Fálkinn


Fálkinn - 27.07.1929, Blaðsíða 6

Fálkinn - 27.07.1929, Blaðsíða 6
6 FÁLKINN ÞÝSK FLUGH El MSÓKN Fijira miðvikudag siðdegis barst sú fregn hingað, að þýsk flugvjel með fjórum mönnum væri nýfarin frá Færeyjum á leið til Reykja- vikur og væri ferðinni ekki lieitið lengra cn hingað. Kom vjelin hingað rúmlega klukkan átta um lwöldið eftir 5 stunda og 15 mín- útna flug frá Færeyjum. Ilún liafði lagt up/j frá eyjunni Sylt í Norð- ursjó kl. 1,25 um morguninn cn lent í Færeyjum klukkan 9,45 og staðið þar vicf rúma 5 tíma, en verið aðeins 13,35 flugtíma á lciðinni hingað alla leið sunnan frá Þýskalandi og er það tiltölulega hrað- asta flug, sem farið hefir verið milli íslands og útlanda. Er þetta i fyrsta sinn, sem flugvjel kemur liingað frci Þýskalandi. Vjelin er Dornier-Wal vjel frá Friedrichshafen, sama vjelin, sem Roald Amundsen var í þcgar hann reyndi að fljúga til norðurheimskautsins en varð að snúa aftur á 88. breiddargráðu. Ilöfðu þeir fjelagar tvær vjelar, en urðu að lenda þeim og skilja aðra vjelina eftir en flugu cillir (i iil balca á hinni. Var vjelin síðan seld þýskum flugskóla og er eicjn hans enn i dag. 1 vjelinni voru fjórir menn, Wilh. von Gronau, stjórnandi flugslcólans og með lionum flugmenn tveir og einn vjelfræðingur. Var það tilgangur fararinnar hingað að kynnast leiðinni og veðráttu hjer og æfa farþegana i langflugi. Þeir Þjóðvcrj- arnir stóðu við fjóra daga í Reykjavík og fóru hjer víða um ná- ÁSTA NORÐMANN, DANSMÆR Fyrsta íslenska stúlkan, sem lagt hefir stund á ballet-dans að nokkru ráði, er ungfr. ÁstaNorð- mann. Hafði hún barnung einkar mikla hæfileilca i þá átt, og dvaldi fyrir nokkrum árum í Þýslcatandi um hríð til þess að leggja stund á þessa fögru í- þrótt, sem fram að þessu hefir verið óþelct að kalla h jer á landi. Þegar frú Broclc-Nielsen kom hingað i fyrra til þess að sýna ballet- dansa veitti hún Ástu þegar eftir- telct og fanst svo mikið til um hæfileika henn- ar, að hún bauð henni að licnna henni. Fór Ásta I,ví tH Kaup- mannahafnar á siðastliðnu sumri og hefir siðan stundað dans undir handleiðslu frú Brock-Nielsen og annara og tekið mildum framförum. Er hún nýkomin heim úr þeirri dvöl. Vonandi er að ungfrúin láti Reykvíkinga bráðlega sjá eitlhvað til sín, og ncmi hjer land fyrir hina nýju listagrein, sem eigi liefir minna til síns ágætis en margar aðrar fagrar listir. grennið — i bifreiðum þó. Hjeldu svo til baka aftur mánudagsmorg- un jafn hljóðlega og þcir höfðu komið og fóru til Færeyja aftur, en þaðan var ferðinni licitið til Edinborgar og svo heim. Þessi flugferð er liin fyrsta, sem farin liefir verið hingað án mikils viðbúnuðar og lmfa flugmennirnir áunnið, sjcr samúð manna fyrir hæglæti og yfirlætisleysi. Besta veður var hjer meðan þeir slóðu við og leist þeim vcl á sig hjer. Á myndinni til vinstri sjest flugvjelin en á þeirri til hægri flugmennirnir er þeir eru að koma í land úr vjclinni. Foto Álfreð. FIMLEIKAFLOKKUR ÁRMANNS Hjcr birtist mynd af fimleikafloklci þeim, sem af hálfu Glimufje- lagsins Ármanns kepti um farandbikar Oslo Turnforcning og vann sigur, í mai síðastliðnum. Efri röð (frá vinstri til hægri): Karl Gíslason, Jón G. Jónsson, Konráð Gíslason, Sigurður Steindórs- son, Gísli Sigurðsson, Sigurbjörn Björnsson, Fremri röð: Ragnar Iíristinsson og Óskar Þórðarson, ennfrcmur Jón Þorsteinsson íþrótta- kennari og Jens Guðbjörnsson, formaður fjelagsins. Amanullah Afganakonuiií;ur liefir nú liröklast úr landi sínu vegna l>ess hve umbótagjarn hann var og gerir nú ráð fyrir að setjast að í Evrópu, sem liann hefir svo mikið dálæti á. En J>á kemur nýtt vandamál til sög- unnar. Eins Og kunnugt er fór hann í kynnisför til Evrópu fyrir nær tveimur árum og gekk l>á með drotn- ingu sinni í húðirnar, tók út vörur og ljet skrifa hjá sjer. En svo gleymdi hann alveg að horga reikningana. í París gleymdi hann óborguðum reikn- ingum sem námu 5 miljónum franka og í London og enskum nýlendum ljet hann eftir sig 30 miljón franka skuld. Til þess að afstýra hneyksli greiddu rikissjóðir þessara landa reikningana í bili, en nú er húist við, að ríkissjóðirnir krefjist l>cssa fjár aftur. Og livað á Amanullah ]>á að gera, þvi vitanlega flýði liann úr Af- ganistan slippur og snauður. Sagt er að viðkoma AmanuIIah hafi kostað 54.000 krónur á dag ineðan hann dvaldi í París og Berlin, en 00,000 krónur daglega meðan hann rtóð við í London. Nýlega átti að leika orustuna við Iselberge, sem var háð 1809, á kvik- mynd. Leikstjórinn lilýtur að hafa verið duglegur og kunnað að koma leikurunum í hermenskuskap, þvi l>etta fór svo, að þeir fóru áður en l>á varði að berjast í alvöru. Varð loks að kveðja lögreglu á vcttvang til að skilja þá, og liöfðu 37 manns þá særst allmikið. Nýjasti dansinn i París lieitir „Camel glide“ og hefir breiðst út á svipstundu. Er búist við að hann út- l'ými Charleston. „Camel glide“ er sagður vera liægur og fallegur dans, scm minni miklu meira á gamaldags vals en nýtiskudansana.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.