Fálkinn


Fálkinn - 26.01.1929, Page 13

Fálkinn - 26.01.1929, Page 13
F Á L K I N N 13 •lllDIIIMIIillllMllllllltlllllllllllllllllllliS | Veðdeildarbrjef. | " ——————————————————— m S ** Bankavaxtarbrjef (veð- deildarbrjef) 8. flokks veð- deildar Landsbankans fást S keypt í Landsbankanum og útbúum hans. S Vextir af bankavaxta- brjefum þessa flokks eru 5°/o, er greiðast í tvennu lagi, 2. janúar og 1. júlí ár hvert. Söluverð brjefanna er 89 krónur fyrir 100 króna brjef að nafnverði. Brjefin hljóða á 100 kr., 500 kr., 1000 kr. og 5000 kr. 2 | Landsbanki Íslands i •iMIIIIMIIIIÍIIMMIIIMMIMIIIIIIIIMIIIMia Hreinar léreftstuskur kaupir háu verði Prentsm. Gutenberg. 0) <D +-> C (Ö > 0 O Reykið einungis P h ö n i x | vindilinn danska. i i i i i i i i i i i i > 3 (r)' r+ ») o. Hver, sem notar C E L O T E X °s ASFALTFILT í hús sín, fær hlýjar og rakalausar íbúðir. Einkasalar: Verslunin Brynja, Laugaveg 24, Reykjavík. > ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► REYKJAVÍK ísafirði, Akureyri og Seyðisfirði. ..............iiiiiiiiíiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuniiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Holmblaðs spil eru þau, sem allir vilja helst. Lang- skemtilegustu spilin. Notuö mest — endast best. — Höfum einnig jólakerti, súkkulaði o. fl. £ Hempels botnfarfi £ fyrir járn & trjeskip. ( Innan & utanborðs- C‘ málningu. ( Einar 0. Malmberg. C Vesturgötu 2. — Sími 1820. ) ) I súkkulaðið er að dómi * allra vandlátra hús- mæðra langbest. ^álRinn er víðlesnasta blaðið. er besta heimilísblaðið. MÐILIG DIGRADVOL Eftir PHILIPPS OPPENHEIM. Milton kinkaöi kolli. — Það má kannske kalla þær, svaraði hann. Ungi maðurinn hafði augsýnilega eignast fje, skömmu áð- ur, því hann hafði keypt sjer reiðhjól og talsvert af nýjum fatnaði. Og fór út á hjól- inu hjer um l)il á hverjum degi, síðdegis. — Fór hann altaf í sömu átt, spurði Dan- íel með ákafa. -— Það gerði hann einmitt. Hann fór í átt- ina til West-Shorebourough. — Getuin við haft tal af yfirþjóninum? Yfirþjóninn var sóttur. Höfuðsmaðurinn ræksti sig: — Þjer verðið að afsaka, hr. Rocke, að jeg bendi á það, að við erum hjer að rannsalca hvarf Sir Francis Wortons. Daníel kinkaði kolli. —• Við verðum að rekja þetta aftur á bak, af ástæðum, sem jeg skal fljóllega koma að. Jeg hefi ekki annað áhugamál en að hjarga lífi yfirmanns míns, og hefi engan tíma aflögum. En mað- urinn, sem myrti þjóninn, er hinn sami, sem nam Sir Francis burt. Yfirþjónninn kom inn. Daníel lagði fyrir hann spurningarnar með eldingarhraða. — Hve niörg horð hafði þjónninn, sein myrtur var, að annast? —• Átta. Við eigum mjög annaríkt, sem stendur. — Munið þjer eftir, að nokkur gesturinn við nokkurt þessara borða, veitti honum sjerstaka eflirtekt? Yfirþjónninn hugsaði sig um. — Það var hjer miðaldra maður, sagði hann, — jeg held jafnvel að hann hafi verið læknir —, scm var vanur að gefa honum mjög ríflega vikafje og tala talsvert oft við hann. Hann átti heilsulausa konu, sem fór hjer um bil aldrei út úí setustofunni. En þetta var fyrir nokkrum vikum. — Viljið þjer segja mjer nafn hans, og hvers vegna þer hjelduð, að hann væri lækn- ir. spurði Daníel og fór i yfirhöfnina. — Maðurinn hjet Fox, og jeg hjelt hann vera lækni af því, að hann var ol't að lesa í „The Lancet". Daníel benti honum að fara. — Hvaða l'asteignasali hefir mesta verslun hjer um slóðir? spurði hann lögreglumanninn snögg- lega. — „Fellows & Co“, svaraði hinn, — og þeir hafa útbú hjerna í næsta húsi. — Flýtið ykkur eins og þið getið, herrar mínir, sagði Daníel, og iör sjálfur til dyra á undan hinum. — Við erum orðnir of sein- ir samt á þá skrifstofu .... Endirinn á leiknum varð lalsvert sögu- legur. Þegar þeir komu hossandi á