Fálkinn - 05.07.1930, Síða 7
F Á L K I N N
7
Annað ráð betra.
Eftir Böðvar frá Hnífsdal.
Hvert borð var fullskipað í hinum
skrautlega kaffisal. Hljómsveitin ljek
ivert danslagið af öðru, og við og
við stóðu ungir menn og fasljettar
^eyjar upp úr sætum sinum og fengu
sjer snúnirig á milli borðanna til að
örva lystina.
Þegar hljómsveitin þagnaði á milli,
heyrðist gjallandi lilátur ungmeyj-
anna, glamuryrði og gullhamrar
herranna, hviskur á báða bóga
blandaðist saman við glasabuldrið og
vindlingareykinn, í stuttu máli sagt,
bað var kvöld á kaffihúsi með öll
einkenni kaffihúsalífs.
.. Undir einum glugganum sat Örn
Olver ásamt kunningjum sinum. Á
borðinu fyrir framan hann stóð
kaffibolli, tæmdur til hálfs, en í öðru
munnvikinu hjekk vindlingur, og um
varirnar ljek þetta einkennilega tví-
ræða bros, sem allir könnuðust við,
sem þektu hann, en enginn skildi
hvað þýddi.
Á milli þess sem hann talaði við
fylgdarmær sína eða kunningjana tvo
°g sessunauta þeirra, leit hann
snöggt upp og rendi augunum yfir
salinn. Það var eins og hann lang-
aði til þess að vega þetta fólk með
augunum, skygnast inn i hugskot
þess og komast að raun um yfir
hverju það byggi.
— Ölver, eigum við annars ekki
að dansa? ^purði fylgdarmær hans.
— Með sapnri ánægju, svaraði hann
°g stóð upp.
A meðan þau dönsuðu talaði hún
eins og stúlkum er titt. Hann svaraði
jafnhratt og spurði að því, sem hann
vissi að hún ætlaðist til að spurt
væri um.
Hann vissi hvað við átti í það og
það skifti, vissi líka að Jón Árna-
son, annar ^unningjanna við borðið,
ætlaði sjer að kynnast slúlkunni.
Jón hafði boðið henni og systur
sinni með sjer í Bíó, en rekist þar
á Örn og fengið hann inn í fjelags-
skapinn, þegar sýningiu var húin
og kaffihúsin næsti liður á skemti-
skránni eins og venja var til.
Örn vissi, hvar fiskur lá undir
steini, þegar Jón kynti þau og bað
þau að skemta hvort öðru, hann
vissi, að Jón treysti honum til að
taka systirina og fylgja henni heim,
þegar kaffillúsinu yrði lokað.
— Heyrið þjer Örn! Þekkið þjer
ekki Olgu Gríms, skrifstofustúlku
hjá sendiherranum?
— Olgu Gríms! Örn hnyklaði
brýrnar og reyndi að muna, hvar
hann hafði heyrt þetta nafn fyr, en
hann gat ómögulega komið því fyrir
sig.
— Á jeg að minna yður á? sagði
hún glettnislega. — Þjer kyntust
henni einu sinni á skipi milli ísa-
fjarðar og Reykjavikur. Hún var að
koma úr sumarfríi. Þið dönsuðuð
saman og genguð svo út á þilfar að
dást að tunglsljósinu, og þjer voruð
voða-skáldlegur segir liún sjálf.
— Það væri nú fullmikið sagt að
jeg þekti hana, svaraði Örn, sem
mundi nú eftir stúlkunni, sem hann
hafði talað við um náttúrufegurð og
kvenrjettindi fyrir ári síðan.
— Eins og þjer sögðuð dönsuðum
við saman, kyntum okkur sjálf og
spjölluðum um góða veðrið dálitla
stund. Síðan höfum við ekki sjest.
— Olga er nefnilega vinstúlka mín,
hjelt liún áfram og Örn fann, að nú
var á leiðinni eitthvert trúnaðar-
málið, sem vinstúlkunum þykir svo
gaman að segja frá, hverri um aðra,
alt í trúnaði auðvitað.
En til allrar hamingju var þá lag-
ið á enda, svo að hann gat leitt liana
til sætis og hælt henni fyrir dans-
inn í áheyrn hinna, er við borðið
sátu.
