Fálkinn - 04.10.1930, Qupperneq 9
F A L K I N N
9
Myndin t. v. er af Helenu, fyrr-
um konu Carols, sem nú er orð-
inn konungur í Rúmeníu. Hafði
hann verið sviftur ríkiserfðum,
en sonur hans Michael, gerður
konungur, en nú hefir hann
verið settur af. Hjer s
Michael hjá móður sinni, sem
skildi við Carol fyrir nokkrum
árum vegna ótrúmensku hans
í hjónabandinu.
Myndin t. h. er tekin í Berlín
og sjest þar í miðju konungur-
inn i írak, sem verið hefir
ferð í Evrópu í sumar. Hann er
klæddur sem Evrópumaður, að
öðru leyti en höfuðfalinu.
hefir farið inn í hóp „demonstrantanna“ og skilið hópinn að Síð-
hefir farið inn í hóp „demonstranna“ og skilið hópinn að. Síð-
an voru forsprakkarnir tíndir úr og fluttir burt með valdi.
Myndin til hægri er af ráðhúsinu í Iiaupmannahöfn, sem varð
25 ára gamalt í síðasla mánuði. Þykir ráðhúsið ein af fegurstu
byggingum á Norðurlöndum. Martin Nyrop teiknaði það og sá
um byggingu þess.
Á neðstu myndinni t. h. sjest franski læknirinn Calmette, sá sem
fyrir nokkrum árum fann blóðvatn til varnar berklaveilci. Hafa
vísindamenn deilt mjög um gagnsemi þess og fyrir skömmu kom
vatn á þeirra myllu þar sem var barnadauðinn í Lubeck. Dóu
þar um 70 börn, sem bólusett höfðu verið. En síðar kom í Ijós,
að þetta var ekki Calmette að kenna heldur stöð þeirri, sem
framleiddi bóluefnið.