Fálkinn


Fálkinn - 08.12.1928, Side 5

Fálkinn - 08.12.1928, Side 5
F Á L K I N N 5 Sunnudagshugleiðing. „Nema ]>jer snúið við og verðið eins og börnin, komist þjer alls eigi inn í ríki himnanna“. Matt. 18, 3. Enginn er sá, seni eigi veitir því eftirtekt, hve Jesús Kristur gefur barninu fagurt fyrirheit í allri kenningu sinni. „Leyfið börnunum til min að koma og bannið þeim það ekki, því slík- um heyrir Guðs riki til“. Og í ritningarstaðnum hjer að ofan segir hann berum orðum: „Nema þjer snúið við og verðið eins og börn, komist þjer alls eigi inn í ríki himnanna". Hve lærdómsrík eru ekki þessi orð? í barninu finnur mannkynslausnarinn hinn ó- flekkaða mann, eins og Guð hafði skapað hann eftir sinni mynd og lausan við þá bresti, scm því miður læsa sig inn í mannseðlið með vaxandi aldri, lausan við heimshyggjuna og ósnortinn af þeim áhrifum sem ráða svo ntiklu og svo illu valda. Enginn mannleg vera kcmst nær guðsmyndinni en ungbarnið, sem byrjað er að komast til vits og sýna móður sinni ástaratlot og hjala við hana. Þar er sak- leysið fullkomið, ekkert ilt sæði hefur fest þar rætur. Þar er hreinskilnin fullkomin, þar er engin undirhyggja til, en aðeins barnslegur fögnuður yfir lífinu. Sennilega hefir margur full- orðinn maðurinn komist við þegar hann hefir sjeð börn að fögrum leik og óskað í hjarta sínu: Jeg vildi að jeg væri orð- inn barn í annað sinn! Laus við heimshyggjuna, laus við striðið í brjósti mjer, áhyggjurnar fyr- ir morgundeginum og raunirn- ar af sumu því, sem minning- in geymir frá liðinni tíð. Og flestum mun svo varið, að þeir minnast bernskunnar sem hins fegursta tímabils úr æfi sinni, áranna sem liðu í sak- lausri gleði, þegar altaf var hægt að hverfa í faðrn föður og móður þegar eitthvað mótdrægt bar að. — En þess er gott að minnast, að hver maður, sem trúir á Krist, getur snúið við og notið nýrrar bernsku í faðmi föðursins á himnum. „Nema þjer snúið við og verðið eins og börnin“, segir í guðspjallinu. Hversu fagur er ekki þessi boðskapur til mann- anna. Allir getum vjer snúið við og leitað náðarfaðms föð- ursins. Og eina leiðin til þess að erfa Guðs ríki er eimnitt þessi að snúa við. Snúa við frá því illa, sem á svo mikil ítök í dag- legu lífi manna, og verða eins og barn. Koma til föðursins, eins og barnið kom til föður síns forðum, þegar því hafði orðið eitthvað á, og biðja fyrir- gefningar. Koma með einlægni og iðrun fram fyrir föðurinn, tjá honrim raunir sínar og njóta á eftir þess friðar, sem fyrirgefn- ing algóðs Guðs veitir. Guðs börn eru þeir kollaðir, sem feta veg þann er leiðir til Guðs ríkis og standa í líku legt harn við ástríkan föður. samhandi við Guð eins og elsku- Stefnum öll að því í daglegri aooooaoaooaooooaoooooaooo o o | Kaupum háu verði g O — —---————............. o o o | /.,2., 3., 12, og 14. | | tölubl „FÁLKANS'‘ | o o | Vikublaðið „Fálkinn', | o o oooooooaooooooaoaoooooooo breytni vorri, að vera í tölu þeirra, sem koma til föðursins eins og börn, svo að vjer öðl- umst hlutdeild i sælunni, sem bíður allra Guðs barna fyrir handan gröf og dauða. U M V í Ð A VERÖLD. í Japan er pað venja, að enginn óviðkomandi fær að sjá andlit af- brotamanna frá ]>ví ])eir eru teknir liöndum ])angað til sektin er afplán- uð. Fyrir rjetti er dreginn poki yfir höfuð þeirra og er hann eldrauður að lit. Þetta gengur yfir alla morð- ingja og ræningja, er eldgömul venja, bygð á því, að afbrot þeirra er svo óskaplcgt, að enginn rjettsýnn mað- ur vilji líta framan í þá. Falsici FANGINN. Ungur Amerikustúdent sem heitir Henry Taylor hefir nýverið lent i æfintýri, sem gerir hann eflaust lræg- an mann uin alla Ameríku. Kvöld eitt hafði hann verið að tala við kunningja sína um meðferðina á föng- uin i fangelsunum í Bandaríkjunum, og þótti hún ómannúðleg, ef trúa mætti sögunum, sein fangarnir segðu. Henry kvað liest að sannfærast um þet%a af eigin reynd, að veðjaði við fjelaga sina um, að hann