Fálkinn - 05.07.1930, Page 9
F A L K I N N
9
Sir Thomas Lipton „tekóngur“ og kappsigtingamaður hefir lát-
ið síðasta kappsiglingaskip sitt, „Shanrock V“ hlaupa af stokk-
unum nýlega ög þótti það merkisatburður.
Enski flotinn hefir komið sjer upp mörgum lendingarskipum
fyrir flugvjelar. Myndin er tekin þegar ein flugvjelin er að
hefja sig til flugs frá slíku lendingarskipi.
Mussolini hefir tekið skátahreyfinguna í þjónustu sína. Hefir
verið stofnaður i Italtu flokkur ungskáta undir nafninu „Av-
antguardisti" og telur hann 395.000 meðlimi; eru margir þeirra
vopnaðir.
Mikla athygli hefir það vakið víðsvegar um heim, að ung stúlka
ensk, sem heitir Anny Johnson hefir flogið alla lcið frá,
Englandi til Astralíu á lítilli flugvjel. Er Anny af norðurlanda-
ætt. Hún hefir hlotið þann heiður að skipa þann sess meðal
fljúgandi kvenncþ sem Lindberg skipar meðal karla.
;
Myndirnar hjer að ofan eru af jarðarför hins fræga manns,
Friðþjófs Nansens prófessors, sem fór fram í Osló á hátíðis-
degi Norðmanna, 17. maí. Á efri myndinni sjest líkfylgdin
leggja af stað frá háskólanum en á neðri myndinni sjest Sem,
Sæland rektor halda minningarrœðuna, við aðaldyr háskólans.