Fálkinn


Fálkinn - 09.11.1929, Blaðsíða 5

Fálkinn - 09.11.1929, Blaðsíða 5
F Á L K I N N 5 Bti. Pettersons UUorrespondanseskole, Kepycn. Tíu stór hefti. Nótnakensla. Finqrasetning. Æfingar. Söngvar. Hljóðfall o. fl. — Meðmæli bestu tónlistarmanna. Kr. 16.— fyrir nemanda. Kensluskrá ólíeypis. Skólinn heftr nemendur í Noregi, Ameríku, Þýskalandi og fleiri löndum. HNAPPALAUS FÖT Sunnudagshugleiðing. „.... styrkist i Drotni og i krafti máttar hans. Ef. 6.10. Sterkur vilji, djúp hugsun, vííitæk kunnátta, ríkt hugsana- Iíf, líkamleg heilbrigði og and- legt og efnalegt sjálfstæði eru mikilsverðir hlutir. Um það eru flestir sammála. En spyrji menn áfram: hvaðan koma þessar góðu gjafir og hvernig eru þær notaðar? þá verða svörin mis- munandi. Þá eru það aðeins sumir, sem vilja gefa Guði dýrð- ina og viðurkenna, að frá hon- um sje komin öll góð og full- komin gjöf. En aðrir og máske flestir ségja: Alls þessa hefi jeg aflað mjer með dugnaði mínum og þekkingu, með sterkum vilja og ástundunarsemi. Hver er sinnar gæfu smiður, segja þeir. Og þeir trúa á mátt sinn og megin. En hvað stoðar „máttur og megin“, hvað stoðar öll þekking cg viska á örlagastundum lífs- ins. Hvað stoða auðæfin, þegar sjúkdómana ber að höndum og hvað stoðar þá dugnaðurinn? Erum vjer ekki þráfaldlega mint á, að maðurinn er ómáttug vera í heiminum. Að hann ræður engu um það sem gerist, að hann hefir ekkert yfir því að segja, hvernig veðrið verður á morgun, hversu mjög sem hann langar til þess. Og á örlagastundum lífsins er það ekkert sem dugir nema þetta eina — að íklæðast Guðs alvæpni, að styrkjast í Drotni. Hversu mörg eru ekki dæmi þess, að menn og konur, sem veröldin hefir haft að olboga- börnum, að því er virðist fyrir manna sjónum, eiga í rauninni miklu meiri fjársjóði en hinir, sein gæfan virðist hossa hæst. Þeir taka mótlætinu með hinni mestu rósemd og jafnaðargeði, þeir æðrast ekki þó á móti blási og jafnvel hinum mesta harmi taka þeir með stillingu og und- irgefni undir Guðs vilja. Og hversvegna? Vegna þess að þeir eru styrkir í Drotni og treysta ávalt hans ráðstöfun og vilja, segjandi: „Alt er gott, sem gerði hann!“ Er nokkur fjársjóður dýrmæt- ari en þessi? Er nokkur eign betri. Er ekki sálarfriðurinn og trúnaðartraustið á vilja almátt- ugs Guðs meira virði en öll ríki veraldar og þeirra dýrð, meira virði en stundaránægja og öll þægindi, sem hægt er að fá fyr- ir peninga. Og umfram alt: er það ekki rneira virði, þegar hinsta kallið kemur, að vita sig í sátt við almáttuga forsjón Guðs, en að hafa notið þæginda og safnað auði, sem enginn getur með sjer tekið yfir landamæri lífs og dauða? Eru ekki eilífu fjársjóðirnir meira virði en þeir tímanlegu? Hver sein hugleiða vill þetta, er ekki í vafa um svarið. En mennirnir eru svo tregir til að gera sjer grein fyrir þessum sannindum. Sá er hamingjusamastur, sem vill l'ela Guði alt sitt ráð og leita ávalt til hans, bæði í blíðu og stríðu UM VlÐA VERÖLD. SÁ VAR ÖHEPPINN Svo sem kunnugt er getur pað ver- ið liættulegt að gefa sig á tal við ó- kunnar stiílkur á strretum borganna i 'i ' mj Ameriku. Lög Bandaríkjanna eru ströng á þvi sviði. En þrátt fyrir öll lög ber það þó ekki ósjaldan við að menn gefa sig á tal við stúlkur á göt- Unum. Það bar þannig við nýlega i New York að ungur maður mætti stúlku, sem honum leist mjög vel á — og hann elti hana þangað til þau komu úr fjölmenninu í stræti, þar sem um- ferð var lítil. Þá ávarpaði hann hana og bauð henni fylgd sína heiin. En stúlkunni þótti fátt um. Hún ljet fyrst sem hún hvorki lieyrði hann nje sæi, en hann varð ]>ví ákafari. Skyndilega vindur hún sjer að lionum og rekur honum rokna kjaftshögg svo lionum sortnar fyrir augum og liggur við að líði yfir hann. En liún lieldur áfram að lemja á manninum og smátt og smátt safnast þar að fjöldi fólks. Lög- reglan skerst í leikinn og hæði eru flutt á lögreglustöðina. Kom þá í