Fálkinn


Fálkinn - 04.10.1930, Page 3

Fálkinn - 04.10.1930, Page 3
F A L K I N N 3 _ B Biðjið kaupmann yðar um{ Hoimblaðs-spilj ^=Greinilegar myndir.^-j — Haldgott efni,—==— j vsraa&nn. VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested. AÖalskrifstofa: Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7. Skrifstofa i Oslo: Anton Schjöthsgade 14. BlaðiÖ kemur út hvern laugardag. Askriftarverð er kr. 1.70 á mánuði; kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftir greiðist fyrirfram. Auglfjsingaverö: 20 aura millimeter Herbertsprent, Bankastræti 3. Skraddaraþankar. Menn gleyma því, að alt sem best er unnið á andlegu sviði, er unnið fyrir framtíðina. Um mörg stórskáld er því t. d. svo varið, að enginn fer fyrir alvöru að dáðst að verkum þeirra fyr en löngu eftir að þeir eru dauðir. Og þeir bestu —■ oft úr hor. Ef heimurinn stæði í stað kæmi þetta ekki fyrir. Þá gæti samtíðinni jafnan verið vorkunnarlaust að meta gildi hvers og eins. En af því að heimurinn er altaf að breytast, eru það aldre^ nema fá mannleg augu sem sjá, í hvaða átt breytingin stefn- ir, eða á að stefna. Hefði Snorri farið með handrit á fund Englakon- ungs — og setjum nú svo, að hann hefði átt góðum ráðgjöfum í þeim efnum á að skipa — þá hefði hann áreiðanlega fengið þvert nei við öll um skáldastyrk eða handritasölu, nema því aðeins, að eitthvað hefði verið gott sagt um kónginn sjálfan. Og svo er það enn í dag. Við sjá- um ekki framtíðina fyrir og getum ekki reiknað hana út. Við erum dæmalaust hyggin eftir á — eins og fólk hefir altaf verið. En við erum fífl, þegar við erum að tala um, að „troða peningum i þessi skáld og listamenn“. Og eink- anlega má það sannast á íslendingum, sem eigum tilveru okkar að þakka skáldum og listamönnum. Öll þjóðin viðurkennir, að við eig- um tilveru okkar á tuttugustu öld því að þakka, að við eigum bókmentir, sem hvorttveggja í senn hafa bjarg- að aðalþjóðareinkenni voru, tung- unni, og varðveitt hjá öðrum þjóð- um viðurkenning fyrir því, að við megum heita sjálfstæð þjóð. Og mikið er um hvorttveggja vert, því hvor- Ugt getur án annars verið, svo að smáþjóð megi koma gagn af.--- Nú verða fæstir feitir af skálda- styrknum, sem „troðið er í þá og vís- indamannastjettin íslenska er síst betur haldin nú, en þegar hún alt til skemsta var „í brauði“ danskra áhugamanna eða stofnana í sama landi. Höfum við fengið sjálfstæði, til þess að króa þá menn, sem til vis- inda og lista eru fallnir, inni í rjett eða nátthaga þröngsýninnar og svelta þá þar? Eða höfum við verið menn til þess að skilja að íslenskt þjóð- erni hefir hingað til aðeins lifað á þeim mönnum — til langframa — sem iðka listir og vísindi? Um víða veröld. ---X---- Hvað var það, sem skeði í herbergi nr. 66? 1 mörg ár hefir ekki verið um neitt eins mikið talað eins og mál það sem nýlega hefir verið fyrir ensku dóm- stólunum. Það er um einkennilegan eldsvoða, sem átti sjer stað á Metro- pole hótelinu í Margate í október i fyrra. 28 ára gamall maður nokkur, Sid- ney Fox að nafni, og móðir hans 63 ára gömul komu um miðjan október í fyrra á hótelið. Hann fjekk herbergi nr. 67 og hún fjekk herbergi nr. 66. Það voru dyr á milli herbergjanna. Þau höfðu lítinn farangur meðferð- is, áttu bágt með að borga reikninga sína, svo fólkið á hótelinu þóttist vita að þau mæðgin myndu vera í pen- ingavandræðum. Að kveldi hins 23. október klukkan 23 kom upp eldur á herbergi frúar- innar. Sonurinn var þá háttaður, hann reyndi að komast inn i her- bergi hennar þegar hann fann reykj- arlyktina, en það var árangurslaust. Gamla konan brann til ólífis og var grafin, eftir að læknisskoðun hafði farið fram á líkinu. Seinna fór þó að kvisast eitthvað um það, að ekki myndi hafa verið alt með feldu um dauðdagann. Það kom sem sje í ljós að sonurinn hafði tryggt móður sína gegn slysum fyrir 54,000 krónur. Hann var tekinn fast- ur, líkið var grafið upp aftur og at- hugað nánar og kom þá í ljós að gamla konan hafði verið kyrkt, en hafði ekki kafnað af reyknum. Það voru ýmsir lilutir í herberginu, sem hún bjó í, sem virtust benda í þá átt, að þar hefði verið kveikt í. Það fanst auk þess tóm bensínflaska í herbergi sonarins og var hann kærður fyrir móðurmorð. Fyrir rjettinum er Sidney Fox hinn prúðasti, og enginn skyldi halda að hann hefði svo ljótt morð á sam- viskunni. Einstöku sinnum hafa tilfinning- arnar yfirbugað hann, tárin hafa streymt niður eftir kinnum hans og hann hefir hrópað og kallað fram yfir dómsalinn að hann væri saklaus af þvi að hafa myrl móður sína. Það hafði verið gerð eftirmynd af hótelherberginu og notað í rjettinum, og