Fálkinn


Fálkinn - 09.11.1929, Blaðsíða 14

Fálkinn - 09.11.1929, Blaðsíða 14
14 F A L K I N N SILKOLIN er og verður besta ofnsvertan sem þjer fáið. A.J. Bertelsen & Co., hf. Reykjavík. — Sími 834. Haust og vetrar Skófatnaður. Meira, fallegra og ódýrara úrval en nokkru sinni fyr. — T. d.: Kvenskór, með lágum og hálfháum hælum. Karlmannaskór, með hrágúmmísólum. Skólastígvjel, á drengi og telpur. Inniskór. Gúmmískór. Skóhlífar. O. fl. Skóverslun B. Stefánssonar, Laugaveg 22 A. Sími 628. m V. B. K. selur „ÓÐINN“ teikniblýantinn. VINDLAR: Danska vindilinn PHÖNIX þekkja allir reykingamenn. Gleymið ekki Cervanles — Amistad — Perfeccion o. fl. vindlategundum. Hefir í heildsölu SIGURGEIR EINARSSON Reykjavík — Slmi 205. Kvensokkar í miklu úrvali f Hanskabúðinni. — Nei, þakka yður fyrir. Jeg ætla að eta miðdegisverð þegar jeg er kominn hjeðan. — Gott og vel. En jeg er ekki alveg viss um, að það verði svo fljótt, svo yður væri betra að fá eitthvað nú, ef ske kynni, að mið- degisverðurinn kynni að dragast. Án þess að bíða eftir svari Hughs fór gamli maðurinn út og skömmu seinna kom inn þjónn i einkennisbúningi með mat og vín. Hugh, sem í raun og veru var orðinn svangur, gerði þessari máltíð góð skil. Er því var lokið, beið hann fullan hálftíma eftir greifanum. Er hann kom aftur, sá Hugh þeg- ar, að eitthvað hafði komið fyrir, sem hafði ergt gamla manninn. Hann var órólegur og hönd hans skalf er hann fitlaði við umslag, sem var stórt mjög og með mörguin innsigl- nm. Hann gekk nokkrum sinnum fram og aftur um gólfið áður en hann talaði: — Þjer hafið þegar sagt, herra Valentroyd, sagði hann, — að þjer vitið ekkert um innihald brjefsins, er þjer komuð með til mín, og auð- vitað ber jeg ekki brigður á orð yðar. Jeg vildi gjarna spyrja yður, hvort þjer hafið farið með likt brjef til nokkurt annars stað- ar, eða vitið til, að slíkt hafi verið gert. — Jeg hefi ekkert annað brjef farið með, svaraði Hugh, eins og satt var, og veit alls ekki til, að neitt slikt brjef hafi verið sent. — Voruð þjer eltur hingað i kvöld, herra Valentroyd? -— Eltur? endurtók Hugh hissa. — Nei, ekki það jeg veit. — Þá er, að minsta kosti einhver á hælum yðar núna. Lögreglumenn mínir hafa sjeð tvo menn, sem eru á vakki hjer í kring. Ann- ar er velþektur njósnari i þjónustu bresku stjórnarinnar — hinn er augsýnilega fjelagi hans, því þeir hafa sjest vera að tala saman. Til þess að gera yður auðveldara að lcomast til baka til Halmene lávarðar, sting jeg uppá því, að þjer farið hjer út um leynidyr gegn um innanríkisráðuneytið. Þá bíður eftir yður vagn á Piazza Vittorio, sem ekur yður til Sforza Medici, en þar hef jeg fengið hrað- lestina til að stansa yðar vegna. En á meðan ætla jeg að láta taka þessa tvo menn fasta, ineð einhverri átyllu. Fáeinir klukkntímar í fangaklefa gera þeim ekkert til, en koma i veg fyrir, að þeir geri yður nokkuð til miska. Hugh varð hissa en um leið glaður yfir því hvernig gamli maðurinn gat talað uin hætt- urnar og vjelahrögð njósnara og handtökur. Gamli maðurinn var næstum kátur í bragði, er hann sagði: — Þjer sjáið nú, herra Valen- troyd, að það var heppilegt að taka sjer dá- lítinn bita. Áður en þjer komuð inn til min, vissi jeg, að þjer höfðuð verið eltur. Meðan Hugh var að koma brjefinu fyrir í vasa sínum, gat hann eldci annað en dáðst að skarpskyggni gamla mannsins og fram- sýni. Hann sá, að ekki hafði orðrómurinn logið um lcænsku hans. — Hann gekk á eftir honum gegn um mörg göng og margar dyr, sem gamli maðurinn opnaði með sjerstökum lykli, er hann hafði á sjer og loks komu þeir út í marmara súlnagöng, sem lágu að dóms- málaráðuneytinu, og fóru niður breið dyra- þrep, en þar beið stór bifreið. — Á undan þessum vagni fer annar, með lögregluliði í, mælti greifinni og annar svo sem hundrað stikum á eftir yður. Vona að sjá yður aftur. Addio. — Au revoir, og kærar þakkir, svaraði Hugh, og steig upp í vagninn, sem þegar fór af stað. Það var að dimma er vagninn ók f amhjá