Fálkinn - 18.01.1930, Qupperneq 2
2
P A L K I N N
...... GAMLA BÍÓ .........
Guðlausa konan.
Stórfræg kvikmynd í 10 þáttum
eftir
Cecil B. de Mille
Aðalhlutverkin leika:
Lina Basquette
Gporge Duryea
Marie Prevost
Noah Beery.
Verður sýnd bráðlega.
ÖLGERÐIN
EGILL SKALLAGRÍMSSON.
~~rgBC=: ■■=)
Protos Bónvjel.
Endurbætt.
Áður góð,
nú betri.
Gólfin verða spegil-
gljáandi — fyrirhafnarlítið.
Fæst hjá
raftækja-
sölum.
ALLIR KARLMEN N,
sem vilja ganga vel klæddir til fótanna,
ganga eingöngu á skóm og stigvjclum
með þessu merki. Við liöfum nú ný-
fengið nýjar tegundir af þcssum al-
tCHuTz-MARKE þekta skófatnaði, í viðbót við gömlu
tegundirnar, þar á rtieðal laklcskó,
InAMaxti mjög fallega og stcrka.
Lárus G. Lúðvígsson, Skóverslun.
:...... NÝJA BÍÓ ..........;
SADIE |
j Stórfenglegur sjónleikur í 9 j
þáttum, tekinn af j
United Artists
með
Gloria Svanson
í aðalhlutverkinu.
j Mynd semj allir ættu að sjá. j
Sýnd bráðlega.
SOFFÍUBÚÐ
Stór útsala
stendur nú yfir
hjá okkur
20-50°|0 afsláttur
gefinn af öllu.
Komið meðan nógu
er úr að velja
Allir þekkja nú
SOFFÍUBÚÐ
Kvikmyndir.
SADIE.
Gloria Swanson er með allra fræg-
ustu leikkonum heimsins. Hún cr af
sænskum ættum, en fædd i Ameriku.
í mynd þeirri, er bráðlega verður
sýnd í „Nýja Bíó“ leikur hún eitt
hið allra besta hlufverk sitt, enda
hafa henni farist svo orð, að hún
vildi hélst mega leiká Sadié- ált líf
sitt. Myndin gerist á Suðurhafseyj-
unum. Það er rigningartimi, og vatn-
ið streymir óaflátaníega af himnin-
um yfir kókospálmana og raka jörð-
ina. Hitinn og regnið æsa hinar dýrs-
legu hvatir náttúrunnar og gjöra
mennina hálf brjálaða. Hinar þjettu
hitabeltisskúrir eru í myndinni tákn
hinnar sterku þrár jarðarinnar og
efni myndarinnar hinn eilifi sigur
efnisins yfir andanum. Sadie Tomp-
son er ung stúlka frá lastahverfinu í
San Francisco. Hún er á leið til
Apía, þar sem hún hefir von uin
stöðu. Með henni á skipinu eru trú-
boði að nafni Hamilton ásamt konu
sinni og tveir aðrir farþegar. Trú-
boðinn hneikslast strax á framferði
hennar á skipinu og tekur að þruma
yfir henni. Ber það heldur lítinn á-
rangur.
Þegar komið er á Suðurhafseyjuna
Pago eru þau öll sett í sóttkví vegna
bölusóttar. Gengur nú trúboðinn svo
langt, að hann vill láta senda Sadie
aftur lil San Francisco, þetta gerir
hann þó ekki eingöngu vegna þess
að hann vilji.forða öðrum frá henni,
heldur er hann nú orðinn hræddur
um sjálfur að falla fyrir freisting-
unni. Sadie, sem í rauninni er ágæt
stúlka, þó hún sje ljettúðug og kát,
vill með engu móti hverfa aftur til
,síns fyrra lífs Qg leitar. hjálpar hjá
vini sínum liðsforingjanum Tim Ö’-
Hera, sem hún í rauninni ann hug-
ástmn. Seinast missir trúboðinn alveg
stjórnar á sjálfum sjer og gefur sig
freistíngunni á vald. Daginn eftir
finst hann í flæðarmálinu, hann hef-
ir skorið sig á háls.
Myndin endar í lukkunnar vel-
standi fyrir Tim O’Hara og Sadie.
GUÐLAUSA KONAN.