— Halló! Örn! Það er með þig
eins og leynilögreglumennina í skáld-
sögunum, sem sitja á kaffihúsum og
fá skriflegar upplýsingar á nokkurra
mínútna fresti. Hjer er brjef til þín.
Og hann rjetti Ern brjef.
Hvernig kom þetta hingað? spurði
Örn.
— Sambýlismaður þinn kom með
það. Hann situr þarna við borðið
frammi við dyrnar,
Örn settist, kveikti í vindlingi og
braut upp brjefið. Enginn dráttur
í andliti hans breyttist og brosið
var sama og áður, en reykurinn frá
vindlingnum þyrlaðist í þjettari
strókum gegn um munninn.
— Mjer þykir leitt að þurfa að
yfirgefa ykkur, mælti hann og stakk
brjefinu í vasa sinn um leið og hann
stóð upp og hneigði sig fyrir stúlk-
unum; — en jeg verð að fara.
Skyldan kallar.
— Alveg eins og leynlögreglu-
mennirnir, sagði Jón. Hann var hálf-
gramur yfir að Örn skyldi fara, því
að nú var úti um tækifærið það
kvöldið.
Örn gekk fram að dyrunum. Þeg-
ar hann kom að borði Ásmundar
sambýlismanns síns, laut hann að
honum og hvíslaði. — Komdu ekki
heim strax, ekki fyrir kl. 3.
— Kvennafar? sagði vinur hans
spyrjandi og leit upp.
— Afleiðingarnar, svaraði Örn
stuttlega og gekk út.
Þegar hann var kominn heim,
fleygði hann sjer upp í legubekk og
Ijet hugann reika hálft ár aftur í
tímann.
Lína Jóns var lagleg stúlka og
skemtileg. Altaf síkát og fjörug. Hann
mundi svo vel eftir því, hvernig þau
kyntust fyrst. Það var seint um kvöld
að hauslagi. Hann þurfti að ná i
mann og rauk þangað, sem sá maður
átti lieima, opnaði hurðina og hljóp
upp stigann. En í þvi að hann var
kominn upp í miðjan stigann rakst
hann á einhvern, sem kom á hraðrri
ferð niður. Hann greip annari liendi
um handriðið til *ð verja sig falli,
en hinni utan tun þann, sem árekstr-
inum olli.
Þá fann hann, að þetta var kven-
maður. Hann fann fyrir vöðvunuin
undir kápunni á handleggnum, sein
greip um háls honum i fátinu, og
heitan andardrátt leika um kinnar
sjer.
Á næsta augnabliki náðu þau jafn-
væginu aftur, svo að þau gátu staðið
óstudd.
— Ó! hrópaði hún upp yfir sig. —
Guð! Almáttugur! Hvað er þetta?
— Fyrirgefið, sagði hann rólega.
— Jeg hef sennilega farið nokkuð
ógætilega, en myrkrið var svo mikið,
að jeg sá ekki handaskil.
— Það var alt saman mjer að kenna
svaraði hún. — Að jeg skyldi fara
svona óhemjulega. En nú skal jeg
kveikja ljósið, svo að þjer sjáið til.
Örn sá, að þetta var ung stúlka, i
meðallagi liá, grannvaxin og fjörleg
í fasi. Undan hattinum gægðust fram
ljósir lokkar og bláu augun, sem á
liann horfðu, voru leiftrandi af orku
og — þrá.
Hann fjekk að vita nafn hennar
og það með, að hún var dóttir hús-
eigandans, hafði lengi verið fjarvist-
um frá heimili sínu, en var nú ný-
komi heim.
Hún sagði honum lika, að maður-
inn, sem hann ætlaði að finna væri
ekki lieinia. Hann liafði farið í ferða-
lag um morgunin upp i sveit og væri
ekki væntanlegur heim fyr en eftir
þrjá daga.
Þau urðu samferða út á götuna.
— Leyfist mjer að spyrja i hvaða
átt ungfrúin ætlar?
— Öllum er jafn leyfilegt að spyrja,
ansaði hún, — og öllu’m jafn leyfilegt
að svara. En þetta er mjög blátt á-
fram spurt, og svarið skal lika verða
blátt áfram. Yður kemur það hreint
ekki við!