leifarnar af sviðnu gólfteppinu voru breiddar á dómaraborðið svo allir gætu sjeð það. Ákærandinn var mjög harðorður. — Maður þessi er sekur. Ásamt móður sinni, sem bæði var orðin gömul og næstum því afllaus, hefir hann flutt frá einu hótelinu á annað. Hann hefir komið fyrirætlunum sín- um mjög sniðuglega fyrir. Alt myndi hafa hepnast honum hefði hann ekki gleymt smámunum, sem því betur, flestir morðingjar gleyma. í erfðaskrá móðurinnar stóð að eldri sonurinn skyldi erfa farthing (2 aura), það sem eftir var af eign- unum gekk til yngri sonarins, Sidney Fox. Frú Fox var líftrygð fyrir 3000 sterlingspund. Tryggingin gekk að- eins út á dauða af slysförum, og oft hafði sonurinn endurnýjað skírtein- ið daglega. Ein tryggingin hafði fallið í gjalddaga 23. október klukkan 24, en klukkutíma áður dó móðirin. Áður en morðið var framið hafði Fox spurst fyrir um það hjá líftrygging- arfjelögunum hvað eiginlega væri skilið við það að deyja af slysförum. Hvort það væru slysfarir ef móðir hans druknaði i baðkerinu og hvort það væru slysfarir ef hún borðaði eitraðan mat, svo að hún dæi af því. Alt bendir til þess að sonurinn sje valdur að dauða móðurinnar. Og hafi hann i raun og veru framið morðið, er hann einhver sá kaldrifjaðasti og slungnasti bófi, sem nokkru sinni hefir staðið fyrir rjetti. Ef hann er saklaus virðast öll ill öfl hafa sam- einast um að eyðileggja líf hans. GIFT OG SKILIN f SÍMA Mr. John Blackwell er maður nefnd- ur. Hann vinnur hjá líftryggingar- félagi einu í New York og hefir haft svo miklum störfum að gegna, að hann bókstaflega hefir ekki mátt vera að litast um eftir konu í heimsborg- inni. Dag nokkurn sat hann á veit- ingahúsi einu og las i blaði, sem gef- ið var út í Suðurríkjunum. Af til- viljun var honum litið á auglýsingu, sem þar stóð. Er þar getið um á venjulegan hátt að ung stúlka, sem eigi heima í litlum bæ, 2000 mílur frá New York óski að kynnast, með giftingu fyrir augum, ungum og lag- legum manni. Mr. Blackwell svaraði auglýsing- unni, ljet mynd innan í brjefið og kvaðst' helst kjósa að vígslan færi fram í síma því hann hefði ekki tíma til að taka sjer langa ferð á hendur. Þegar unga stúlkan hafði aflað sjer upplýsinga um mr. Blackwell, — og þær vowí náttúrlega allar honum í vil — skrifaði hún honum aftur ját- andi. Vígslan fór fram á þann þátt að þrjú talsimatæki voru tengd sam- an; Mr. Blackwells, ungu stúlkunnar og prestsins, sem var frændi brúð- urinnar. Ameriska hjónabandslög- gjöfin er mjög teygjanleg og hjóna- bandið var úrskurðað að vera lög- legt. Það höfðu auk þess verið vitni viðstödd. En það komu aðrir erfiðleikar til sögunnar. Ungi maðurinn símaði til konu sinnar að hann mundi koma einhvern næstu daga og sækja hana og fara með hana til New York. Þau komu sjer saman um að hittast á matsölustað, þar átti brúðurin að bíða hans með foreldrum sínUm. Til þess að hún gæti þekt hann átti brúðgum- inn að næla svolitilli murtugrein í hnappagatið. Nú kemur mr. Blackwell til bæjar* ins og heldur til veitingahússins til að hitta brúði sína. En í sama bili og hann er að stíga yfir þrepskjöldinn dettur honum alt í einu í hug að það væri nú ef til vill betra að stinga ú sig murtugreininni til vonar og vara. Gerir hann það og gengur svo inn í gildaskálann. Hann þekti strax konu sína, en útlit hennar var þannig að hann snjeri við aftur i skyndi og flýtti sjer burtu. Hann tók sjer siðan far ineð fyrstu járnbrautarlest, sem gekk til New York. Þegar heim kom hringdi hann til konu sinnar og stakk upp á því að þau skildu. Unga stúlk- an fjelst strax á það — sagan segir ekki hvort hún hefir þekt Blackwell eða ekki — og þau voru aftur skilin i síma og voru hinir sömu viðstaddir, nema i stað prestsins var nú dómari. Sagan er nokkuð ósennileg, en am- erísku blöðin segja hana svona. -----x----- FJÖRUTÍU OG ÞRJÁR YÍGSLUR Á DAG. í Ameríku hefir fólk ennþá gaman af að horfa á hjónavígslur þó hjóna- böndin þar sjeu ekki vön að verða svo langgæf. í kirkju einni i New York voru nýlega gefin saman 43 „pör“ á dag. Áður var metið 39. Fólk af öllum þjóðflokkum og af ýmsum litum þyrpist í „Church of the Transfiguration“, sem altaf geng- ur undir nafninu „litla kirkjan á horninu". 15 af þessum vigslum voru mjög viðhafnar miklar, því að það er nú einu sinni tíska að láta „pússa“ sig í kirkju þessari, sem liggur á East 29. Street, en það verður alt að ganga sem hraðast því það er altaf fult af fólki, sem biður fyrir utan. þegar aðal-kirkjan er full og mjög mikið að gera er stundum notað litla skrúð- húsið og vígt á báðum stöðum. ——x------

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.