Fálkinn - 18.01.1930, Page 13
F A L K I N N
13
M á I n i n g a-
vörur
Veggfóður
Landsins stærsta úrval.
»MÁLARINN«
Reykjavík.
3S2
f
Framköllun. Kopiering.
Stækkanir.
Carl Ólafsson.
3BE
3ÖE
Hljóðfærasalan Laugaveg 41
KÖHLER-ORGELIN — eru tvímælalaust hljóðfegurstu orgelin,
sem flytjast hingað til landsins. Allur frágangur hinn vandaðasti.
Sjerstaklega vel fallin tegund fyrir kirkjur. Nokkur stykki fyrir-
liggjandi. Nýjar hirgðir lcoma bráðlega. Góðir borgunarskilmál-
ar. Einnig nokkrar nýjar tegundir af píanóum (Westermayer,
Kriebel, Seyler) valdar af einum frægasta pianósnillingi Ber-
línar. Nokkur fyrirliggjandi. Verð frá 12—2000 kr. Flygel ágæt
á 2000 krónur útveguð.
GRAMMÚFÓNAR, ágæt ný tegund (42:—130 lcr.). Plötur: ein-
söngvar — kórsöngvar — dansorlcester og harmónika.
Einungis það besta.
Hljóðfærasaian - Laugaveg 41.
Pantanir utan af landi sendist: Benedikt Elfar, Fjölnisveg 11.
Biðjið um verðlista.
Fállfillll er viðlesnasta blaðið.
lulKlllll er besta heimiUsblaðið.
Mðrbrotaklúbburinn.
Eftir WILLIAM LG QUEUX.
Frh.
átti hann að koma boðum til Forseta? —
Sjáið þið til, sagði hann. — Þetta virðist
vera alt í lagi, en svo stendur á, að jeg get
ómögulega aðstaðið, rjett í bih. Jeg þarf að
hitta mann í mjög áríðandi erindi.
— Jcg er hræddur um, að það verði að
bíða, svaraði hinn kurteislega. Jeg get full-
vissað yður um, að það er miklu betra að
koma með okkur mótþróalaust og ræða
málefnið, sem hr. Bethume vill tala um
við yður.
— Jæja, bíðið augnablik, að minsta kosti,
jeg verð að láta vin minn vita, að jeg geti
ekki hitt hann, eins og um var talað.
Hugh ætlaði að víkja til hliðar, en þá var
lögð hönd á öxl honum: — Án þess að tala
við neinn, sagði lögreglumaðurinn.
— Einmitt, svaraði Hugh, af nokkurri
þykkju, — er það svo að skilja, sem jeg
sje tekinn fastur.
— Það voru ekki mín orð, svaraði hinn,
en hr. Bethume þarf nauðsynlega að tala við
yður og hefir þurft um nokkurt skeið, en
það hefir verið ómögulegt að ná i yður.
Heima hjá yður vissi enginn livar þjer vor-
uð niður kominn, og i sliku tilfelli er vant
að lcalla hlutaðeigendur hingað. — Það spar-
ar yður það ómalc að verða kallaður fyrir
rjett.
— Nú, jæja, svaraði Hugh gramur. — Það
getum við skrafað um seinna. Það er víst
elcki um annað að gera fyrir mig en koma.
Siðan steig hann upp í vagninn. Maðurinn,
sem fyrst hafði talað, gerði eina eða tvær
tilraunir til.að tala við liann á leiðinni, en
Hugh steinþagði, svo hinn liætti öllum til-
raunum í þá átt. Þegar komið var á áfanga-
staðinn, var farið mcð Hugli gegn um löng
göng á þriðja lofti til hr. Bctlmme. Annar
maðurinn fór inn og kom aftur að vörmu
spori og mælti þá við starfshróður sinn: —
Farðu með liann inn í biðstofuna nokkrar
mínútur, og siðan var Hugh visað inn í bið-
sal með óbreyttum liúsgögnum, og þar beið
fylgdarmaður hans mcð lionum. Tiu mínút-
ur liðu og Hugli varð æ æfari og æfari, þá
opnuðust dyrnar og maðurinn, sem farið
liafði inn til yfirmannsins, benti Valentroyd
að koma með sjer. 1 þetta sinn voru dyrnar
strax opnaðar og Valentroyd stóð augliti til
auglitis við hinn fræga Bethume.
— Fáið yður sæti, hr. Valentroyd, sagði
hann og Hugh gerði svo. Hann gerði sjer
ekki glögga grein fyrir því, hvort honum
leíst vel eða illa á þenna háa, stirðvaxna
mann, með stálgráa hárið, sterklegu hök-
una og þunnu varirnar. — Jeg hefi þurft að
finna yður í nokkra daga, en það hefir
reynst ervitt. Brytinn yðar sagði, að þjer
væruð að heiman, en meira vissi hann ekki.
