Fálkinn - 15.11.1930, Qupperneq 9
FÁLKINN
9
Frá Cuba, lýðveldinu frjósama i Vestur-Indíum, hafa borisi ýms líðindi undanfarnar vikur,
sem benda í þá átt, að borgarastyrjöld sje að hefjasl þar. Oft hefir vcrið óeirðasamt þar. Þannig
gaf Cuba tilefni til þess að um síðustu aldamótað Spánverjum og Ameríkumönnum lenti í ó-
/riði, sem lauk með sigri Bandaríkjamanna. 1901 varð Cuba sjálfstætt lýðveldi en Bandaríkja-
menn /engu ýms forrjettindi þar. Óeirðirnar núna stafa af því, að þjóðernissinnar og komm-
únistar telja Machado forseta of eftirgefanlegan við auðkýfinga Bandríkjanna. Hjer á ~mynd-
inm sjest nokknr hluti höfuðborgarinnar, Havana, með þinghúsinu í miðju. Kostaði það 17
miljónir dollara.
Á myndinni hjer að ofan sjesl
Lappoforinginn Viktori Kosola
en að neðan Mussolini. Hefir
því verið veitt eftirtekt hve þeir
sjeu líkir í andliti, enda virðisl
Kosola vera að reyna að stæla
Mussolini í sijórnmálum.
Myndin hjer til hægri er af
grindinni úr R 101, sem fórsi
i Frakklandi í byrjun október.
Sjerfræðingum kemur saman
um, að skipið hafi verið ofhlað-
ið er það fórst og að öðru leyti
svo gallað að byggingu til að
óvit hafi verið að senda það í
ferðina. Ilafa nú verið rjettar-
höld í London út af slysinu og
m. a. fengu Bretar Zeppelin-
stjórann dr. Eckener iil þess að
koma til London og segja álit
sitt um málið.
Neðsta myndin til hægri er tek-
in við Skeppsliolmen í Stock-
holm þegar [allbyssubáturinn
Svensksund lagði þar að til þess
að skila af sjer líkum Andrée
flugmanns og fjelaga hans.
Ilafði löng báíabryggja verið
bygð út að skipinu og sjást
neðst á henni kislur hinna látnu
pólfara, sem eftir 33 ár komu
aftur heim til fósturjarðarinnar.