Fálkinn


Fálkinn - 25.10.1930, Síða 7

Fálkinn - 25.10.1930, Síða 7
F A I. K T X X 7 “Manstu bátinn . . . ?« Saga eftir Elisabeth Spender. Morris, einn af tjjónunum hjá Nil- gerris vnr óvenju’ega utan við sig i dag, og fleiri en einn af gestunum — en þeir voru flestir útlendingar — þóttust hafa ástœðu til að kvarta yfir honum. Hann gleymdi hinu og þessu, stundum var það skeið, stundum brauðið og augu hans voru oftast þar, sem þau ekki áttu að vera, nefnilega við dyrnar. Sumir heimagestirnir þóttust vita hverju hann væri að góna eftir .... forrika Rúmenanum, sem altaf sat við sama borðið og sem Morris gekk ávalt um beina fyr- ir Mr. Lakhovsky gaf rausnarlegt þjórfje, en þar fyrir þurfti Morris ekki að vanrækja hina gestina, fanst þeim. Loksins sást Rúmeninn i dyrunum, en aldrei þessu vant var hann ekki einn. Með honum var ung og lagleg stúlka, augsjáanlega ensk og mátti sjá á Lakhovsky að hann var upp með sjer yfir föruneytinu. En jafnframt var einkennilegt að sjá hver áhrif þetta hafði á Morris, hann varð eins og ræfill á svipinn og því likast, sem hann væri í vafa um hvort hann ætti að bíða við borðið eða flýja af hólmi. Svo felmtraður varð hann að hann var rjett búinn að velta um blómaglasi með rósum i. Lakhovsky kinkaði kolli til hans: — Jæja, Morris. Þá er jeg kominn. Sjáðu nú um að við fáum besta mið- degisverðinn, sem Nilgerris hefir í boði. Og þjer, ungfrú Frayne, hvað má jeg svo bjóða yður? Hann sneri sjer að ungfrúnni. Það var eins og rafmagnsstraumur færi um Morris. Hann hrökk við og leit undan. En það var of seint. Hún hafði sjeð hann og nú reis hún til liálfs upp úr stólnum. — Nei, en .... en Maurice. Ert það ekki þú? Spurningin var svo skýr, að ekki varð komist hjá að svara. — Jú, sagði hann i hálfum hljóðr um, — það er Maurice, þvi miðurl — Og þjónn hjer á Nilgerris? — Já, þjónn .... Já, þvi miður. — En .... hjelt hún áfram .... en hætti svo og sneri sjer að Lakhovsky, sem horfði með furðusvip á þetta. — Mr.......mr. Maurice er gamall kunningi minn, ættgöfugur maður, og jcg skil ekki .... Hún blóðroðnaði og sama gerði þjónninn og varð hinn vandræðaleg- asti. Hún sneri sjer aftur að honum. — Maurice, hvislaði hún um ieið og hann laut niður að borðinu til þess að lagfœra eitthvað á borðinu, — get jeg ckki orðið þjer að liði? En hann svaraði með þvi að lita á armbandsúrið sitt og hvarf síðan i áttina til eldhússins. — Aldrei hefi jeg vitað neitt jafn skrítið, mælti liún við mötunaut sinn. — Fyrir tveimur árum var hann rík- ur liðsforingi, einkasonur föður síns, og i dag .... Mr. Lakhovsky svaraði stuttur i spuna. — Svona gengur það stund- um, sagði hann og leit alt í kringum um sig, — þetta kemur stundum fyrir á bestu heimilum. Nú var Morris koininn aftur að borðinu. •— Vera, hvislaði hann meðan hann var að reiða fram matinn, ■— viltu gera mjer mikinn greiða, vegna gam- allar vináttu okkar? Heima hjá mjer er manneskja, sem bíður eftir mjer i áríðandi erindi. Meira get jeg ekki sagt, en þetta getur varðað l.f og heiðnr einnar manneskju. Viltu bregða þjer frá hálftima og skreppa þangað .... Nú var hann kominn til Lakhovsky og gerði þögull skyldu sina. Vera Frayne var alveg forviða. Hvað átti þetta að þýða: Hún gnut augunum til Maurice. Hann var föl- ur og tekinn, gjörólíkur hinum fríða Maurice Leahy. Vikapiltur kom með boð um, að einhver vildi tala við Lakhovsky í simanum frammi. Og nú kom Morris aftur til Veru. Hann lagði brjef á borðið hjá henni og hún leit á áskrift- ina: Ungfrú Brigdet Leahy, Portway Mansions, Grunison ■ Street IV. Hún horfði spyrjandi á Maurice: — Þú vilt, Maurice .......? — Að þú náir þjer í bil og farir með brjefið á þennan stað. Þú gerir mjer ómetanlegan greiða með þvi.