Fálkinn - 08.12.1928, Side 9
F A L K I N N
9
Fyrstu dagarnir i nóvember 191S verða
jafnan taldir merkilegir i heimssögunni.
Þá þótti það sýnt, að Þjóðverjar væri
að yfirbugast, konungarnir og furstarn-
ir þýsku ultu af stóti og sjálfur keisar-
inn fláði land. Þjóðverjar báðu um
vopnalilje án þess að setja nokkur skil-
yrði og þetta vopnahlje komst á 11.
nóvember 1918 klukkan 11 árdegis.
Manndrápin sem staðið höfðu látlaust
síðan í júlílok 191á voru loksins stöðv-
uð, miljónir manna höfðu úthclt blóði
sinu eftir skipun herstjórnanna, lieilar
þjóðir voru i svelti. Vopnahljenu var
tekið með miklum fögnuði um allan
heim, jafnvcl hjá þeim þjóðum, scm
ekki höfðu verið undiir martröð ófrið-
arins. Myndin sýnir þýska bifreið alca
fram til óvinanna með hvítan fána
blaktandi, til þess að biðja am frið.
Við veginn stendur franski hcrshöfð-
inginn Lheulles og rjettir upp hcndina
til merkis um að bifrciðin skuli stað-
næmast. Myndin cr frá franska blaðinu
,,L’ltlustration“.
í siðasta Etnugosi hefir hraunið
flætt um 16 kílómetra niður eft-
ir fjatlinu þar sem ]>að komst
lengst og sumstaðar er það um
tvo kílómetra á brcidd. Þar sem
hraunið. náði mannabygðum
flæddi það yfir alt, svo ekki sást
nema blásvart lxraunið cftir. Af
einu þorpinu var ekkert eflir sjá-
anlcgt nema turninn á kirlcj-
unni. Aðcins tvær manneskjur
biðu bana við gosið, voru það
gömut hjón, sem ckki höfðu vilj-
að ldýða skipun yfirvaldanna um
að' yfirgefa heimili sitt. Hraunið
nmkringdi svo húsið og brunnu
þau þar. Á myndinni sjest hvern-
ig umhorfs er í þorpi þar sem
hraunflóðið fer yfir, en d litlu
myndinni sjest fólk i skruð-
göngu, biðjandi bænir sinar.
Altaf er samkepnin milli bifreiða og járnbrauta að aukast. Hið
síöasta, sem bifreiðafélögin i Englandi hafa gert til þess að
styrkja sig i samkepninni cr að smíða bifreiðar, þar sem far-
þegarnir gcti sofið eins og í járnbrautarvögnunum. Er þetta gert
iil þess að geta staðið járnbrautunum jafnfætis i því, að flytja
farþega á nóttunni. Bifreiðin sem sjest á myndinni ásamt svefn-
klefa, fer frá London.á kvöldin kl. 11 og ekur alla nóttina við-
stöðulaust að kalla og kemur til Liverpool morguninn eftir kl.
8.50. Þar ern svefnklefar lianda 16 manns og er frágangurinn
i þeim mjög líkur og i svefnklefum járnbrautanna. Og þeir sem
reynt hafa vagnana scgja, að betra sje að sofa i þcim en i járn-
brautarvögnum. En til þess þurfa vcgirnir að vcra betri en is-
lensku bifreiðavegirnir.
Bændaflokkurinn í Rúmeniu hefir nýlega myndað stjórn. Hcitir
forsætisráðherrann Maniu og birtist lijer mynd af honum.