bifreið- inni eftir ósljetta veginum að vitanum, sem nýlega hafði verið leigður hr. og frú Fox, sáu þeir torkennilegan mann koma reikandi út úr dyrunum og ganga í áttina til kletta- brúnarinnar. Maðurinn var flibhalaus og treyjulaus og vestislaus, hár hans var úfið og göngulagið óstöðugt. Mennirnir þeyttust út úr vagninum og til hans. — Guði sje lof, að þú ert heill á húfi, sagði Daníel. — Hvar er Londe? Hvar eru þau? Sir Francis Jienti niður fyrir klettinn með skjálfandi fingri. Niðri á sandinum, mörg hundruð fetum neðar stóð kona og horfði upp. Lengra frá, fáeinar stikur frá landi, var vjelbátur á hægri hreyfingu og miðja vegu niður klettinn var maður að fara nið- ur mjóan kaðalstiga. Eldur brann úr aug- um Daníels er hann benti á manninn. •—■ Þarna er maðurinn, sem við erum að elta, æpti hann grimdarlega. Þarna er maðurinn, sem m'yrti unga þjóninn og .... — .... og næstum mig líka, tók Sir Francis fram í. Milton höfðuðsmaður leit brosandi fram af klettinum. — Þetta á víst að vera sniðug aðferð lil að sleppa, sagði hann kæruleysis- lega, —• en annars hæfir hún hetur kvik- myndum en daglega lífinu. Auðvitað kom- ast þau burt, í hvaða átt, sem þau vilja í þessum bát, það er að segja, svo langt, sem bensínið leyfir, en sloppið geta þau ekki heldur en þó handjárnin væru komin á þau. Hver einastn strandvarnarstöð, hafnarstjóri og vitavörður innan hundrað mílna fjarlægS- ar verður búinn að fá lýsinguna á þeim innan hálftíma. — Takið þjer vagninn og gerið það, sem gera þarf, Stedan, skipaði hann aðstoðarmanni sínum, som með hon- um var. Það er líklega best að Windergate fari með yður. Svo getið þið sent eftir okk- ur seinna. Aðstoðarmaðurinn kvaddi og flýtti sjer af slað. Alt í einu stökk kona, rvkug frá hvirfli til ilja, út úr leiguvagni, sem kom að, og reikaði til þeirra. Þar var Ann komin, lafmóð og föl af æsingu. — Hvar er hann? spurði hún. Daníel tók í handlegg hennar og benti niður fyrir klettabrúnina. Londe var nú kominn langleiðina niður og fór æ hraðara. — Hvers vegna standið þið hjer og hafist ekki að? æpti hún, bálreið. — Langar ykkur til að hann sleppi einu sinni enn? Yfirlögregluþjónninn Ijet sem ekkert væri um að vera. — Handjárnin eru sama sem komin á þau, svaraði hann. Ann leit á Daníel og benti á stólhólkana á stiganum, sem voru festir í leifarnar af gömluni trjebekk þar uppi. Danícl kinkaði kolli og hljóp að bekknum. — Það kann að vera rjett hjá yður, svaraði hann lögreglu- manninum, — en jeg hefi sjeð þennan mann sleppa þegar hann hafði ekki nema einn möguleika sin megin, af hverjum hundrað. Til hvers ætti maður að eiga nokk.uð á hættu? Yfirlögregluþjónninn hleypti brúnum. -—- Honum fanst hann verða að segja eitthvað í embættis nafni, til þess að láta til sín taka. — Þetta væri morð, sagði hann. —Já, einmitt, svaraði Daníel illgirnislega og kastaði sjer á jörðina. Ef jeg hefði hitt hann, augliti til auglitis, hefði jeg borað kúlu í gegnum hann án þess að segja eitt orð. En, eins og á stendur nú, verður maður heldur að reyna hundrað feta fall ofan í mölina. — Guð launi yður fyrir það, stundi Ann. — Daníel reif járnkrókana lausa og stig- inn datt. Þeir hölluðu sjer fram af klettin- um. Londe virtist snöggvast detta aftur fyr- ir sig, og reyndi árangurslaust að gripa i runna og nibbur, sem stóðu út úr klettin- um. Loks snerist haann alveg við í loftinu og datt niður með miklum hraða. Þau gátu næstum heyrt dynkinn er hann fjcll í möl- ina. Þar lá hann og teygði frá sjer limina á grjótinu, heryfingarlaus og kyrr. — Þetta fór vel, sagði Daníel grimdar- lega. Við skulum fara niður og líta á liann. Það er einstigi hjer rjett hjá. Þetta var eitt hinna fáu 'dæma þess, að

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.