vínbrekkunum, og við ljósin frá honum gat Hugh sjeð annan vagn nokkru framar og er hann leit aftur fyrir sig, sá hann framljósin á vagninum, sem á eftir var. Hann fann sig öruggan og þakkaði í huga sínum gamla manninum fyrir þessar ráðstafanir hans. Þegar hjer um hil klukkutími var liðinn, rann vagninn að járnbrautarstöð, er var rjett hjá veginum, og maður, sem setið hafði hjá ökumanninum, opnaði dyrnar og sagði: — Sforza Medici, yðar hágöfgi, — lestin kemur eftir fáar mínútur. Hugh þakkaði honum og steig út. Auðsætt var, að liúist var við honum, því stöðvar- stjórinn kom fram sjálfur, með bukti og beygingum, með Ijósker í hendi og vísaði Hugh inn í skrifstofuna, þar sem hann fræddi hann á því, að lestin væri innan tín mílna og kæmi á hverri stundu. Hann neyddi Hugh til að drekka glas af víni, og til þess að angra ekki náungann, sem vildi sýnilega vera sjer meiri mönnum til geðs, tók Hugh boðinu. Stöðvarstjórinn talaði með mikilli mælgi um vínuppskeru ársins, og allar þær framfarir, sem orðið hefðu í landinu, siðan núverandi alræðismaður koinst til valda, en meðan hann talaði athugaði hann Hugh i'or- vitnislega. Slíkt hafði aldrei komið fyrir áð- ur, að hraðlestin hefði verið stöðvuð fyrir útlending, og hann skyldi sjá um, að annar eins maður þyrfti ekki yfir neinu að kvarta, það er til hans kasta kæmi. Skröltið i lestinni heyrðist brátt í fjarska og þeir gengu út á pallinn og Hugh steig u]»]» í lestina, og var honum þegar vísað inn í klefa þar sem enginn var fyrir. Er hann var sestur niður, var dyrunum lokað og lestin fór af stað. í tvo klukkutíma sat hann þarna ó- áreittur, en þá opnuðust dyrnar snögglega og tveir menn komu inn og settust í yztu sætin, inilli Hughs og dyranna. Hugh horfði á þá forvitnislega og þeir á hann. Ekkert orð var sagt — og mennirnir voru ekki fyr sestir en inn kom járnbrautarþjónn og með Iionuni tveir menn í venjulegum búningi en með skammbyssur í höndum. Járnbrautarþjónn- inn ávarpaði mennina tvo: — Herrar mínir, þessi klefi er ekki handa hverjum sem er, og jeg hið yður því að fara út hið hráðasta. Mennirnir muldruðu einhverja afsökun í hálfum hljóðum og höfðu sig burt þegar í stað. Þjónninn hneigði sig fyrir Hugh og bað hann afsaka þetta ónæði, fór síðan út ásamt fjelögum sínum, en Hugh sat eftir og velti fyrir sjer í huganum þessum viðburði. Loks komst hann að þeirri niðurstöðu, að tilraun hefði verið gerð til að ná í brjefð, sem hann hafði meðferðis, og liann fylltist enn á ný að- dáun á lögreglunni, sem verður að Stofna sjer í allskonar hættur án þess að hafa þá vernd, sem hann hafði nú. Hann óskaði mest af öllu að vera kominn aftur út á skútuna. Brjefið, sem hann hafði í vasanum og var ó- byrgur fyrir, gerði hann órólegan. Samt bar ekkert frekar við það sem eftir var leiðarinn- ar, og loks kom hann inn í hina illa lýstu járnbrautarstöð í Leghorn. Hugh stökk út á pallinn og ætlaði að fara að ná sjer í vagn. en þá kom til hans maður, sem liafði verið með honum alla leið í lestinni og mælti: Það er verið að ná í vagn handa yður, herra Valentroyd, og þjer eruð vel verndaður, svo ekkert er að óttast. Hugh þakkaði homim og steig inn í lokaðan vagn og aftur tók hann eftir því að annar vagn var á undan og þriðji á eftir honum, og meðan farið var um hina skuggalegu götu milli stöðvarinnar og hafn- arinnar, tók hann cftir því, að miklu styttra var á milli vagnanna en verið hafði á milli hinna á þjóðvegnum. Þegar komið var á liryggjima, sá Hugh Ijósin ó „Valnum", en þar eð hann vissi ekki hvernig skyldi gefa merki, ætlaði hann að fara að ná í ferju- mann, en þá kom enn i ljós umhyggjusemi þeirra Latiniumanna, því förunautur hans bljes í pípu, og samstundis var svarað af sjónum; síðan var gengið niður þrep, en þar beið tollbátur, sem skyldi flytja hann á skipsfjöl. Fylgdarmaðurinn óskaði Hugh góðrar ferðar og báturinn skreið af slað. Á hátnum voru nokkrir tollembættismenh

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.