð
einu íslensku samtökin, sem
sjálfstæða aðild geta átt að
IUS. SlNE yrði því að hafa
um þetta samvinnu við SHl,
en ekki endilega öfugt. Áætluð
aðildarumsókn SlNE er nátt-
úrlega ekki rök fyrir aðild
SHl. Hinsvegar þarf geysisterk
rök til að hafna eðlilegri og
náinni samvinnu við SlNE um
þetta mál, þegar öll áðurtalin
meðrök eru höfð í huga. Þau
mótrök eru hvergi til í veru-
leikanum.
Nú hafa verið talin mörg og
sterk rök fyrir bráðlegri að-
ildarumsókn SHl að Alþjóða-
sambandi stúdenta. I jjessu
efni er þó æði margt að var-
ast. T.d. er yfirlýst andstaða
Stúdentaráðs við Tékkóslóvak-
íuatburðina árið 1968 enn í
fullu gildi. Stúdentaráð getur
ekki fallist á stefnu IUS í ör-
yggismálum Evrópu nema að
takmörkuðu leyti, þ.e. að Stúd-
entaráð hlýtur að berjast fyrir
afnámi herja NATO og Var-
sjárbandálágsins'í allri Evrópu
en ekki aðeins í Mið-Evrópu.
Og Stúdentaráð mundi sjálf-
sagt vilja aðra uppbyggingu
IUS en nú er. Það er því ljóst,
að SHÍ getur aðeins sótt um
aukaaðild að IUS og gera verð-
ur samning þar að lútandi.
SHl myndi í þeim samningi
viðurkenna IUS, sem eina al-
þjóðasamband stúdenta og
grundvallarstefnu þess, sem nú
er sem næst samhljóða megin-
stefnu SHl. Hinsvegar mundi
SHl myndi í þeim samningi
stöðu sína rækilega og taka
frarn, aö það tæki einungis
þátt í þeirri starfsemi 1US, sem
samræmdist nánari stefnu SHl
hverju sinni. Jafnframt þyrfti
að tryggja fullan fjárstuðning
IUS til SHÍ vegna ferðakostn-
aðar þess á nokkra helstu
fundi og ráðstefnur stúdenta-
hreyfingarinnar, s.s. Evrópu-
fundinn, þing IUS, fundi fram-
kvæmdastjórnar IUS þegar
hún fjallar um mál, er sérstak-
lega varða SHl o. fl. Tryggja
verður SHl sama rétt innan
ÍUS og aðalmeðlimum og upp-
sagnarákvæði samningsins
verða að vera skýr.
Þó að greinarhöfundur vænti
aðildar SHl með þessum hætti,
liggur engum lífið á. Er sjálf-
sagt að ganga ekki frá aðild-
inni til fulls fyrr en að afloknu
11. þingi IUS og fenginni
reynslu þess. Jafn eðlilegt er
að gefa sér góðan tíma til að
fylgjast náið með framvindu
þessa máls hjá NSU og DSF.
Hvorttveggja leiðir af sér, að
stúdentum gefst ágætt tækifæri
til aö segja álit sitt á aðild
SHÍ að IUS í næstu Stúdenta-
ráðskosningum, sem verða í
fyrrihluta mars á þessu ári.
Hinsvegar má þetta eina mál
ekki verða allsráðandi í kosn-
ingabaráttunni, eins og Vöku-
piltar stefna greinilega að og
halda í einfeldni sinni og þekk-
ingarskorti, að þeir græði á.
Geysimikilvægir atburðir munu
eiga sér stað á næstu vikum
og mánuðum í mennta- og
hagsmunamálum. Og ef ekki
væri um að ræða þing IUS og
væntanlega aðild Norðmanna
og Dana að sambandinu, væri
núverandi Stúdentaráð að sjálf-
sögðu fullfært um að taks
lokaákvörðun um aðild sína
að IUS.
Við lærðum ...
Framhald al 2. síðu.
ismus". Ég tel að þetta gemm
við lært af atburðunum í Chile:
Að á tímum þinghundins lýð-
ræðis gefist besta tækifærið til
að þróa völd sósíölsku hrcyfing-
arinnar í þá átt, að herforingj-
um og bakhjörlum þeirra geti
ekki lukkast valdaránsbrölt, að
friðsamleg umbreyting sósíal-
isma verði möguleg ef herinn
hafnar allri aðstoð við valdaræn-
ingja, og að gerræðislegar ráð-
stafanir gegn tikeknum hópum
(ef þær þá reynast óhjákvæmi-
lagar) megi aldrei koma niður á
þeim lýðræðislega árangri sem
náðst hefur.
Við skulum því gera þetta að
vígorði okkar: notfærum okkur
þingbundið lýðræði og styrkjum
það gegn þeim öflum, sem vilja
breyta því aftur í líftryggingu,.
auðvaldsins.
