Fálkinn


Fálkinn - 08.11.1930, Blaðsíða 6

Fálkinn - 08.11.1930, Blaðsíða 6
6 F Á L K I N N Gamlir biendur á St. Kilda fyrir utan bæina sína. Maöurinn sem stendur og konan sem situr eru elsta fólkið, sem flutt var frá St. Kilda. en landið stórum hrjóstugra enánokk- urri annari af Suðureyjum. Liggur Lewisey næst Kilda en munur er afar- mikill bæði á landslagi og loftslagi. Um akuryrkju hefir aldrei verið að ræða á St. Kilda, en kartöflur og gul- rófur hafa verið ræktaðar þar og auk þess sem áður er getið hafa eyja- skeggjar haft nokkrar nytjar af fugla- veiðuni. En þó að fiskveiðar hafi jafn- an vcrið þarna nokkrar hafa eyjabú- ar aldrei getað veitt nema til eigin þarfa og enginn fiskur verið fluttur úr landi. Veldur þvi meðfram hafn- leysi, sem er að kalla eins mikið og þar sem verst gegnir hjer á landi. Skipagöngur hafa því verið afarlitlar við nágrennið og niu mánuði úr árinu kom aldrei skip við á eyjunni nema alvcg sjerstakar ástæður væri til. Sumar myndirnar sem hjer fylgja gefa hugmynd um hvernig húsaskip- un hafi verið háttað á St. Kilda. Hí- býlin voru afar ófullkomin og óvist- leg og í daglegu lifi urðu eyjaskeggjar að lifa við svo þröng kjör að furðu mó gegna. Alt fram á síðustu ár hafa eyjarskeggjar orðið að búa við sult og harðæri undir eins og tiðarfar náði ekki miðlungsvenju og af lýsingum má ætla, að nú þegar fólkið var flutt á hurt hafi efnalegt ástand þess eklci verið betra en var hjer á landi fyrir tveimur til þrem mannsöldrum, meðal fátæklinga. Samt scm áður liafði það verið raunaleg sjón að sjá eyjaskeggja skilja við heimkynni sín. Sumir höfðu þver- neitað að fara á burt og orðið að flytja þá með valdi. Og þó hafði jieim verið heitið miklu betra landi og að- búð á þeim stöðum, sem þeir voru flutlir til. Að eyja sje lögð í eyði án þess að sjérstakt náttúruf.vrirbrigði valdi, er fátitt, ef ekki eins dæmi í Evrópu. Enda vakti þessi burlflutningur afar mikla eftirtekt í vor. Og í sumar þyrptust fjölmargir Englendingar og Skotar, sem naumast vissu áður að St. Kilda var til, þangað í skemtiferð til þess að skoða þennan merkilega hólma. En fullyrt er, að St. Kilda muni aldrei verða eftirsótt af ferða- mönnum, því að til þess brestur hana flest skilyrði. Menn eru á þeirri skoð- un að hún gleymist von bráðar og verði ó komandi öldum ekki annað en eyðisker i öldum Atlantshafsins. SunnudagshugleiSing. Framhald af bls. 5. veislu". Það er svo holt og gott að geta verið glaður, en það er eins og alt annað skilyrðum bundið. Postulinn segir: „Verið ávalt glaðir“, en hann talar lika um orsök gleðinnar og segir vegna hver§ þeir eigi að vera glaðir: „Vegna samfjelagsins við drottin, jeg segi aftur: verið glað- ir“. Hve indælt fyrir manninn, sem er kraftalítill, veiktrúaður, kjarklítill, þurfandi, áhyggjufull- ur, vesall og snauður, að geta lif- að í samfjelagi við þann drottin og frelsara, sem er máttugur og ríkur af öllum gæðum, sem get- ur mettað hinn svanga í eyði- mörkinni, komið til hjálpar í lífs- háskanum, sem getur huggað, læknað og lífgað, sem á alt, get- ur alt, elskar fram í dauðann og gefur alt, sem gerir liinn fátæka ríkann, hinn þreklausa sterkan og hinn kvíðafulla öruggann. Er liægt að lifa i samfjelagi við slik- an kraft, slíkt ríkidæmi, slíka hollustu, slíka tign og slíkan kær- leika, — án þess að