Ferðist þjer mikið, hr. Valenlroyd?
— Nei. Þetta stutta svar virtist gera íög-
reglumanninn hissa, og liann breytti aðferð
sinni. — Menn mínir segja mjer, að þjer
sjeuð meðlimur Múrbrotaklúbbsins, en ferð-
ir margra meðlima þessa klúhbs eru inikils-
verðar að vita um, fyrir stofnun okkar, eins
og þjer sjálfsagt skiljið. Hann gerði hlje,
til þess að sjá hyernig þetta verkaði á Hugh,
en liann gerði ekki annað en lirista höfuðið
þreytulega og segja: — Nei, það er jeg ekki.
En, viljið þjer ekki komast að efninu því
tími minn er takmarkaður.
— Gott og vel. Hr. Bethume leit á skjöl
á borði sínu. — Hjer stendur, að þjer sjeuð
vinur Sylviu Peyton, og hafið verið viðstadd-
ur dauða Richmond Gaunts í klúbbnum og
dauða eldspítnasala, sem uppnefndúr var
„Villi Skrækur“. Þjer eruð einnig vinur og
fjelagi Halmene greifa, sem meðlimirklúbhs-
ins heimsækja oft. Síðustu.daga hafið þjer
verið á sjóferð með honum á Miðjarðarhaf-
inu, og þið i fjelagið unnuð 80Ö0 pund af
Ameríkumanni að nafni Stokes, í spilum.
Þjer sjáið, að við fáum skjótar upplýsingar.
— Jeg veit ekki hvað þjer eruð að gefa í
skyn. Það var alveg rjett, að Halmene lávarð-
ur vann 800Ö pund af Stokes. Jeg var við-
staddur og við spiluðum póker — og spilið
var fullkomlega heiðarlegt. Eruð þjer að
gefa í skyn, að spilað hafi verið falskt?
— Nei, nei, alls ekki. Ekki enn, að minsta
kosti. Jeg er hara að sýna yður, hvað við fá-
um nákvæmar upplýsingar. Við fáum alt að
vita tafarlaust, alt, sem máli skiftir, lir.
Valentroyd.
— Til hamingju með það, svaraði Hugh.
— Nú, ætla jeg að sjá hvað þjer kallið að
vera góður borgari, hr. Valentroyd. Við
þekkjum yður út í æsar, og við þekkjum líka
alla þá, sem mest koma í Múrbrotaklúbbinn,
en á alt annan hátt.
— Nú ætla jeg að gefa yður kost á, að
segja okkur alt, sem þjer vitið, og það á
staðnum og stundinni, þá skal jeg ábyrgjast
yður, að engin kæra kemur á yður persónu-
lega, og i öðru lagi, skal ekkert orð, sem þjer
segið, komast út úr þessari skrifstofu. -Við
skulum ekki draga yður inn í málið, en að-
eins nota orð yðar, sem rannsóknargrund-
völl. Nú er það yðar að velja um. Lögreglu-
foringinn veifaði hendinni hátiðlega ög hall-
aði sjer aftur í sætinu. Hugh, sem nú sá, að
þetta var ekki annað en ltænskubragð til
þess að liræða hann eða veiða upp úr hon-
um, varð æfareiður, þótt honum liinsvegar
ljetti um leið.
— Jeg hefi þegar sagt, aftur og aftur, að
jeg veit eklcert, æpti liann og stóð upp. —
Jeg þarf að athuga livernig jeg skaí ná rjetti
mínum fyrir þessa ólöglegu handtöku — því
annað get jeg ekki kallað það.
Hugh tók hatt sinn og fór áleiðis til dyr-
anna þar sem mennirnir tveir stóðu enn. Sá
heldri þeirra leit spyrjandi á yfirmann sinn,
en hann aðeins ldnlcaði lcolli og dyrnar voru
opnaðar, og eftir tvær mínútur var Hugh í
Whitehall að ná sjer í leiguvagn og fara á
sendisveitarskrifstofu Latiníu.
Þar var honum þegar í stað vísað inn í
sal, og það fyrsta, er hann rak þar augun í
var lítil mynd af konungi Latiniu óg mynd
í fullri likamstærð af liinum mikla alræðis-
manni, eftir frægan máiara.
Hann liafði ekki beðið meira en þrjármín-
útur þegar Radicati greifi kom inn. Hann
var í samkvæmisfötum og á breiðu hrjóst-
inu var Fílsorðan, Ljónsorðan, Arnarorðan
og ótal aðrar, og er hann gekk, glamraði í
öllu þessu orðuglingri. Hann hneigði sig og
þegar þcir höfðu skifst á nokkrum lcurteis-
iskveðjum, skilaði Ilugh crindi sínu.
— Nú, klukkan tíu í fyrra málið? Það var