Fálkinn - 22.03.1930, Blaðsíða 1
Reykjavik, laugardaginn 22. mars 1930.
16 slftm 40 anra.
SUMARVIST í SNJÓNUM.
Lengi hafa menn fundið til þess, lwe fjallaloftið er heilnæmt og hressandi og mun þetta vera byrjunin til þess, að fólk fór að
sækja til háfjallagistihúsanna í Sviss. Nú vita menn að sólarljósið upp til fjalla er miklu auðugra af útfjólubláurn geislum
en sólarljósið á láglendinu — og ekki síst t stórborgunum, þar sem mistur og kolaryk varnar geislunum að njóta sín. Og síðan
aImenningi varð þetta Ijóst hefir aðsókn að háfjaltastöðunum stórum aukist. Á gislihúsunum í Sviss er aðsóknin afár mikil
11 m háveturinn, menn fara þangað i einskonar „sumarfrí“ þó að vetri sje, njóta hins heilnæma og sterka sólskins og sólbrenna
ems og hásumar væri. Snjórinn á líka sitin þátt í að auka magn sólarljóssins, því hann endurvarpar sólargeislunum. Myndin
hjer að ofan er frá vetrargistihúsi í St. Moritz, sem er frægasti vetrarskemtistaður i Alpaf jöllunum.