- Meira get jeg ekki sagt þjer nú. Það gengur fljótt. Tuttugu minútur fram og aftur. Lakhovsky bíður áreiðan- lega á meðan. Nú settist Lakhovsky aftur við borðið: — Það var skritið, mælti hann, — þegar jeg kom i símann svaraði enginn. Sambandið víst slitið. Nú, hann hringir þá aftur. Aldrei hafði jafn fljót framleiðsla sjest á Nilgerris eins og hjá Morris i þetta sinn. Hinir gestirnir fundu á- stæðu til að kvarta yfir, að þeir væru hafðir útundan. Og þeir höfðu glápt á Morris og tekið eftir, að liann leit oftar á klukkuna, en góðu hófi gegndi. Eins sáu þeir að honum ijetti er stúlkan stóð upp og fór með brjefið i liendinni. — Má bera yður kaffi, herra? — Nei, ckki strax, Morris. Við bið- um eftir ungfrúnni. — Gefið þjer mjer glas af portvíni á meðan. Morris gerði þetta, en flýtti sjer nú ekki eins mikið og áður. Vera Frayne var hugsandi á leið- inni í bilnum. Hugsanir hennar dvöldu við tveggja ára gamlar minn- ingar: um á og litinn bát. Hún sat aftur i en Maurice undir árum. Dag- inn eftir átti liann að fara i ferðalag, fara á sama hátt og hann hafði komið og hann hafði spurt hana hvort hún mundi koma þarna næsta sumar aft- ur. Hún liafði sagt að hún vonaði það .... og hann hafði gripið hönd hennar, en í sama bili hafði einhver kallað og svo .... ja, sagan varð ekki lengri. Hann hafði fprið og næsta sumar var alt orðið breytt. Faðir hennar liafði dáið um veturinn, fjöl- skyldan hafði dreifst og sjálf hafði hún fengið um nóg annað að hugsa en um sumarleyfi og tennisleik. Hún gat sjer til hvernig Maurice hafði farnast. Kaupsýslufyrirtækin voru völt eftir striðið og hann hafði auðsjáanlega fengið að kenna á þvi úr þvi að hann hafði orðið að taka sjer þjónustustöðu. Nú mundi hann eiga heima í fátæklegum húsakynn- um, búa með systur sinni. Og nú var hún á leið þangað. Hversvegna? Það var gáta, sem bráðum yrði ráðin. Lík- lega lá systir hans veik, og kannske var það eitthvað ennþá verra. Hún var hjálparþurfi. Hvað gat hún hjálpað? Ekki neitt. Að minsta kosli ekki mikið. En Maurice .... Hún reyndi að hætta að liugsa um hann en það tókst ekki. Þvi ennþá var það hann, ungi mað- urinn i bátnum, sem hún elskaði. Já það var satt. Neistinn sem hafði verið að því kominn að slokkna var aftur orðinn að logn. Bíllinn staðnæmdist snögolega fyr- ir utan stórt og reisulegt hús. Hún leit á númerið yfir dyrunum. Jú, það var rjetta númerið. Hún steig út, borgaði bilinn og gekk inn í marmara- klætt fordyri, sem bnr með sjer nð það væri veístætt fólk, scm þarna bjó. En hann Maurice þá, jijónninn? Hún gekk að dyravarðarherberg- inu: — Býr ungfrú Leahy hjer? — Já, á þriðju hæð. Gerið þjer svo vel, þarná er lyftan. Hún fór upp á þriðju hæð og stað- næmdist við breiða eikarhurð. Á dyraspjaldinu stóð: Maurice Leahy. Það var ekki um að villast. Hún liringdi og snyrtileg herbergisþerna kom út. — Er ungfrú Leahy heima? — Já, gerið þjer svo vel. Þessa leið- ina. Henni var vísað inn i skrautlega stofu og á svipslundu kom ung stúlka á aldur við hana inn. — Jeg er Bridget Leahy. Hvað get jeg ...... Vera Frayne settist, mjög vand- ræðalega. — Ja, sannast að segja veit það Ckki. Jeg heiti Vera Frayne og bróðir yðar, sem jeg hitti áðan á .... Nigerris, bað mig að færa yð- ur þetta brjef. Hann Ijet á sjer skilja að ....... Birdget hló glaðlega og sagði: —Ó, eruð þjer Vera Frayne, sem liann bróðir minn hefir svo oft talað um? Ef lijer vissuð hvað hann hefir reynt til að ná i heimilisfang yðar. Og jeg líka. Við höfum spurt alla kunn- ingja okkar. En þjer hafið verið týnd .... eins og jörðin liefði gleypt yður. Vera Frayne mintist nú Nilgerris og Lakhovsky, sem sat þar og beið. Hún skildi ekkert í neinu ennþá. Og hversvegna var Maurice þjónn á veit- ingaliúsi en systir lians lifði við alls- nægtir. Hún skildi ekkert í þessu: — .Teg er lirædd um, ungfrú Leahy, mælti hún kuldalega, að jeg hafi gert yður ónæði að óþörfu og að Maurice sje að gera að gamni sinu. Nú ætla jeg aðeins að aflienda yður brjefið og fara svo. Bridget tók í hönd hennar: — Ver- ið þjer ekki gramar við hann, jeg bið yður þess. Hann hefir áreiðan- lega einhverja ástæðu. Við skUlum sjá hvað í brjefinu stendur. Hún braut upp brjefið og las það