skyldi komast í fangelsi og dvelja þár sólarhring. Þegar þeir skildu fór Henry beina leið tii fangelsisins, komst inn yfir !0 Varanlegur Og sparneytinn. Hlífir aug- unum. Júlíus Björnsson, R a ftækja uers lun. Austursíræti 1. □i fangagagarðinn og inn i fatabúr fang- anna. Þar náði hann sjer í fangaföt og klæddist þeim og beið svo til morg- uns, að fangarnir voru látnir út í garðinn til að viðra sig. Hann slóst í hópinn án þess að nokkur tæki eftir. En þegar fangarnir voru taldir cr þeir ltomu inn aftur var einum of margt. Vildi Henry það til liapps, að einn fanganna var svo ráðugur að trúa varðmönnunum fyrir því að hann hefði stolist inn i fangelsið. Var hon- um þá slept. En þessi fangi hafði verið dæmdur fyrir morð á brjefliirð- ingamanni og átti 12 ár eftir. Daginn eftir komst alt upp. Morð- inginn náðist og fangelsisstjórinn dæmdi Iienry i 12 daga vinnu á skó- smíðastofu fangelsisins, fyrir gabbið. Það þótti Henry gott þvi nú gat liann kynst föngunum og kynst kjörum þcirra. En daginn áður en Henry átti að sleppa sinnaðist einum fanganum við hann og barði hann til óbóta, svo að hann varð að fara á sjúkrahús. Og þar lá hann þegar siðast frjettist og var að vinna úr gögnunum, sem liann náði í meðan hann var i fangelsinu. Hann ætlar að gefa þau út og græða á þeim. Og auk þess liefir hann vit- anlega unnið veðmálið! PYTHEAS FRÁ MARSEILLE. Á timum Alexanders mikla var uppi einn af mcrkustu landkönnuðum forn- aldarinnar, Pytheas frá Marseille. Mar- seille eða Massilia var i þá daga helsta borg við vestanvert Miðjarðarliaf, mik- ilsverð siglingamiðstöð og verslunar eins og hún er enn í dag. Til þess að auka veg borgarinnar og ieita að nýjum verslunarloiðum gerðu menn út leiðangur vestur í höf, um 330 l'. Kr. til þess aö kanna löndin fyrir handan Gíbraltarsund. Var Py- theas kjörinn formaður fararinnar, hæði vegna þess, að liann var talinn mesti landfræðingur sem völ var á og svo vegna liins að hann var frábær stjörnufræðingur. Alls voru í leiðangr- inum um 200 manns. Pytheas hjelt frá Marseille til Gíbraltar og komst þangað á sjö dögum. Frá Gibraltar hjelt hann norður með Pyreneaskaga og komst norður i Biskajaflóa eftir sex daga sigling. Þaðan sigldi hann upp með Frakklandsströndum og upp Ermasund og sigldi svo upp með aust- anverðu Stóra-Bretlandi. Sigldi hann norður i liöf frá nyrsta odda Skot- lands og kom cftir 6 daga til lands, sem liann nefndi Thule. Vísindamenn hafa eigi orðið á eitt sáttir um, tivaða land Thule sje. Sum- ir lialda að það bafi verið Orkneyj- ar eða Hjattland, aðrir að það liafi vcrið veslurströnd Noregs. Enn aðrir fullyrða, að Thule-nafnið hljóti að tákna ísland og að því liallast flestir. En víst er um það, að lýsingar Pythe- asar á Thule koma tang best heim við islenska staðliætti, margfalt betur en annara landa, þeirra er ncfnd hafa verið. Og enginn vafi getur teikið á þvi, að Pytheas liafi komist norður undir heimskautabaug. Þegar á það er litið, að Pytheas fór þessa för fjórum öldum fyrir Krists burð, verður eigi annað sagt en að hún megi teljast meðal hinna frækilegustu landkönnunarferða, sem farnar tiafa verið, merkari jafnvel en för Leifs hepna til Ameríku. En þegar ]>eir Pytheas og förunautar hans komu Iieim til Marseille aftur og fóru að segja liina merku ferðsögu sina vildi enginn trúa þeim. Almenningur gat alls ekki áttað sig á hinum nýstár- legu frásögnum þeirra norðan úr lieimi. Og í margar aldir liafa sumir visindamenn talið Pytheas frá Marse- ilte ósvifinn lygalaup og ekkert ann- að. Ferðabók lians „Um hafið“ er fyr- ir löngu glötuð, en í öðrum ritum eru til tilvitnanir úr lienni og aðrar upp- lýsingar um þennan merkilega land- könnuð og rannsóknir hans. Eru þær ekki sist merkilegastar fyrir fslend- inga. British Museum hefir keypt hand- ritið að einu af frægustn kvæðum Edgar Allan Poe’s fyrir 100,000 dollara.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.