ljós að aumingja maðurinn hafði verið svo ólieppinn að lenda á stúlku sem þekt er um allan Vesturheim fyrir lipurð sína í hnefaleik. Hún lieitir Virginie Mercereau og ræður nú öllum stúlk- um í Bandaríkjunum til þess að læra linefaleik svo þær geti varist óskam- feilnum karlmönnum á strætum borg- anna. — En maðurinn var dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að liafa móðgað stúlkuna, sem liann ekkert þekti. MERKILEGT IIÚS í nánd við San José í Californíu er iiús, sem hefir sina merkilegu sögu. Ung ekkja, vellauðug vildi komast út úr glaumi Hfsins og ljet því byggja sjer liús þar sem hún gæti lifað al- veg út af fyrir sig, bólcstaflega falið sig fyrir heiminum. Meðan á hygging- unni stóð har það við, að liún sólti fund andatrúarmanna og var við- stödd tilraunir þeirra með miðil. Mið- illinn sagði lienni að hún væri að láta byggja sjer hús, sem og líka var. Enn- fremur að hún mundi deyja þegar húsið væri fullgert. Konan var ákaflega móðursjúk og iijátrúarfull og henni batnaði auðvit- að ekki við þessar upplýsingar úr andaheiminum. Hún ákvað að gera alt, sem í hennar valdi stóð til þess að draga á langinn byggingu hússins. Og þannig bar það við, að hún ljet byggja og rífa niður hvað eftir annað, hreyta utanhúss og innan, hæta við gluggum og stækka liúsið og minka það síðan aftur. Þetta kostaði auðvit- að of fjár, en það gerði henni ekkert þvi nóg átti hún til. En húsið varð aldrei fuBsmiðað og hún flutti aldrei í það. Þegar hún andaðist nýlega um 85 ára að aldri, voru smiðirnir enn við vinnu við húsið. En sjálf hafði hún aldrei stigið sinum fæti í það. En liúsið er merkilegasta húsið í Ameríku og fólk þyrpist þangað til að skoða það. f því eru 144 herbergi og margt er þar stórkostlegt og rik- mannlegt. FEGURÐARDROTNING Þessi óneitanlega allgildvaxna negra- kona er álitin vera alira kvenna frið- ust meðal landa sinna. Fegurðarhug- lakið er mismunandi sem betur fer. Eins og gefur að skilja er hún gift stórhöfðingja og býr i Austur-Afríku, i þeim hluta hennar er Þjóðverjar áttu fyrir striðið. En þar í landi er hin kvenlega fegurð meira komin undir gildleika en nokkru öðru. I>essi maður er ballett-dansari í Vínarborg og hefir nýlega vakið á sjer eftirtekt með því að láta sauma sjer linappalaus föt. Hann segist hafa koin- ist að raun um, að eitthvert hið erf— iðasta verk fyrir livern karlmann sje að festa hnappa á föt. Og hvað á mað- ur að gera ef maður ekki á neinn kvenmann að? Láta gera sjer hnappa- laus föt, svarar hann, en liann getur þess ekki livernig þau eru annars. SÍMASAMBAND VIÐ AÐRA IINETTI Danski prófessorinn P. O. Pedersen sagði frá því í fyrirlestri um daginn, að ekkert væri nú iengur þvi til fyrir- stöðu að símasamband gæti komist á milli jarðarinnar og annara linatta. En hann bætti því, að í besta tilfelli mundi það taka frá 8—66 ár að koma sambandinu á. Sá, sem ætlar að síma til Mars verður þvi að vera bolinmóð- ur. Komi svarið ekki meðan hann lif- ir, kemur það máske til sonar eða sonarsonar hans, jafnvel þó hann taki „forgangs-hraðsamband“. En til vonar og vara viljum vjer biðja stúlkurnar á simastöðinni, að láta svarið koma á heillaóska-eyðu- blaði, þegar það loksins kemur. I I I 1 „Sanatogcn gcfuv heilanum styrk, líkama og taugum krafta, ogum- fram alt ágætt skap“, skrifar kunn- ur danskur maður. Þessi ummæli skýra í fáum orðum hvað lækna- vísindin og fjölmargir neylendur um heim allan hafa haft upp úr því að nota Styrktar- og taugalyfið Óshist frekari upplýsingar, þá noíiö meö- fylgiandi miða. A/S Wulfing Co., Afd. Sanatogen. Sct. [Jörgens Alle 7, Kbh. V. Sanatogen er samsett úr hreinustu eggjahvítu og glycerofosfat — hinum eðlilegu byggingarefnum líffæranna og tauganna. Fæst í öllum lyfjabúðum frá d. kr. 1,85. Sendiö mjer ókeypis og burðargjaldsfrítt: Sanatogen sýmshorn og ritling. Nafn __ Staða_

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.