— Auðvitað ekki, svaraði hann og
bauð henni góða nótt.
Næsta dag kom hann aftur og barði
að dyrum hjá manninum, sem liann
leitaði að lcvöldið áður.
Lína kom fram á ganginn.
— Eruð þjer að leita að Magnúsi?
spurði hún. — Jeg sagði yður í gær,
að hann kæmi ekki heim næstu daga.
— Já, þetta minti mig, viðurkendi
hann. — En jeg var ekki viss um,
nema minnið hefði lamast eitthvað
við áreksturinn.
— Skelfing hlýtur þá höfuðið á yð-
ur að vera þunt, vesalings maður,
sagði hún með uppgerðar meðaumkv-
un.
Þau töluðust þannig við i nokkra
stund. Þá kvaddi hann og fór.
Næsta dag kom hann svo aftur og
alt fór á sömu leið, nema að nú bauð
hún honum að lokum inn og gaf hon-
um kaffi.
Hún var ein heima í húsinu um
þessar mundir, því að faðir hennar
var erlendis, og fleira var ekki fólk-
ið, að undanskildum leigendunum.
Örn fór í sinn besta ham. Hann var
eins skemtilegur og honum var frekast
unt og lagði sig allan fram til að
koma ár sinni sem best fyrir borð.
Þegar liann fór hafði liann fengið
leyfi til að sækja hana seinna um dag-
inn til að fara út á sjó að fiska.
Það var blæja logn og spegilsljett-
ur sjór. Himininn var alsettur sund-
urtættum skýflókum, er ljómuðu eins
og allavega litir ballkjólar i kvöld-
sólinni.
Þau reyndu að fiska, en fiskurinn
reyndi að standast freistingu öngl-
anna, og hann stóð sig vel.
— Þjer eruð ekki eins fisltinn og jeg
hjelt, mælti hann og gerði upp færi
hennar, er liún hafði lýst því yfir, að
nú nenti hún ekki meiru.
— Þjer ekki heldur, þótt þjer sjeuð
karlmaður, eða þykist vera það, svar-
aði liún striðin.
— Farið þjer nú aftur í, svo að
báturinn skriði betur, þegar jeg ræ
í land, sagði hann, og ljet sem hann
heyrði ekki stríðið.
Hún steig upp á þóptuna til að kom-
ast aftur í og tók hönd hans til að
styðja sig við.
í sama bili sparn Örn fæti við öðr-
um borðstokknum og ljet líkamsþunga
sinn fylgja eftir. Báturinn hallaðist
á annað borðið, svo að sjór fjell inn
i hann.
Lína rak upp óp og datt ofan af
þóptunni. Hann greip hana á lofti og
hún þreif daúðahaldi um háls honum.
Áður en varði var hann búinn að
kyssa hana.
— Þjer eruð dóni, sagði hún reiði-
lega.
— Ekki jeg, heldur báturinn. Og
hann bjóst til að halla aftur.
— Nei, nei, hrópaði hún og hjelt
sjer fastara.
Örn kysti hana nú aftur, og aftur,
og aftur. Hún hætti að andmæla og
gaf sig augnablikinu á vald.
— Nú verð jeg að róa i land, sagði
hann og losaði faðmlögin, — þvi að
það er farið að dimma.
Þegar í land var komið fylgdi hann
henni heim. Og af þvi að Örn var
maður, sem hamraði járnið meðan
heitt var, gerði liann meira en að
fylgja henni heim. Hann fylgdi henni
upp á loft og inn til hennar.
Aftur var kyst og faðmast, — elsk-
að og notið. Nú þurfti ekki að grípa
til neirina bragða til að fá að taka
utan um meyna. Hún var fallin fyrir
þeirri freistingu, er fiskurinn liafði
varað sig á. Á meðan haustnóttin
vafði land og sæ i kolsvörtu myrkri,
og íbúar hússins sváfu svefni hinna
rjettlátu, sátu þau í eldheitum arm-
lögum og berg'ðu af þeim áfenga bik-
ar, er flestir girnast, en fæstir drekka
sjer að skaðíausu.