og rjetti síðan Veru Frayne. Þar stóð ekkert nema þetta: — Þú verður að halda ungfrú Frayne þangað til jeg kem. Og orðið verður var undirstrik- að. En Vera firtist við þetta. Hvernig gat nokkur maður boðið sjer, að kom- ast þannig að orði uin hana? Eins og hún væri viljalaust verkfæri. Nei, hún varð að flýta sjer aftur til Nil- gerris. Og hvað skyldi Lakhovsky liugsa, er hún var svona lengi i burtu? Það gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir liana. Hún stóð upp og gekk fram að dyr- unum. En Bridget varð fyrri til og varnaði henni útgöngu. — Nei, sagði hún hlæjandi en þó ákveðin, — þjer megið ekki fara. Maurice kcmur von bráðar. Og hafi hann ekki fullgilda skýrngu á þessu öllu þá er jeg ekki systir hans. Jeg skil, að yður finnist þetta undarlegt, alt saman, ekki sist, að liann skuli vera orðinn þjónn hjá Nilgerris. Mig rennir grun i hvernig á þvi muni standa, en jeg vil ekkert segja. Við skulum láta hann segja frá þvi sjálf- an. f sama bili var hurðinni lokið upp og nú stóð Maurice í stofunni — enn- þá í þjónustufötunum. Hann hló fyrst, en er hann sá hvað Vera var alvarleg þá þagnaði hann og andlitið varð biðjandi. Hann tók stól og settist á hann, hjá stúlkunum báðum. — Vera, sagði hann. — Vera, getur þú fyrirgefið mjer. Og þú Bridget, út- vegaðu okkur eitthvað að drckka. Eins fljótt og þú getur. Hann hló og hún skildi hvað hann átti við. Þau voru ein i stofunni og hann tók í hönd hennar. — Eina spurningu enn, Vera, og svo skal skýringin koma. Hversvegna varst þú með Lak- hovsky i dag? Reiðstu mjer ekki, en svaraðu mjer — svaraðu mjcr. Hún dró að sjer höndina. — Hann er húsbóndi minn, Maurice. Jeg er liraðritari hans og vjelritari og i dag bauð hann mjer að borða með sjer. — Já, þennan miðdegisverð, sem jeg truflaði. Hann ypti öxlum. — Jæja, hvað sem því liður, hefir Lakhovsky nú verið tekinn fastur. Já, tekinn fastur. Við höfðum allar sann- anir, hann var umkringdur og klukk- an hálf átta kom lögreglan. Jeg hafði haft gætur á honum í fjórar vikur þangað til jeg náði honum i gildruna. En eitt fyrst. Jeg er ekki þjónn, held- ur er jeg í leynilögreglunni. Þú get- ur nærri hvernig mjer varð við þeg- ar jeg sá þig með honum hjá Nilger- ris. Þig, sem jeg hefi leitað að í tvö ár. Manstu bátinn .... Vera? — Þú sendir mig þá burt, Maurice, til þess að .... — Til þess að ekki skyldi skuggi af grun falla á þig. — Og Lakhovsky, Maurice? — Lakhovsky er ekki Rúmeni held- ur er hann Rússi. Hann hefir kom- ist yflr ýms skjöl, sem við lijeldum að væri vel geymd. Við fundum þau saumuð i vestið hans. Hann hafði hugsað sjer að fara á morgun. — En —Vera, nú skulum við ekki hugsa meira um þetta. hjelt hann áfram. Jcg var að spyrja þig áðan: Manstu bátinn ....? Hún kinkaði kolli. — Þú manst að jeg ætlaði að fara að spyrja þig að dálitlu. Það líða tVö ár frá því jeg byrjaði setnnguna og þangað til jeg enda hana. Má jeg ljúka við setninguna .... Tveimur mínútum siðar opnaði hann dyrnar að næsta herbergi. — Bridget! kallaði hann. — Ef þú átt eitthvað freyðandi og gott til þess að gefa okkur að drekka, þá verð- urðu að koma með það. Jeg ætla að kynna þig unnustunni minni. Eftir árs leit er sagt að ítalska skipinu „Artiglio" hafi tekist að finna enska eimskipið „Egypt“ sem sökk fyrir níu árum skamt frá Frakk- landsströnd við Brest og hafði 8 miljónir dollara i gulli innanborðs. Skipið er um 30 sjómílur undan Pointe du Raz, ekki nerna kílómet- cr frá þeim stað sem sænski skip- stjórinn Hedback þóttist hafa fund- ið það árið 1926. Skipið liggur á miklu dýpi en á hörðum sandbotni. Eru talin mikil vandkvæði á að kaf- arar geti náð gullinu, en ítalirnir gera sjer samt bestu vonir, enda eru á þessu skipi þaulvanir kafarar, sem oft hafa náð fjársjóðum úr sokknum skipum, eftir að aðrir hafa gengið frá. VIÐSKIFTIN VIÐ HERBERTSPRENT BANKASTRÆTI 3 REYKJAVlK iBP PRENTSTO FA, HEFTISTOFA - PAPPlRSSALA

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.