Það vakti geysimikla athygli fyr-
ir nokkrum árum, að mál var liöfð-
að gegn skólakennara einum i Banda-
ríkjunum fyrir það, að hann liafði
gefið í skyn, að mennirnir væru
komnir af öpum. Lauk því máli svo,
að kennarinn var rekinn frá starfi
sínu. Dómarinn taldi breytiþróunar-
kennningu Darwins hreina villu-
kenningu og guðleysingjahjal. Ev-
rópumenn voru yfirleitt á einu máli
um að fordæma þetta og hafa siðan
haft það til marks um þröngsýni
Ameríkumanna.
Kvikmyndasniliingurinn Cecil B.
de Mille liefir notað þetta efni í
kvikmyndína „Guðlausa konan“, sem
sýnd verður á næstunni i Gamla Bíó.
Segir myndin frá æskulýð í skóla
einum; sem skifst hefir í tvo and-
viga flokka vegna skoðana sinna á
trúarbrögðum. Allmargir skólanem-
endurnir hafa stofnað með sjer „fri-
hyggjumannafjeiag“ og er ung stúlka,
Mary að nafni, formaður þess. Fje-
lag þetta lætur prenta ávarp, sem fer
niðrandi orðum um guðstrúna, en þá
ætlar skólastjórinn að skerast i leik-
inn. En andstæðingar fjelagsins í
skólanum bjóðast til að ganga á
milli bols og höfuðs á fjelaginu.
Skömmu síðar lendir þessum tveim
flokkum saman á fundi og verða á-
flog og rýskingar og ung telpa bíður
bana.
. Aðalforsprakkarnir á fundinum,
Mary og tveir piltar, sem lieita Bob
og Bozo eru dæmd i 5 ára fangelsi
fyrir þetta. Og fangelsið er hreinasti
kvalastaður, ekki síst vegna þess að
eftirlitsmaðurinn er dýr í manns-
mynd og gerir föngunum alt til
miska. Fangelsisvistin verður til þess
að æsa liatur urigmenrianna til alls
þjóðskipulags. Lýsir mestur hluti
myndarinnar lífinu I farigelsinu og
er meðferðin á föngunum átakanlcg.
Þá ber það við, að eldur kemur upp
í fangelsinu, og fangarnir, sem eru
aðalpersónur leiksins bjarga um-
sjónarmanninum frá dauða. Fyrir
þetta eru þeir náðaðir og nú hefst
nýtt tímabil í lífi þeirra.
Cecii B. de Mille hefir tekist svo
vel frágangur þessarar myndar, að
hún hefir vakið einna inesta athygli
allra þeirra mynda, sem komið hafa
á inarkaðinn nýlega. Telja erlendblöð
nýtt spor inarkað í kvikmyndagerð
ineð þesari mynd. Aðalhlutverkin eru
leikin af Lina Basquette, Marie Pre-
vost, Eddie Quillian, Noah Becry og
George Duryea.
Alexxander Lecocq hefir samið
söngléik einn, sem heitir „Græna
eyjan“. Er eyjan cinskonar draum-
óraland, þar sein allir íbúarnir cru
kvenfólk. — Parísárblaðið „Le Jour-
nal“ segir frá annari eyju, sem til er
i raun og veru, en gæti borið nafnið
„kvennaeyjan" með rjettu. Eyja
þessi er í Kyrrahafi og heitir Rapa.
Er hún eign Frakka. Hún er ekki
nema 15 kílómetrar í þvermál og
mestmcgnis bygð kvenfólki. Karl-
mennirnir sem þar eru eru taldir
einskonar „lieilög dýr“ eins og hvítu
fílarnir í Siam eða apisinn i Egypta-
landi —r- Fólkið er af lcynstofni Maori-
manna og mjög ósnortið af erlendri
siðmenning. Ög þar er hreint kvenna-
ríki. Konur annast stjórn eyjarinnar
og vinna öll störf. Þær eru veiðiinenn
og þær heyja strið, en þeir fáu karl-
menn, sem þar eru, vinna aldrei ær-
legt liandtak og kvenfólkið dekrar
við þá á allan liugsanlegan hátt. En
ef karlmönnunum leiðist iðjuleysið,
er þcim leyft að stága garma sjer til
skemtunar.
KVENNAEYJAN.
------x-