Fálkinn - 19.01.1929, Síða 1
VETUR I SVISS
Flestir útlendingar gera sjer þá hugmynd um Island, að hjer sje alt þakið snjó frá oeturnóttum til sumarmála eða lengur.
Og á hinn bóginn hættir okkur oið að halda, að uti í heimi sje veturinn að kalla enginn og skammdegiskuldarnir ekki meiri
en haustnæðingar hjá okkur. Sunnlendingar vita hvernig veturinn hefir verið hjá þeim, og lwergi á Islandi mun vera hægt
að finna þann kima í bygð, er geymi eins mikinn snjó og sjá má á myndinni hjer að ofan. Hún er úr Alpafjöllum, sunn-
an frá Sviss, en að vísu úr dal, sem er talsvert liátt yfir sjávarmál. En þar liggur snjór nálægt 7 mánuði í flestum árum.
Þess má sjá merki á myndinni, að eigi muni eins vindasamt þarna og hjer, því snjórinn liggur óhaggaður á öllum húsa-
þökum. Ber það við í mörgum vetrum, að aldrei dregur snjó í skafl i dölunum, þó blind-skafrenningur sje uppi í fjalli.