Fálkinn - 18.01.1930, Blaðsíða 4
4
F A L K 1 N N
Vikivakarnir endurreistir.
Það er einkennilegt og eftir- um við þó vekja eftirtekt manna
tektarvert að orðið „Gleði“ um á þremur ágætum þulum, sem
mannfundi, er riu að mestu horf- sungnar eru við gullfallegt þjóð-
dansa, svo hann hafi unun af. breiðslu um land alt, svo þeir
ið úr máli okkar. Er þá ekki
lengur gleði á ferðum þar sem
komið er saman? Förum við
ekki glöð og endurlífguð úr
kaffisamsætunum, átveislunum
og dansleikjunum? Ef gleðin
byggi í sveitunum, hversvegna
flytur þá alt unga fólkið í kaup-
staðina, til þess að brjóta báta
sína þar?
Nei, gleðin er horfin, hin
hreina og sanna gleði, sem ger-
ir okkur betri menn, en ekki
verri.
Falleg og þakkarverð tilraun
til þess að finna af turforna„Gleði“
liefir verið gerð af hinum ötula
og áhugasama æskuleiðtoga hr.
Helga Valtýssyni er hann tók
sjer fyrir hendur að vekja upp
aftur vikivakadansana gömlu.
Höfðu þeir þá legið í dái um
hundrað ár. öll spor voru glöt-
uð. Lögin týnd að mestu og ekk-
ert nema nokkur kvæðaslitur að
byggja á. Hann varð sjálfur að
taka sig til að finna spor, er vel
gætu hæft lundarfari okkar Is-
lendinga. Má segja að þetta hafi
tekist ágætlega. Til marks um
það er ný-útkominn leiðarvísir
með 18 vikivökum gefinn út af
U. M. F. í. Er þar ágæt lýsing
á sporum og lireifingum öllum
svo vel má af nema og svo lög og
ljóð. Þar eru margir tilkomu-
miklir dansar einsog t. d. Goð-
mundur á Glæsivöllum ogrímna-
kviða Jóns Leifs. En einkum vilj-
lag vestfirskt, sem hve/ einasti
íslendingur ætti að kunna.
Er það hin spaka þula próf.
Sig. Nordals: Geklc jeg upp á
hamarinn, Ilinn lokkandi ástar-
óður Davíðs: Komdu inn í kof-
ann minn“. Og hinn ramíslenski
Alfasveinn G. Hagalíns, með ind-
isfagra viðlaginu: Margt er það
í steinunum, sem mennirnir ekki
sjá, er þar slundum grátið, svo
enginn heyra má.
Síðustu tvö þrjú árin hefir
ungmennafjelagið hjer í Reykja-
vik dansað og æft hina
nýju vikivaka og halda
nú uppi kenslu í döns-
unum. Verið er að æfa
stóra barnaflokka fyrir
næsta sumar. Og við
lýðskólann á Hvítár-
bakka hefir verið ráð-
inn fastur kennari síð-
ustu vetur til þess að
kenna dansana. Er það
vel farið og ætti svo að
vera við alla stærri
skóla út um land. Því
enda þótt dansarnir
gætu verið hollir og
góðir kaupstaðarbúum,
eru þeir þó sjerstaklega nauð-
synlegir sveitunum og liefðu átt
að vera komnir fram fyrir löngu.
Eiginlega ættu allir íslending-
ar að kunna og dansa víkivaka,
það er ekki nema sjálfsagt mál.
Enginn er of ungur, enginn of
gamall, til þess að nema þá og
Það er hið góða við vilcivakana,
að þeir fara ekki í manngreinar-
álit, þeir eru eign allra, eins og
hin fagra náttúra þessa lands.
Áðurnefnd bók, er þó ekki tal-
in af höfundi nema fyrsta byrj-
un, hending, sem eftir er að
ríma við. Væri æskilegt að viki-
vakarnir næðu sem hraðastri út-
Nokkrir aðdáendur Woodrow Wil-
son stofnuðu sjóð til minningar um
hann eftir dauða hans og skyldu ár-
lega veitt úr sjóðnum friðarlaun, að
upphæð 25.000 dollarar. Nýlega var
þessum verðlaunum útbýtt i fjórða
skifti og hlaut alþjóðasambandið þau.
Áður hafa þau verið veitt viscount
Hobert Cecil, öldungardeildarmann-
inum Elihu Root og flugmanninum
Charles Lindberg.
----x----
Götulögreglan i Chicago hefir reynt
að komast fyrir ástæðurnar til um-
ferðaslysa þar i borginni. Hefir liún
komist að þeirri niðurstöðu, að of-
þreyta ökumanna eigi mestan þátt-
inn i slysunum og hefir því gefið út
áminningu um, að aka varlega þegar
líða fer á daginn.
----'X---
Helen Wills, heimsmeistari kvenna
í tennis, kvæmtist nýlega í kyrþey
miðlaranum Frederick Moody. Við
vígsluathöfnina var hlaupið yfir
greinina um, að konan skuli vera
manninum undirgefin og eins var
ekki minst á það, að brúðhjónin
ættu að skifta gæðum þessarar ver-
aldar jafnt á milli sín. Helen Wills
segist ætla að lialda áfram að leika
tennis þangað til hún verði sextug.
------------------x-----
gætu fylt sveitirnar aftur glööu,
liriaustu og hamingjusömu fólki.
Df.
Ólöf Árnadóttir, stud. phil. er
eini íslenski kvenstúdentinn, scm
gert hefir llkamsment að sjer-
námi. En er það alltitt meðal
kvenstúdenta erlendis. Og há-
skólafag víða um lönd. Dvaldi
hún síðastliðið ár í Danmörku,
Svíþjóð og Englandi og er fyrsti
íslendingurinn, sem stundað
hefir nám hjá hinum fræga
finska háskólakennara Eli Björk-
stén.
Klukkurnar, sem láta gaukinn gala
um leið og þær slá, eru flestar smíð-
aðar í Schwartzwald. Nú hafa klukku-
smiðir þar gert nýja umbót á vekj-
araklukkum sínum. Um leið og þær
hringja kveikja þær á rafljósinu í
svefnherberginu.
----x-----
Það er fulíyrt, að Egyptar hafi
þekt grammófóninn á dögum Seti
konungs. Og í 2000 ára gömlum bók-
um kínverskum stendur, að þá hafi
fyrir þúsund árum verið uppi kon-
ungur i Kina, sem hafi sent undir-
konungum sinum fyrirskipanir sín-
ar á þann hátt, að liann talaði i kassa
og sendi kassann síðan til þeirra og
Ijet hann flytja skilaboðin munnleg.
Sje þetta satt, þá er Edison gamli
ekki cins frumlegur og menn hafa
haldið fram að þessu.