Stúdentablaðið - 01.02.1983, Page 1
12- siður i viðbot
VÍð allthitt’.
tiu.
i.árœ
Í9S3
Kosningaleiðari
Nú eru liðin nautnajól
nálgast voríð Ijósa
í háskólanum hœkkar sól
hendur grípa um skriftartól
nóttin styttist — nú á að fara að kjósa.
Fara að tíðkast fundahöld
fram á rauða nœtur
umbar halda einn í kvöld
(einhvers konar töðugjöld?)
Vaka gefur vinstri mönnum gcetur
Framboðslistum fara nú
félög upp að stilla
„ekki vœnti ég vildir pú
vera svosem númer þrjú?“
flestir taka óskum slíkum illa
Fœrast tekur fiðringur
í frambjóðenda maga
margur verður í munni þur
magnast fát og œsingur
það er vaninnn — þetta er gömul saga
Áróðurs nú mala mest
maskínurnar allar
„mun ég skipa málum best
mig þið skuluð kjósa flest
—allir hinir eru vondir kallar“
Komið öll á kjörstað þá
kjósið listann rétta
að krossa á seðil flestir fá
ef finnast vorri kjörskrá á
leiðarann svo lœt ég niður detta.
Æ!
Um hvað er kosið?
Munið
framboðs -
fundinn
í hátíðarsal,
mánudaginn
14 mars,
kl. 20:00
Mætum öll.
-
„Hverju skipta þessar andsk ... kosningar .. . ætli manni
sé ekki nokk sama. Hef hvort sem er aldrei skilið almennilega
hvað er verið að kjósa . ..“ Ef svo er, ágæti stúdent, þá ætti
þessi grein kannski að hjálpa.
Við fengum reyndan stúdentaráðsliða, Guðvarð Má
Gunnlaugsson til að setja á blað helstu reglur svo og um
hugsanleg úrslit. Greinin hlaut að sjálfsögðu velþóknun
fulltrúa allra hinna pólitísku fylkinga, og ætti því að vera
nokkuð hlutlaus.
Þriðjudaginn 15. mars nk. verður
kosið til Stúdentaráðs Háskóla ís-
lands og háskólaráðs. í lögum um
Stúdentaráð (SHl) stendur:
„Stúdentaráð skal standa vörð um
menningarlega og félagslega hags-
muni stúdenta og vera æðsti fulltrúi
þeirra innan háskólans og utan.“ I
lögum um Háskóla íslands stendur
hins vegar að háskólaráð hafi „úr-
skurðarvald í málefnum háskólans
og háskólastofnana og vinnur að
þróun og eflingu þeirra." Það eru
því mikilvæg ráð sem á að kjósa til
og enn mikilvægara að almennir
stúdentar hugi að því þegar þeir
ganga að kjörborðinu.
í háskólaráði eiga sæti 15 manns
þar af 4 stúdentar. í SHÍ eiga sæti
30 manns þar á meðal háskóla-
ráðsfulltrúarnir 4. Hvert félag
verður því að bjóða fram tvo lista,
annan til SHÍ og hinn til háskóla-
ráðs (þ.e.a.s. ef félagið vill fá menn
inn í bæði ráðin). Kosið er til
tveggja ára og um helminginn ár-
lega. Það eru því kosnir 15 núna
þ.e. 13 í SHÍ og 2 1 háskólaráð.
Hvert félag býður þess vegna fram
26 manna lista til SHl og 4 manna
lista til háskólaráðs; því ef svo
kynni að fara að einn listinn fengi
alla mennina verða að vera til jafn
margir varamenn.
Til að útskýra þetta nánar er
ágætt að líta á stöðuna í SHÍ eins og
hún er núna. í kosningunum 1981
fékk Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, 5 menn kosna þar af einn
í háskólaráð; Félag vinstri manna
(FVM) fékk 6 þar af einn í há-
skólaráð; og Félag umbótasinn-
aðra stúdenta (FUS) fékk 4 en
engan í háskólaráð. í fyrra fékk
Vaka aftur 5 (1 í háskólaráð), FVM
fékk 7 (1 í háskólaráð) og FUS fékk
3. Vaka er því með 10 fulltrúa,
FVM ermeð 13 og FUS með7. Svo
er það stóra spurningin, hvemig
fara kosningarnar núna?
En þar sem helntingurinn situr
áfram eða 15 þá mun Vaka verða
með 5 + ?, FVM með7 + ?og FUS
3 + ?. Vaka og FUS mynda meiri-
hluta núna með 17 fulltrúa og ef
þau félög ætla að sitja áfram í
stjóm verða þau að fá a.m.k. 8
samtals til að halda meirihlutanum.
FVM er nú með 13 og 7 sitja áfram
svo FVM verður að fá 9 fulltrúa
núna til að félagið fái meirihluta.
Fái FVM 8 fulltrúa nú og Vaka og
FUS samtals 7 er ljóst að meiri-
hlutinn er fallinn því þá verður
staðan 15:15. Þetta eru nú bara
vangaveltur og um leið tilraun til
að útskýra hvaða möguleikar eru
fyrir hendi, það er t.d. alls ekki víst
að núverandi meirihluti, Vaka og
FUS, ætli sér að starfa saman eftir
kosningar þó þau fái nógu marga
fulltrúa til þess. Það er t.d. mögu-
leiki að FVM og FUS starfi saman
ef um semst; það er einnig mögu-
leiki að Vaka og FVM starfi saman
(þó ég hafi það á tilfinningunni að
fáir vinstri menn og vökumenn séu
sammála því að það sé möguleiki).
Kosningamar fara fram þriðju-
daginn 15. mars nk. eins og
fyrr sagði frá kl. 9 til 18, og verður
kosið víða. Kjördeildir verða aug-
lýstar sérstaklega í húsum háskól-
ans, 1 Fréttabréfi SHÍ og eflaust
víðar og bið ég fólk að athuga sér-
staklega hvar það á að kjósa svo
það þurfi ekki að fara snuðferð, en
kjördeildum er yfirleitt skipt eftir
deildum og námsbrautum. Einnig
hvet ég stúdenta til að mæta á
framboðsfundinn (sjá auglýsingu
annars staðar í blaðinu) til að
fylgjast með málflutningi félag-
anna. Kosningarétt hafa allir
skráðir stúdentar háskólans, en
samt er vissara fyrir fólk að athuga
tímanlega hvort það er á kjörskrá,
svo það geti kært sig inn á hana ef
þörf krefur; sjá auglýsingar frá
kjörstjóm.
SHÍ kýs sér 6 manna stjóm, en í
henni eiga sæti fulltrúar meiri-
hlutans. SHl er skipt í 4 nefndir:
menntamálanefnd sem fjallar um
Hl og menntamál almennt; hags-
munanefnd er fjallar aðallega um
lánamál og Félagsstofnun stúdenta
(FS); utanríkisnefnd sem sér um
samskipti við erlendar stúdenta-
hreyfingar; og funda- og menning-
armálanefnd sem heldur almenna
fundi og úthlutar styrkjum til fé-
lagsstarfsemi. SHÍ skipar meiri-
hluta stjórnar FS (3 af 5) og á að
auki fulltrúa í stjórn Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna; þessir fulltrú-
ar eru ávallt allir úr meirihlutanum.
Svo má ekki gleyma því að SHÍ
gefur út Stúdentablaðið. Það er
mikið og fjölbreytt starf sem fer
fram í SHÍ svo það er mikilvægt að
stúdentar noti atkvæðisréttinn og
kjósi þann lista sem þeir treysta
best til að berjast fyrir hagsmunum
stúdenta.
Guðvarður Már Gunnlaugsson