vera glaður. Gefi Guð þjóð vorri marga menn, leiðtoga og verkamenn, sem eins og meistarinn „hata rangindi“. en „elslca rjettlætið“, og geta þar með veitt sólskini gleðinnar inn i líf þjóðarinnar. En til hinna „ístöðulausu" vildi jeg gjarnan segja í umboði drott- ins: „Verið hughraustir, sjá, Guð yðar kemur“. Guð er altaf að koma til mannsins. Hann er altaf á leiðinni til hinna „istöðulausu“ sem huggari,já, á leiðinni til allra sem hjálpari og frelsari. Guð er einlægt að nálgast mennina og mun að lokum draga þá alla upp að sínu föður hjarta. í endurminningum sínum segir von Búlow fursti, sem lengi var kanslari Þýskalands frá því, aö móð- ir Vilhjálms keisara hafi eitt sinn sagt við tengdamóður sina: Sonur minn kemur Þýskalandi á knjel Varð það sannmæli siðar þó það væri sagt tuttugu órum áður en það kom fram. Síðasta bók Iínut Hamsuns heitir „August“ og er nýkomin i bókaversl- anir hjer. Er hún einskonar fram- hald af sögunni „Landstrykere" og kom út samtímis á átta tungumálum, en kemur út á öðrum átta fyrir jólin. Er talið víst, að Hamsun verði orðinn miljónareigandi þegar hann hefir fengið goldin ritlaunin fyrir þessa hók, því 700.000 krónur átti hann fyrir, eða vel jiað. Hefir eng- inn norskur rithöfundur orðið jafn- ríkur af ritum sínum; Ibsen, sem gengur honum næstur eignaðist hálfa miljón. Það eru tvennir tim- arnir hjá Hamsun nú, eða þegar hann gekk á milli timaritanna í Os- ló með fyrsta kaflann af „Sult“ en fjekk hann hvergi prentaðan. ----x---- Stokkhólmur hefir nýlega fengið að gjöf frá vellauðnugum Ameríku- manni eina miljón dollara, sem var- ið skal til þess að koma upp tann- lækningastofnun, er starfi á vís- indalegum grundvelli að þvi að kom- ast fyrir orsakir tannskemda. Gef- andinn er Georges Eastman, eigandi Kodak-verksmiðjdnna, sem fram- leiða flestar myndavjelar í heimi og sömuleiðis mest af ljósmynda- og kvikmyndafilmum. ----x---- „ítalska kjötfjallið“ kaila Ameríku- inenn hnefleikamanninn Carnera, sem síðastliðið missiri hefir barist við ýmsa hæfa hnefaleikara í Am- ríku og jafnan unnið sigur í fyrstu lotunum, þangað til nú nýlega að hann beið ósigur fyrir Jim Maloney. Ameríkumenn hafa nú neitað Carnera um lengra dvalarleyfi í landinu en orðið er, þvi að hann þykir ekki neinn fyrirmyndar íþróttamaður þótt skæður sje hann. Það hefir vitnast, að þeir þrír menn sem sjeð hafa um kappmót Carnera í Banda- ríkjunum eru allir gamlir afbrota- menn; einn þeirra, mr. Duffy hefir verið 13 ár í þrælkunarvinnu, ann- ar, mr. Madden setið 10 ár í tugt- húsi og sá þriðji, Frenchy d’ Mange verið samals 12 ár í fangelsi síðan árið 1915. Þó er ekki talið vist að Carnera hafi verið kunnugt um þessa „yfirburði" trúnaðarmanna sinna, því að sjálfur talar hann ekki ensku og er sagður afar treggáfaður. Svo mikla skömm hafa Ameríku- menn ó Carnera, að linefleikafjelög- in gáfu Maloney áminningu fyrir að berjast við hann og töldu það undir virðingu lians. ----x---- Útgerðarmannafjelagið í Álasundi hefir farið þess á leit við stjórnina, að hún gangist fyrir síldarleit með flugvjelum meðan á stórsíldarveið- urium stendur. Hefir stjórnin brugð- ist vel við þessu og sendir tvær af flugvjelum hersins í síldarleit- um miðjan þennan mánuð (nóvember). ------------------x----

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.