Dagana eftir kom hann oft til henn-
ar. En brátt fór honum að hætta að
þykja gaman að þeim heimsóknum.
Aftur á móti virtist hún verða inni-
legri og æstari með hverjum degi
sem leið. Vitaskuld var það eðlileg
sönnun á óhrekjanlegri staðreynd.
Eftir mánuð fór Örn á búrt úr bæn-
um, og sá ekki Línu framar. Kvaddi
liana niður á bryggju í annara á-
lieyrn og sigldi sina leið — að leita
nýrra viðfangsefna.
— Og nú. — Hann leit á brjefið,
sem hann hafði fengið og kveikti
enn á ný í vindlingi. — Og nú tók
stelpan u.ip á þessum fjar.da að
fara að verða barnshafandi og kenna
honum það.
Það var ekki svo ófyndið uppá-
tæki þegar þess var gætt, að hann
gat undir ongum kringumstæðum
sjeð fyrir barninu.
— Látum hana sverja, hugsaði
hann um leið og hann stóð á fætur
og fór að ga"ga um gólf.
— Nei, annað ráð er betra hugs-
aði liann með sjálfum sjer, og fleygði
sjer aftur i tegubekkinn.
Snemma næsta morguns steig hann
um borð í skip og að kvöldi sama
dags kom hann til kaupstaðarins,
þar sem Lína átti heima.
Hann vissi lalsvert meira um hagi
Linu nú, Iieldur en þegar hann kynt-
ist henni. Hann vissi t. d. að liún
hafði verið mikið með manni einum,
sem hann þe’.di frá fornu fari, vik-
una áður en hann kyntist henni. Sá
maður virtist í meira lagi hrifinn
af Linu, a. m. k. hafði hann aldrei
litið Örn rjettu auga síðan hann fór
með hana í bátsferðina.
Örn fór nú og lieimsótti Línu, tal-
aði við hana um lífið og tilveruna
og sýndi henni fram á það, að hjóna-
bandið væri morð ástarinnar og
kvalabekkur konunnar ’sjerstaklegla,
nema þegar um skynsemishjónaband
væri að raiða. Úr því að hjónaband-
ið myrti istina væri þýðingarlaust
að byggja það á ást. Og þau elsk-
uðu hvort annað, eða svo sögðu þau
hvort fyrir sir'. Þá var auðvelt að
komast að þeirri niðurstöðu, að þau
mættu ekki giftast, því að hver vill
myrða sina eigin ást með köldu
blóði? Það tók nokkra daga að koma
málunum í þetta horf, en þegar
svona var koinið fór hann að finna
Sæmund, þenna vonsvikna meðbiðil
sinn, og rir orðlægni Arnar og á-
hrifarík 1( .’örð sættust þeir heilum
sáttum. Það er til marks um sátt
þeirra, að nú komu þeir báðir i heim-
sókn til Línu á hverjum degi og oft
á dag.
Stundum kom það þá fyrir, að Örn
sendi Srnuund með skilaboð um það
að hai. j gæti ekki komið.
Sæmu ídur var altaf jafn elskulegur
og stimamjúkur við Línu, sífelt reiðu-
búinn til að 1; i eftir dutlungum
hennar og slíkt hefir jafnan sín á-
hrif á kvenfóll J.
Ekki hvað si .t þegar svo slend-
ur á.
Hún fór að verða í vafa um það
með sjálfri sjer, hvor þeirra það
væri sem hún elskaði, hann eða Örn.
Og þótt hún nú elskaði Örn, var
þá ekki Sremu’.idur fyrirmyndin að
eiginmanni? Vissulega. Efnalega sjálf-
stæður, rcglu- og dugnaðarmaður,
sem alt vildi fyrir hana gera.
Það var ekki laust við að hún
væri að verða leið á Erni. Hann var
altaf að tala um annað kvenfólk,
hæla þvi fyrir gáfur, fegurð, klæða-
burð og þess háttar, eða þá um skuld-
ir, sem verið væri að krefja sig um.
Þegar öllu var á botninnn hvolft
þekti hún Örn sama sem ekkert.
Hann var vist voða skuldugur, gæti
líklega ekki einu sinni gefið með
Framh. á bls. lt.