8. Það skiptir ekki öllu máli
hvort Allende var myrtur eða
réð sjálfum sér bana. Gerúm
ráð fyrir (sem er raunar með ó-
líkindum!) að hann hafi tekið
líf sitt sjálfur, — það væri al-
gjörlega gagnstætt flótta hins
arma Hitlers í sjálfsmorðið. Það
væri — þetta segi ég meðvitað
sem kristinn guðfræðingur —
hinsti gjörningur hans í þágu
samtaka sinna og þjóðar, í þann
mund sem hann skyldi handtek-
inn: Ták þess að þarna er um
líf og dauða að tefla. Nú er til-
veru chileönsku þjóðarinnar sem
og annarra þjóða Suður-Amer-
íku ógnað með margfalt aukinni
kúgun og hungursneyðum. Sér-
fræðingunum kemur saman um
að á þessum áratug muni hungr-
ið sverfa enn sárar að en á
undanförnum áratug. Hungurs-
neyðin er hluti af þeirri alls-
herjarneyð sem steðjar að mann-
kyninu. Sérhver tálmi á vegi
sósíalismans færir okkur nær út-
dauða mannkyns, sem blint auð-
valdið býr okkur nú á margvís-
legan hátt. Mennirnir mega ekki
lenigur þola auðvaldsskipulag,
því að það útrýmir þeim. Þess
vegna snýst baráttan um líf eða
dauða. Þetta þýðir að við verð-
um að sýna aga, fórnfýsi og
sjálfsafneitun. Við verðum að
hafna mörgu sem við höldum
enn að við getum leyft okkur.
Ekki tjáir lengur að mæla á
sósíalska vísu, en veita sér allan
auðvaldsmunað. Sósíalismi tekur
til alls okkar lífs. Þótt við séum
viss um ágæti málstaðarins,
skortir fullvissu um árangur.
Megi sérhver vita hvert hann
sækir mátt til hugrekkis ogfórn-
arlundar. í því viðviki hafa
kristnir menn ýmislegt fram að
færa. Sannarlega mun þö hver
maður finna með sér, að með
þessari baráttu getur hann varið
lífi sínu skynsamlega.
9. Nú þurfum við á hug-
kvæmni að halda í samstöðu-
viðleitni okkar. Þótt við höfum
áður gert skammarlega lítið og
náð enn minni árangri, ætti það
ekki að hindra okkur heldur
hvetja til að sýna samstöðu á
hugmyndaríkan og fórnfúsan
hátt. Búast má við hinu versta
fyrir þá ofsóttu menn frá öðr-
um ríkjum Suður-Ameríku, sem
fundu sér hæli í Chile undir
stjórn Allendes — nálega 10.000
manns. Þeim munu fylgja aðrir
frá Chile sjálfu, þ.e.a.s. ef þeim
tekst að komast undan. Að ó-
gleymdum þeim þúsundum, sem
þegar svelta og þola misþyrm-
ingar í skyndifangabúðum her-
foringjanna. Amnesty Internatio-
nal (alþjóðasamtök gegn póli-
tískum ofsóknum og fangelsun-
um. Þýð.) fær nú mörg ný verk-
efni og þarfnast því aðstoðar
okkar. Við verðum að krefja
ríkisstjórnina um að Sambands-
lýðveldið verði athvarf fyrir of-
sótta Suður-Ameríkubúa, og sjálf
verðum við að gera slíkt hið
sama (Gollwitzer mun hér eiga
sérstaklega við Vestur-Berlín, en
í fjórveldasamningnum um hana
(frá 3. 6. 1972) segir að hún sé
hvorki hluti af né lúti stjórn
Sambandslýðveldisins Þýskalands
Þýð.) Afrurhaldið í landi okkar
sýnir sína réttu blekkingar-,
hrotta- og mannvonskuásjónu
hvað viðvíkur Chile. En kannske
kemur í sama tilfelli framsinnu-
leysi, makræði og geðklofi okk-
ar sjálfra: djúpið milli orða og
gerða.
Við getum ekki gert mikið.
Einmitt þessvegna ættum við að
gera allt sem við gecum.
(Ræða þessi birtist í „Das
Argument" hefti no. 81, í októ-
ber 1973. Þýðandi: Jón A. Sig-
urðsson).
ERLENDAR
B/EKUR
Því miður er það of mikil fjárfesting að hafa
mikinn lager erlendra innbundinna ’oóka —
en við höfum úrval vasabrotsbóka á ensku og
N orðurlandamálum.
Ennfremur pöntum við bækur fyrir yður frá
hvaða landi sem er.
LlTIÐ INN — skoðið bækurnar — notfærið
ykkur pöntunarþjónustuna.
BÓKABÚÐ
MÁLS OG MENNINGAR
Laugavegi 18 — Sími 24241
FÉLAGSSTOFNUN STÚDENTA:
HÁSKÓLA-
FJÖLRITUN,
Stúdentaheimilinu (uppi)
Sími 22435
Annast: FJÖLRITUN
VÉLRITUN
LJÓSRITUN
fyrir Háskóla íslands og
stúdenta.
Opin mánudaga til föstudaga
kl. 9-12,30 og 13-17
STÚDENTABLAÐIÐ — 11
4